Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Page 14
74 MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2005
Neytendur DV
• Merrild kaffi á 11%
afslætti til 2. mars í
Þinni verslun í Kópa-
vogi.
• í Sparversluninni í
Bæjanind erBorganes
skinka á 20% afslætti til 1. mars.
• Nautastrimlar Nóatúns verða á
30% niðurgreiddu verði til 2. mars.
• Hringiðjan að Dunhaga 5 býður
upp á frítt ADSL-Router gegn 12
manaða samning í 1 Gb-flokki og
gildir það tilboð til 2.
mars.
• Barn að eilífu eftir
Sigmund Erni Rún-
arsson er á 1.990
krónur hjá JPV-út-
gáfu að Bræðrar-
borgarstíg 7 og er
það 60% afsláttur.
• Hljóðfærahúsið að Laugaveei
176 býður Beech Custom Absolute
Yamaha-trommusett með 20% af-
slætti til 31. mars.
• DigitalSony
dcrpc330-tökuvél
er á 37% afslætti hjá
Expert í Skútuvogi 2
til 26. mars.
• Hundraðlítra
hjólbörur eru á 45% afslætti hjá
Múrbúðinni Smiðjuvegi 72 og gild-
ir tilboðið til 22. mars.
• Skorri á Bfldshöfða 12 býður
Traveller-ferðakolagrill til 24. mars
með 33% afslætti.
Ódýrasta bensínið}
Vt'rd miúast við 95 oktan i •.jáífsafarciðski
Höfuðborgarsvæðið
Leiðrétting
DV hvetur fyrirtæki til að senda tölvubréf til að láta vita af góðum tilboðum, helst með myndum, á netfangið neytendur@dv.is. Neytendasíða DV birtist í blaðinu alla virka daga.
Gæludýr er að finna á mörgum íslenskum heimilum og gæludýraverslanir eru margar
að berjast um hituna. Verð á gæludýrum getur verið misjafnt og hægt er að fá
hamstra á allt frá fimmhundruð krónum og fugla upp að fimmhundruð þúsund krón-
um. Gunnar Vilhelmsson í Dýrarikinu segir samkeppnina á markaðnum af hinu góða.
45% verDmunur á hðmstrum
aðstöðu sem bæði eigandi smásölu-
verslunar og sem heildsali því þar er
hann í ákveðinni samkeppni við
sjálfan sig. „Svo sel ég líka alls kyns
vörur sem snúa að dýrum í stór-
markaði og þeir eru oft með töluvert
lægri verð en í dýrabúðunum sem
er samkeppni og ég fagna því
vegna þess að flest öll sam-
keppni er góð,“ segir Gunnar.
„Það er alveg gífurlegt úrval á
gæludýramarkaðnum á fslandi"
VERÐMUNUR A GÆLUDYRUM
Tölurnar standa fyrir verð á hverju stykki.
Gæludýrabúö Hamstur Gultfiskur Gári Dtsarpáfagaukur
Fiskó - Hlíðasmára 900 590 2900 12.000
Trítla ehf- Nethyl 500 350 2400 10.000
Dýraland - Mjódd 500 390 2900 14.000
- Krlnglunni 500 350 2900 12.000
-Spönglnnl 500 350 2900 12.000 '
Dýrarlkið - Grensásveg 900 350 3500 12.000
-Akureyrl 900 350 2900 12.900
Furðufuglar og fylgifiskar - - Hafnarstræti 500 390 2500 10.000
-Bleikargróf 500 690 2900 11.000
- Borgamesi 850 690 2500 11.000
Vatnaveröld - Keflavfk 500 390 2500 9.000
Blómabær, Egilsstöðum 600 395 2900 Ekki til
Allt 1 hund og kött Kjamanum
- Selfossl 990- 890- 2900 12.000
Verð í íslenskum gæludýrabúðum er nokkuð sanngjamt þegar
skoðaðar eru niðurstöður verðkönnunar sem DV gerði á fjórum
tegundum gæludýra. Samkeppnin er mikil á höfuðborgarsvæðinu
en verð úti á landsbyggðinni er einnig svipað. í gæludýra-heimin-
um hafa myndast stórar blokkir, eins og í svo mörgu í íslensku við-
skiptalífi. Þessar blokkir eru Dýraríkið, Dýraland og Furðufuglar og
fylgifiskar. Gunnar Vilhelmsson eigandi Dýraríkisins segir gríðar-
lega mikið lagt í þjónustu og að samkeppni sé af hinu góða.
„Það er alveg gífurlegt úrval á
gæludýramarkaðnum á íslandi og
miðað við svona lítinn markað er
það algert brjálæði að standa í því að
bjóða upp á svo öfluga þjónustu,"
segir Gunnar Vilhelmsson í heildsöl-
unni íslensk tækni sem er einnig
eigandi Dýraríkisins, en hann sér-
hæfir sig í gæludýrum og því sem
tengist þeim. „En fyrst maður er
byrjaður á þessu og er að leggja
þetta allt á sig þá er ég ekki tilbúinn
að snúa aftur við,“ bætir Gunnar við.
„Um þetta misræmi sem er á
milli búða í könnuninni vil ég segja
að það sé mjög gott að fá svona
ábendingu svo hægt sé að leiðrétta
þetta því verðin eiga að vera þau
sömu í báðum búðunum," segir
Gunnar þegar hann er spurður um
mismuninn á verðum á gárum og
dísarpáfagaukum á milli búða sinna.
Gunnar er í dáb'tið sérkennilegri
-1þessari verslun eru allar tegundir hamstra og gullfiska seld á sama verði.
Veröin sem gefin eru upp á hömstrum eru miðuð viö venjutegan hamstur, ekkl
dverghamstur. Gullfiskaverðlö er ódýrasti mögulegl gullflskur I hverrl verslun.
Gárinn er heföbundlnn gárapáfagaukur af ódýrustu gerö.
Verð dlsapáfagauka er mlöaö viö ódýrasta verðið á ótömdum fugli á hverjum staö
fyrir slg.
í heildsölunni fslensk tækni er
venjulegur gullfiskur á 176 krónur
og dfsarpáfagaukur á 7.363 stykkið
I smásölu. Hamstrana og gárana er
erfiðara að setja fram á
heilsöluverði þar sem heildsalinn
selur eingöngu sér innflutta
undaneldishamstra og fugla til
ræktanda og eru þeir þvf dýrari en
eintökin sem fást á almennum
markaði.
Gunnar Vilhelmsson „En fyrst maður er
byrjaður á þessu og er að leggja þetta allt á
srg þáerég ekki tilbúinn aðsnúa aftur vi6."
Hugi Hreiðarsson hjá Atlantsolíu segir neytendur númer eitt
Atlantsolía kennir bensíndælingu
Hugi Hreiðarsson
Markaðsstjórinn segir nýju
stöðina brotl sögu olíu og
bensínsölu / höfuðborginni.
Slægö ýsa Roðflettýsa kostar ekki
1500 krónur I Vör heldur 1050 krónur.
í föstudagsblaðinu í síðustu
viku var sagt að verð á roðlausri
ýsu í Fiskbúðinni Vör væri 1500
krónur. Hið rétta í málinu er að
verðið er 1050 krónur þegar eng-
in tilboð eru í gangi.
„Fyrsta skóflustungan var tekin sfðast-
liðinn miðvikudag og áætlað er að verkið
taki um 80 daga, svo opnunin ætti að
verða í byrjun maí,“ segir Hugi Hreiðars-
son, markaðsstjóri hjá Atlantsolíu um
fyrirhugaðar framkvæmdir á byggingu
nýrrar bensínstöðvar félagsins í Reykja-
nesbæ. Þetta verður fyrsta stöð félagsins
utan höfuðborgarsvæðisins og að sögn
Huga verður hún með sama hætti og hin-
ar.
„Svo erum við með kennslu á sjálfsal-
ana á Sprengisandi alla virka daga frá 9 til
19 og um helgar frá 10 til 16, en það er
hugsað fyrir eldri borgarana og þá sem
ekki eru vanir mannlausum sjálfsaf-
greiðslustöðvum þar sem muna þarf pin-
númer til að hefja dælingu, „ segir Hugi
og skorar á neytendur að kynna sér virkni
þessara sjálfsala hjá „kennaranum" á
staðnum.
„Markmið okkar er að gera vel fýrir
neytendur og það er gott til þess að vita
að eftir áralanga fákeppni stóru stöðv-
anna höfum við náð að koma upp þjón-
ustustöð í Reykjavík, þrátt fyrir að sam-
keppnisaðilar hafi reynt ýmislegt til að
koma í veg fyrir það. Okkur hefur tekist
það sem Irwing Oil tókst ekki á sínum
tíma,“ tekur Hugi Hreiðarsson fram.