Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Síða 16
7 6 MÁNUDACUR 28. FEBRÚAR 2005 Heilsa DV / DV á mánudögum Feitar konur eignast feit börn Nýjar rannsóknir gefa til kynna að offita erfist. Svo virðist sem offita erf- ist frá móður tll barns og þegar börn- in eru um 6 ára aldurinn eru börn sem eiga feita móður 15 sinnum Ifklegri til að vera feit. Þeir sem stóðu að rann- sókninni vilja meina að (Ijósi þessarar uppgötvunar sé brýnt að byrja strax um 4 ára aldurinn að reyna að koma ( veg fyrir offitu. Fylgst var með 70 börnum frá fæðingu til 6 ára aldurs. Fyrstu tvö árin var Ktill munur á þeim en það breyttist um 4 ára aldurinn. Þá urðu börn feitu mæðranna miklu þyngri og um 6 ára aldurinn þá voru þau bæði þyngri og með hærra fitu- hlutfall f Ifkamanum. Lítil börn fá frekar sykursýki Vísindamenn hafa fundið ástæðuna fyrir því að börn sem eru lítil við fæðingu eru frekaríhættuá að fá sykursýki síðar á lífsleið- inni en þau sem stærri eru. Næringaskortur í móðurkviði veld- ur því að ffumur í briskirtli, sem framleiða insúlín, skaðast. Fram- leiði líkaminn lítið af slíkum hormónum er hann ekki jafn vel í stakk búinn í að stjórna blóð- sykurmagni líkamans sem eykur hættuna á sykursýki. Kemur þetta fram í nýjasta hefti ffæði- ritsins Diabetes. Rannsóknaraöil- ar segja að sykursýkin komi yfir- leitt ekki í ijós fyrr en á unglings- árunum eða jafnvel sfðar. Keisaraskurður ekki lausnin Keisaraskurðir minnka ekki hættuna á þunglyndi móðurinnar eftir fæðing- una, sam- kvæmt breskri rannsókn. Því hafði verið haldið fram að hægt væri að minnka hættuna á þunglyndi með því að skipuleggja keisara- skurð fyrir fæðingu barnsins en það reyndist ekki rétt samkvæmt niður- stöðum rannsóknarinnar. 14 þús- und breskar konur voru þátttakend- ur í rannsókninni. Fæðing barns er vitanlega stór hluti af iífi hverrar konu sem tekst á við móðurhlut- verkið og getur reynst streitumikill atburður. Um 15% kvenna þjást af þunglyndi eftir fæðingu barnsins sem er svipað hlutfall og hjá þeim sem þjást af almennu þunglyndi. Knattspyrnu- menn fá frekar taugasjúkdóm Nýleg ítölsk rannsókn gefur til kynna að knattspymumenn eiga það frekar á hættu að fá tauga- sjiikdóm sem gæti leitt þá til löm- unar eða dauða. Sjúkdómurinn er svipaður þeim sem vísindamað- urinn Steven Hawking þjáist af og heitir ALS. Kom þetta í ljós er verið var að kanna notkun ólöglegra efna meðal 24 þúsund knattspymu- manna á Italfu en þá fundust 33 tilfelli um sjúkdóminn. Rannsak- endur skoðuðu þá heilsuferil 7 þúsund knattspymumanna sem höfðu spilað í efstu eða næstefstu deild á Italíu á árunum 1970 til 2001 og komu þá í ljós 5 tilfelli. Alla jafna og miðað við tíðni sjúk- dómsins meðal almennings, he- fði aðeins einn eða enginn átt að greinast með sjúkdóminn. Engin lækning er til við sjúkdómnum og óvitað hvað orsakar hann, fyrir utan nokkur sjaldgæf tilfelli um arfgengi sjúkdómsins. E V hvetur fólk til að senda inn hugmyndir á netfangið heilsa@dv.is og kaerilaeknir@dv.is ef fólk vill beina spurningum til Katrínar Fjeldsted. Heilsusíðan birtist í DV á mánudögum. Hósti, eitt a( pðar- einkennum Islendinga Bergþóra spyr: Sæli vertu Lýður Mér leikur hugur á að vita hvaða fyrirbæri hósti sé eiginlega ? Af hverju er fólk sem býr í þessu landi síhóstandi ? Maður fer ekki öðm- vísi í kirkju nema einhver hósti, hnerri eða sjúgi upp í nefið. Hvað er eiginlega í gangi ?! Þarf maður að fara til út- landa til að losna við þennan fjanda, því satt að segja er ég ekkert betri sjálf, hósta og ræski mig í tíma og ótíma. Em þetta umhverfisáhrif eða aldagamall vani þjóðar sem bjó við sult og seyru mest allan sinn tilvist- artíma ? Hósta nýbúarnir kannski minna ? kveðja Bergþóra Sæl vertu Bergþóra Hósta má hæglega kalla eitt af þjóðareinkennum íslendinga. Hann hefúr ugglaust fylgt okkur gegnum aldirnar. AUavega er hósta iðulega gerð góð skil í kvikmyndum okkar sem fjalla um fyrri tíma. Þar má oft sjá landann með homös, róandi fram í gráðið og hósta. Ég get tekið undir þér með kirkjurnar, þær virðast framkalla hósta öðrum húsum betur, kannski veldur þar mestu um loftkyrrð hús- anna og helgi. Út frá læknisfræðinni er hósti skilgreindur sem einkenni, ekki Læknirinn LýðurÁrnason svarar spurningum lesenda og gefur góð ráð um heilsu. sjúkdómur. Ástæða hans er ertingur í effi hluta öndunarvegarins, oftast frá hálsi. Hósti er ein algengasta um- kvörtun þeirra sem leita til lækna og jafhan hluti af öðru einkenna- mynstri sem alla jafna kallast kvef. Húsráð Lýðs Meðferð við hóstanum eingöngu er bæði óþörf og engin góð til, ég vil þó nefna nokkur húsráð. Gott er að velgja hálsinn með súpulögg eða tei, einnig er kæling góð, mjólkurhrist- ing nefni ég sérstaklega. Jegermeist- er-snafs fyrir háttinn er ágætur val- kostur fyrir fullorðna sem á annað borð kunna með slíka miði að fara, hóstamixtúrur á markaði finnast mér gagnslitlar. Þar sem hósti fer oft í gang þegar fólk leggst út af er þjóð- ráð að sofa sitjandi sé þess kostur. Haldi hósti vöku fyrir umhverfinu er upplagt að slamma sér niður í fjar- lægasta horni hússins, slfk tillitsemi vekur oft mikið þakkiæti annarra. Sé hósti langvinnur og/eða einn á ferð er sjálfsagt að leita læknis, í sumum tilfeOum má finna undir- liggjandi orsök og ekki má gleyma lyfjahósta en sum geta valdið Olvíg- um ertingshósta. Óþarfi að hlaupa strax til læknis Almennt ráðlegg ég fiOIorðnu, frísku fólki að hlaupa ekki strax tíl læknis þó hrjái það hósti og hornös, leyfa tímanum að vinna sitt áður en sloppunum er blandað í málið, oft- ast er mesta hrynjan yfirstaðin á tíu dögum. Varðandi nýbúana hef ég ekki getað gert greinarmun á þeirra hóst- um og annarra en hef þó órökstudd- an grun um að íslendingar hósti oft- ar en ekki af vana fremur en þörf. Kannski þetta kjöltur sé sprottið af svipuðum meiði og skyrp knatt- spyrnumannanna, segjum það bara... með kærri kveðju LýðurÁmason læknir í lífi hverrar konu kemur að breytingaskeiðinu. Þessi tími fer misvel í konur en flestar lenda þó í því að bæta einhverjum kílóum á sig. ffráð tilað grennast eftir breytingaskeiðið 1. Ekki kenna estrógeninu um. Þaö er ekki þvi að kenna að aukakilóin eru að setjast á þig. Það sem þú borðar og hreyfing hefur meira að segja um þyngar- aukningu eftir breytingaskeiðið en hormónar. 2. Farðu róiega (áfengi. Passaöu þig á kaloríumiklum áfengis- drykkjum. Það eru sterk tengsl á milli áfengisneyslu og þyngdaraukn- ingar. Minnkaðu drykkjuna allavega um helming. 3. Styrktu líkamann. Vöðvarýrnun hefurþað oft í för með sér að fita kemur i staðinn. Eftir þrltugt byrja vöðvarnir að rýrna og eina leiðin til að koma I veg fyrirþetta er að stunda Ifkamsrækt.Reglulegar æfingar endurnýja horfna vöðva og brenna kaloríum um leið. 4. Ekki svelta þig. Gleymdu lág- katoríumegrunarkúrum. Allt fyrir neðan 1.200 kalorlur hægir á efnaskipt- unum sem gerir það að verkum að það verður erfiðara að grennast. 5. Hver biti telur. Allt smakkelsi viö matar- gerð og át fyrir framan sjónvarpið hleðst utan á þig. Slepptu því að narta og þú sleppur við allt að 200 kaloríur á dag. 6. Ekki éta yfir þig á veitinga- stöðum. Passaðu þig á skömmtunum þar og annað hvortdeildu matnum með ein- hverjum eða taktu helminginn með þér heim. Ekki troða I þig bara til að klára afdisknum. 7. Borðaðu hollan mat. Einbeittu þér að mat sem hefur mikla næringu og er fullur af vítamínum, steinefnum og öðrum nær- ingarefnum. Bökuð kartafla er saðsam- ari og næringarrfkari en skammtur af frönskum. 8. Slappaðu af. Farðu f freyðibað, hlust- aðu á róandi tónlist eða gerðu það sem þér finnst best til aö minnka stress. Hátt hlutfall stresshormóns sem heitir cortis- ol bætir meiri fítu á þig og það getur gert breytingaskeiðið enn verra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.