Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2005, Page 22
22 MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2005 Sport DV ÚRVALSDEILD ENGLAND g Southampton-Arsenal 1-1 0-1 Freddie Ljungberg (45.). 1-1 Peter Crouch (67.). Aston Villa-Everton 1-3 0 1 Leon Osman (17.), 1-1 Nolberto Solano (4S.), 1-2 Tim Cahill (48.), 1-3 Leon Osman (67,). Crystal Palace-Birntingham 2-0 1 -0 Andy Johnson, víti (41.). 2-0 Andy Johnson, viti (68.). Tottenham-Fulham 2-0 I -0 Freddie Kanoute (78.), 2 0 Robbie Keane (90.!. Man. Utd.-Portsmouth 2-1 1 0 VVayne Rooney (8.), 1 1 Gary O'Neii (47.), 2-1 VVayne Rooney (81.). Middlesborough-Charlton 2-2 0-1 Matt Holland (14 ), 1 -1 Chris Riggott (74.1, I 2 Shaun Bartlett (80.1, 2-2 P mny Graham (86.) Newcastle-Bolton 2-1 1-0 Lee Bowyer (35.), 1-2 Stelios Giannakopoulos (41.), 2-1 Kieron Dyer (69,! Cliehea 27 Staðan 215 1 50-8 68 M<in. Utd. 28 18 8 2 47-17 62. Aisen.íl 28 17 7 4 64 32 58 Eveiton 28 15 6 7 34-29 51 Liverpool >7 13 4 10 41-29 43 M'horo 28 11 9 S 43-37 42 Bolton 28 11 7 10 36-34 40 Tottenham 27 11 ó 10 35-30 39 Ch.ulton 27 1! 6 10 32-38 39 A. Villa 28 9 8 11 32-37 35 Newcast. 27 8 10 9 39 44 34 Man. City 27 8 9 10 31 29 33 Birmingh. 28 8 8 12 31-35 32 Portsm, 28 8 6 14 31-42 30 Fulham 27 8 5 14 33-46 29 Blackburn 27 0 1011 24-36 28 C. Palace 28 6 7 15 32-45 25 Soton 28 3 1213 29-44 21 Norwich 27 3 1113 26-52 20 WBA 2 7 2 1213 23-49 18 Markahæstir: Thlerry Henry, Arsenal 19 Andrew Johnson, Crystal Palace 18 Jermain Defoe, Tottenham 11 Robert Pires, Arsenal 10 Jimmy Floyd Hasselb., M’boro 10 Andy Cole, Fulham 10 Aiyegbeni Yakubu, Portsmouth 10 Wayne Roonev, Man. Utd. 9 Robbie Keane, Spuis 9 Fredrik Ljungberg, Arsenal 9 Shaun Wright-Phillips, Man. City 9 Milan Baros, Liverpool 9 Paul Dickov, Blackburn 9 Paul Scholes, Man. Utd. 8 Didier Drogba, Chelsea 8 Eiður Smari Guðjohnsen, Chelsea 8 Nolberto Solano, A. Villa 7 Peter Crouch, Soton Jose A. Reyes, Arsenal Alan Shearer, Newcastle Ai jen Robben, Chelsea Frank Lampatd, Chelsea 7 Manchester United minnkaði forystu Chelsea í ensku úrvalsdeildinni niður í sex stig um helgina þegar liðið lagði Portsmouth að velli, 2-1. Sigurinn var ekki átakalaus en hinn ungi Wayne Rooney kom til bjargar þegar mest á reyndi. Rooney bjargoöi Man. United Sir Alex Ferguson, stjdri Man. Utd., játaði eftir leik Man. Utd. og Portsmouth um helgina að hann hefði óttast að þeir misstu af möguleika á titlinum áður en Wayne Rooney bjargaði United með glæsilegu sigurmarki níu mínútum fyrir leikslok. Rooney skoraði bæði mörk United í leiknum og United er eina liðið sem á möguleika á að ná Chelsea þar sem Arsenal gerði aðeins jaftitefli gegn Southampton. „Ég hélt í alvöru að við værum að missa af titlinum og mér var mikið létt þegar Rooney skoraði," sagði Sir Alex. „Annars hefðum við átt að klára þennan leik í fyrri hálfleik og það var mikið áfall að fá mark á okkur snemma í síðari hálfleik. Við höfum unnið marga svona leiki síðustu ár. Svona úrslit sýna bara viljann og baráttuna sem býr í þessu liði. Wayne var langbestur á vell- inum í dag. Hann er sigurvegari og sýndi það í þessum leik.“ Rooney skoraði fyrra mark sitt í fyrri hálfleik og Gary O’Neil jafnaði fyrir Portsmouth þegar aðeins 90 sekúndur voru liðnar hálfleiknum. United á góðan möguleika á að skera forystu Chelsea niður í þrjú stig þegar það mætir Crystal Palace um næstu helgi en Chelsea mætir Norwich eftir að United hefur leikið gegn Palace. Allt getur gerst „Við verðum að halda okkar striki og vinna alla leiki. Þá er aldrei að vita hvað gerist,” sagðiFergusonogJoe Jordan, stjóri Portsmouth, tók í sama streng. „Þeir hafa gert það áður og hver segir að þeir geti ekki gert það aftur? Þeir hafa unnið 14 leiki af síðustu 17 og hinir þrír voru jafntefli. Ég sé ekki að þeir séu neitt að hægja á sér. Ef eitthvað lið getur unnið þessa forystu upp þá er það Man. Utd.,“ sagði Jordan. Roy Carroll missti sæti sitt á kostnað Tims Howard í leiknum og telja því margir líklegt að Carroll hafi leikið sinn síðasta leik fyrir United en hann er án samnings í sumar og hefur tvisvar hafnað samnings- tilboði frá United. henry&dv.is siðan Bjargvættur United Ruud Van Nistelrooy og PaulScholes fagna Wayne Rooney á stóru myndinni en á Þeirri minni skorar hann annað tveggja marka sinna -Vf • .,» -V "" Stríð og friður Um tíma Það er fastur liður á hverju hausti að stórleikur í enska boltanum lendi á sama tíma og ein- hverjir af loka- leikjunum í íslensku knatt- spyrnunni. Gjaldkerar knattspyrnu- deildanna reka upp rama- kvein, enda munar um hvern þús- undkall í töpuðum að- var reynt að hamla gegn þessu með því að banna sjónvarpsstöðvunum að sýna beint frá leikjum ytra á sama tíma og spilað væri hér heima. Þær tilraunir leiddu þó bara til þess að fleiri mættu á sportbari og horfðu á ensku stöðvarnar. Þegar enski boltinn er annars vegar, eiga íslenskir fótboltamenn erfitt uppdráttar í keppninni um vinsældir. Stöðugar feröir eru í boði á leiki á Englandi og margir fara oftar en einu sinni á ári. Gagnvart enska boltanum er fjarlægðin engin vörn. En ef íslensku félögin barma sér undan samkeppninni, hvað mega þá frændur okkar írar segja? í hverri viku streyma írskar boltabullur til Englands og Skotlands. í Belfast, höfuðstað Norður-írlands, má á öðru hverju horni finna búðir sem selja Rangers- eða Celtic-búninga. Enski boltinn er sömuleiðis í mikl- um metum og í fjölda ára hafa kaupsýslumenn í Dublin látið sig dreyma um að koma upp liði í ensku deildinni, til dæmis með því að kaupa upp félag og flytja til eyjar- innar grænu. Slök deildakeppni Á sama tíma fylgjast sárafáir með írsku og norður-írsku deild- unum. Félögin þar eru litlu sterkari en íslenskú knatt- spyrnuliðin og varla hægt að tala um hreina atvinnu- mennsku. Áhorfenda- fjöldinn er lítill miðað stærð samfélagsins og tekjur af sjón- varpsútsendingum eða sölu búninga og gripa hverfandi. Landsliðin tvö draga að sér áhorfendur, en leik- mennirnir spila allir á Englandi og eru jafnvel fæddir þar óg uppaldir. Ein þeirra leiða sem nefridar hafa verið til að rétta hlut fra gagnvart grönnum sínum, er að sameina írsku og norður-írsku deildirnar. Sá háttur hefur raunar lengi verið hafður á í rugby-íþrótt- inni, en írar og Norður-írar tefla fram sameiginlegu landsliði í þeirri fautaíþrótt. Stjómmálin og sagan em stærstu hindranirnar í vegi þess að úr sameiningu geti orðið. Margir mótmælendur * á Norður-Irlandi óttast að sameiginleg deild yrði fyrsta skrefið í átt að sameigin- legu knattspyrnu-' landsliði. Ýmsir em líka smeykir um að leikir milli liða kaþólikka og mótmælenda yrðu átylla- of- beldis og ögr- ana. Sá ótti er ekki ástæðulaus, enda löngum verið stutt í trúarhatrið í Roy Carroll er Norður-íri. stuðningshrópum fótboltaunnenda á eynni. Tímamótaleikur Vináttuleikur sem haldinn verð- ur á þriðjudagskvöldið, er af mörg- um talinn prófsteinn á það hvort friðurinn á írlandi sé orðinn svo traustur að hættandi væri á sameig- inlega deild. Þar mætast norður- frsku liðin Derry City og Linfield. Fyrmefnda félagið er í hjarta kaþólska samfélagsins á Norður- írlandi, en hrökklaðist snemma á áttunda áratugnum úr norður-írsku deildinni og hefur nú í um fimmtán ár keppt í deildarkeppninni sunnan landamæranna. Fræg er sagan af því þegar liðs- menn IRA höfðu undirbúið sprengjutilræði í tengslum við Evr- ópuleik Derry og Benfica, en hættu við á síðustu stundu af ótta við að leiknum yrði aflýst. Þótt vissulega hafi fótboltinn oft verið gerður að skálkaskjóli ofbeldisverka em miklu fleiri dæmi um hið gagnstæða, þar sem menn slíðra sverðin til að snúa sér að því sem raunverulega skiptir máli - að horfa á góðan leik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.