Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2005, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR I 5. APRÍL 2005
Fréttir ÖV
Dómur
þyngdur
Hæstiréttur þyngdi í
gær fangelsisdóm yfir
Andra Má Gunnarssyni.
Andri var dæmdur sekur
fyrir fjölmörg skjalafals-,
auðgunar- og umferðar-
lagabrot. Hann hlaut 12
mánaða fangelsisdóm i
héraðsdómi í fyrra en
Hæstiréttur þyngdi
dóminn í 18 mánaða
fangelsi.
Barnaníð-
ingurá
Hraunið
Sigurbjörn Sævar
Grétarsson, sem var
stuttu fyrir jól dæmdur í
fjögurra ára fangelsi fyr-
ir gróf kynferðisbrot
gegn fimm drengjum í
samtals nærri 70 skipti,
hóf afþlánun sína á
Litla-Hrauni í gær. Sam-
kvæmt öruggum heim-
ildum DV er mikil ólga á
meðal fanga vegna
komu Sigurbjarnar á
Litla-Hraun, því fyrir
utan að vera dæmdur
barnaníðingur starfaði
Sigurbjörn sem héraðs-
lögreglumaður á Pat-
reksfirði. Margt bendir
því til að Sigurbjörn
megi búast við erfiðri
vist næstu árin.
Ferðu í afmœlis-
veislu Vigdísar
í kvöld?
Stjáni stuð,
fyrrverandi útvarpsmaður og verð-
andi sjónvarpsmaður.
„Nei, ég held ekki. Ég hefekki
áhuga á aö fara í afmælis-
veislu nú'na. Ég er að reyna að
passa mig. Ég er megrun. Ég er
búinn að ná afmér 7,6 kílóum
og ætla ekki aö eyðileggja
það. Vigdfs var góður forseti
og dóttir hennar er líka
hugguleg."
Hann segir / Hún segir
„Já ég ætla að fara og hlakka
mikið til. Ég ætla samt fyrst að
hlusta á fyrirlesturinn hjá
Mary Robinson sem er fyrr um
daginn. Ég veit ekki hvort ég
gefi henni einhverja gjöf. Þá
ekki nema það að kaupa miða
á hátíöina, annars sendi ég
henni bara kveðju."
Salóme Þorkelsdóttir,
fyrrverandi forseti Alþingis.
Aron Pálmi Ágústsson segist næstum hafa misst alla von um að íslenskum stjórn-
völdum takist að losa hann úr prísundinni í Beaumont í Texas þegar hann sá í
sjónvarpinu Bobby Fischer koma til íslands. Aron er enn í stofufangelsi og er nú
að skrifa sögu sína og vill gefa hana út þegar hann kemst heim - heim til íslands.
Frelsun Bohbys Fischer
slökkti von Arons Pálmo
Dagamir líða hægt við í húsinu við Alma-stræti í Beaumont þar
sem Aron Pálmi dvelur í stofufangelsi. Móðir hans býr í talsverðri
fjarlægð og heimsækir hann einu sinni í viku og faðir hans tvisvar
í mánuði. Skilorðsfulltrúi og sálfræðingur brjóta þó upp annars
fábreytt líf þessa unga manns sem upplifað hefur meira en flestir
jafnaldrar hans á íslandi - landinu sem hann þráir að komast til.
„Ég trúi því enn að íslensk stjórn-
völd geti hjálpað mér að komast
heim til íslands, þar á ég heima,"
sagði Aron Pálmi í samtali við DV í
gær.
Aron kveðst enn halda í vonina
um að losna þrátt fyrir að Davíð
Oddsson utanríkisráðherrra hafi lýst
því yfir í DV að fullreynt væri með
lausn Arons Pálma og að ekki hefði
verið unnið í máli hans frá því Davíð
tók við lyklavöldum í utanríkisráðu-
neytinu.
Rúm tvö ár eftir
Aron á enn eftir að afþlána rúm
tvö ár af tíu ára dómi sem hann hlaut
fyrir læknisleik þegar hann var ellefu
ára gamall. Hann vonast þó til að
komast heim fyrir þann tíma.
„Ég losna 27. ágúst 2007,“ svarar
Aron snöggt aðspurður, enda dag-
setningin greipt í huga hans.
„Ég trúi því samt að með hjálp og
þrýstingi frá íslandi verði hægt að
koma mér heim fyrr, ég neita að trúa
öðru,“ segir Aron, sem nýlega horfði
á beina útsendingu í sjónvarpi frá því
þegar Bobby Fischer var leystur úr
prísund sinni í Japan af íslenskum
stjómvöldum. Hann segir hug sinn til
þess blandinn:
„Ég hugsaði annars vegar með
mér að nú væri öll nótt úti enda
stjómvöld í Washington ekki sátt við
ákvörðun íslendinga. Hins vegar
gladdist ég fyrir hönd Bobbys - ég
óska engum þess að vera sviptur
frelsinu eins og ég hef reynt."
Ekki bofs frá stjórnvöldum
Aron er viss í sinni sök þegar hann
er spurður um hvað honum finnist
um þá ákvörðun íslenskra
stjórnvalda að veita Bobby ríkisborg-
ararétt hér á landi og þar með frelsa
hann úr fangelsi í Japan, en þetta em
sömu stjómvöld og gáfust upp á að fá
sinn eigin ríkisborgara lausan í Texas.
„Ég er ekki frægur," segir Aron. „Það
er auðvitað ástæðan. Ég kem ekki
auga á neitt annað," bætir hann við.
Aron tekur sem dæmi af sínu máli
að þrátt fyrir þann tíma sem hann
hafi setið í stofúfangelsi ytra hafi ekki
einn einasti ráðamaður á íslandi §ett
sig í samband við hann persónulega.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Bama-
vemdarstofu, hafi þó gert sitt til að
aðstoða hann og fyrir það þakkar
Aron:
„Mér finnst erfitt að sætta mig við
að þeir sem ráða á íslandi skuli gefast
upp á máli mínu, nógu mikil hafa
vonbrigðin nú verið samt."
Fangelsi Aron Pdlmi býr íþessu húsi við
Aima-stræti I bænum Beaumont ÍTexas
Héðan fer hann ekki nema í búð og
þvottahús, annars verður hann snariega
senduri rammgirt fangeisi Texas-fylkis.
Skrifar sögu sína
Aron er með staðsetningartæki
fest við ökkla sinn og fylgst er með
öllum ferðum hans. Hann má aðeins
yfirgefa hús sitt til að fara í búð og
þvottahús, annað ekki. Virði Aron
þetta ekki bíður hans fangelsi að
nýju.
„Ég fer því ekki langt og er mest
j Ekki nógu frægur
j Aron segir vonina um
I að komast heim til fs-
lands óneitanlega hafa
minnkað þegar hann sá
Bobby Fischerkoma til
! landsins ! óþökk Banda-
rikjamanna.„Þeir vildu
ekki stíga á tærnar á
þeim fyrir mig en gerðu
þaðfyrir Bobby," segir
Aron Pálmi.
„Mér finnst erfitt að
sætta mig við að þeir
sem ráða á íslandi
skuli gefast upp á
máli mínu."
heima við að lesa," segir þessi tvítugi
íslendingur sem þessa dagana les
ævisögu Bills Clinton, sem hann
kveðst telja góðan mann og merki-
legan. Hann lætur þó ekki þar við
sitja heldur vinnur nú að eigin ævi-
sögu:
„Ég notaði skriftirnar fyrst til að
koma frá mér hugsunum þegar mér
leið sem verst en ákvað svo að segja
sögu mína og ætla að reyna að fá
hana gefna út á íslandi þegar ég
kemst heim.“
„Joan hjálpar mér ekki"
Fyrir stuttu síðan virtist sem nýj-
ar dyr í átt til frelsis væru að opnast
fyrir Aroni Pálma. Frænka hans
náði þá tali af sjónvarpsstjömunni
amerísku Joan Rivers, sem mun
hafa boðist til að skoða máhð. Aron
hefur litla trú á því að hún eða
fylgdarmenn hennar úr sjónvarps-
þætti Opruh Winfrey geti hjálpað
honum.
„Fólk heima verður að skilja að
hér í Ameríku gerir fólk ekki greinar-
mun á börnum og fullorðnum, hér
vilja menn að eitt gangi yfir alla og
menn séu lokaðir inni og lyklunum
hent,“ segir Aron, sem heldur þó í
vonina um að íslensk stjómvöld gef-
ist ekki upp, annað megi þau hrein-
lega ekki.
heigi@dv.is
Nánar verður fjallað um málefni Arons
Pálma i Helgarblaði DV á morgun.
Gaf Félagi framhaldsskólakennara vikufrest
Ólína hefur enn ekki kært
Nýjar slóðir fyrir Strætó bs. í sigtinu
Strætóferðir á Akranes
Ólína Þorvarðardóttir, skóla-
meistari Menntaskólans á ísafirði,
hefur enn ekki kært Félag framhalds-
skólakennara fyrir að lýsa ástandinu í
skólanum fyrir menntamálaráðu-
neytinu. Félagið greindi ráðuneytinu
frá ógnarstjóm sem ríkti innan skól-
ans og fjölda tilkynninga um ástand-
ið frá kennurum í von um lausnir.
Ólína sagði lýsingu félagsins æm-
meiðandi og vildi kæra það á grund-
velli hegningarlaga. Greint var frá því
í Ríkisútvarpinu 22. mars að hún gæfi
félaginu vikufrest til að biðjast afsök-
unar og draga ásakanimar til baka,
eOegar færi menntaskólinn í mál við
félagið.
Enn bólar ekki á lögsókninni.
„Hún hefur ekki kært mér vitanlega,"
segir Elna Katrín Jónsdóttir, sem tel-
ur yfirlýsingar í fjölmiðlum ekki bind-
andi.
Björn Jóhannesson, lögmaður
menntaskólans, segist heldur ekki
Ólfna Þorvarðardóttir Skóiameistarinn
gafframhaldsskólakennurum vikufrest til að
biðjast afsökunar.
kannast við slíka lögsókn.
Steingrímur Sigurgeirsson, að-
stoðarmaður Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur menntamálaráð-
herra, hefur ekki svarað skilaboðum
vegna málsins. Bréf féjagsins var sent
til ráðuneytisins 15. febrúar og ítrek-
að 22. mars. Enn hafa engin viðbrögð
borist frá ráðherra eða ráðuneytinu
vegna bréfanna frá Félagi framhalds-
skólakennara.
Á fundi atvinnu-
málanefndar Akra-
ness á miðvikudag-
inn var rædd tillaga
um að bæta Akra-
nesi inn í leiðarkerfi
Strætó bs. Guðni
Tryggvason, for-
maður nefndarinn-
ar segir þessa til-
lögu vera jákvæða
fyrir Akurnesinga.
„Þetta væri fyrst
og ffernst sparnað-
ur fyrir allan þann
fjölda sem býr hér en þarf að sækja
skóla eða vinnu til Reykjavíkur. Ætla
má að um 7% af vinnufærum ein-
staklingum héma sæki vinnu í bæ-
inn fyrir utan alla sem sækja skóla
þangað," segir Guðni. Hann segir
þetta ekki bara vera gott fyrir Akur-
nesinga heldur líka þá sem búa í
Reykjavík en vinni á Skaganum.
„Leiðin hefur verið
tímamæld og frá Akra-
nesi í Háskóla íslands
er tæpur klukkutími
sem er svipaður tími
og tekur marga sem
búa á höfuðborgar-
svæðinu að komast til
vinnu sinnar. Með
bættum samgöngum
má síðan búast við að
þessi tími styttist,"
segir Guðni. Atvinnu-
málanefnd mun leggja
tillöguna fyrir bæjarráð
í dag.
Gert er ráð fyrir að samgöngur-
nar hefjist frá og með næsta hausti
og verður leiðin til reynslu í ákveð-
inn tíma. Ef vel reynist mun hún síð-
an bætast við leiðarkerfið til fram-
búðar. Farþegar milli Akraness og
Reykjavíkur munu njóta sömu kjara
og aðrir farþegar.
Strætó Akurnesingar komast með
strætó tii Reykjavikur á innanbæjar-
fargjaldi.