Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2005, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2005, Side 18
Heimilið Verðu-m- með n'tfjar várur frá-/frryfa- Mifrfð úrvaJ af ú'tffj&yu-m' Ptfrrr hefrwtfT) ry yu'marhúyfó fjyl Ljósin íbænum H SUDURVERI StigahUö 45 105 Reykjavík Sími 553 7637 Opið: Virkadaga kl.10.00 tll 18.00, Laugardaga kl.11.00 til 16.00 GLUGG-INN i; á k a fc n i • ■' 1 1 , op'iíS t V- I <«. siitiHti i 2 Þó svö að Grænland sé nálægt okkar eru tiltölulega fáir íslendingar sem leggja leið sína þangað í þeim tilgangi að skoða land og þjóð. Efla þarf tengsl íslands og Grænlands „Á sýningunni Sumar 2005 ætlum við að kynna starfsemi fé- lagsins og ferðir til Grænlands, þó svo að við erum ekki ferðaskrif- stofa," segir Benedikta Thorsteins- son formaður Kalaks, vinafélag Grænlands og íslands. „Okkar vinna snýst um að kynna Græn- land á íslandi og svo að kynna ís- land fyrir Grænlendingum," segir Benedikta. „Við viljum auka tengsl þessara nágrannaþjóða og þekk- ingu okkar hvort á öðru.“ Kjörið tækifæri Flugfélag fslands mun í sumar bjóða upp á flug til tveggja áfanga- staða á Grænlandi. Flogið verður til Kulusuk í austurhluta landsins á hverjum degi og tvisvar í viku til suðurhluta Grænlands. „Þarna er kjörið tækifæri fyrir íslendinga að kynnast Grænlendingum, fólkinu og menningarheiminum. Flestir þeir sem hafa heimsótt Grænland hafa komið til Kulusuk og hafa af þeirri reynslu myndað sér ákveðna skoðun á landinu. Það er bara svo miklu meira, enda er Kulusuk ein- ungis lítið þorp á austurströnd landsins. Það væri álíka ef Græn- lendingur kæmi aðeins til Raufar- hafnar og myndaði sér skoðun á öllu íslandi út frá því,“ segir Bene- dikta. Okkar vinna snýst einnig um að efla menningartengsl, til dæmis með því að flytja listamenn á milli landanna. Hera vildi mjög gjarnan fara til Grænlands síðasta sumar og spila en það gekk ekki upp. Það mun þó vonandi takast með vor- inu. Okkar hlutverk er þá að finna: staði sem vilja taka á móti slíkum listamönnum og skaffa húsnæði fyrir tónleikahald." Fyrirmyndarland Benedikta segir að íslendingar viti almennt ekki mjög mikið um Grænland og Grænlendingar mættu sömuleiðis vita meira um ísland. „Grænlendingar líta þó á ísland sem ákveðið fýrirmyndar- land, þeir hafa litið til þeirra að- ferða sem íslendingar hafa notað á mörgum sviðum og tekið sér það til eftirbreytni." eirikurst@dv.is Jón Ari Eyþórsson starfsmaður í Tengi segir engu líkt að hvíla sig í vönduðum heitum potti. „Reynsla sem lætur engan ósnortinn" „Þessir pottar sem við erum með eru mjög hljóðlátir og það er engu líkt að hvfla sig í þeim á kvöldin, upphfa náttúruna til fullnustu með því að hlusta á fuglasöng eða horfa á stjörnurnar eða eyða notalegri stund með einhverjum sem manni er kær,“ segir Jón Ari Eyþórsson starfsmaður hjá versluninni Tengi, sem þekkt er fyrir að veita góða þjónustu og bjóða upp á vandaðar vörur. „Þeir pottar sem við erum með eru svokallaðir lúxuspottar en úrval- ið er það fjölbreytt að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, enda leggjum við mfldð upp úr því að koma til móts við óskir viðskipta- vina okkar. Eiginlega finnst mér pottar ekki rétmefni yfir þá vöru sem við erum með," segir Jón Ari með nokkrum gáska. „Orðið einkaheilsu- lind á mikið betur við, reynslan af þeim lætur engan ósnortin. Þetta verður eitthvað sem líkam- inn kallar á vegna þess hann finnur að þetta gerir honum gott. Það er eins með þann sem er vanur að fara í heitan pott á kvöldin, löngunin togar alltaf í hann því það er eitt- hvað óviðjafnanlegt við hvfldina sem notalegt vatnið veitir og þar að auki er þetta ávísun á betri og værari svefn þegar upp í rúm er komið," segir Jón Ari á afar sannfærandi hátt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.