Freyr - 01.11.1946, Blaðsíða 4
Di(L
i^nmn^
til vciðíréttareigenda og' veiðimanna.
Athygli veiðiréttareigenda og veiðimanna um land allt skal vakin á
því, að samkvæmt lögum nr. 112 1941, um lax- og silungsveiði, er vatnasil-
ungur, annar en murta, friðaður fyrir allri veiði nema dorgar- og stang-
arveiði frá 27. sept. til 31. janúar ár hvert. Samkvæmt sömu lögum er
göngusilungsveiði aðeins leyfð á tímabilinu frá 1. apríl til 1. september og
laxveiði um þriggja mánaða tíma á tímabilinu frá 20. maí til 15. sept-
ember. Mönnum er óheimilt að gefa, selja, kaupa, þiggja eða taka við
eða láta af hendi lax- og göngusilung á tímabilinu frá 20. september til
20. maí ár hvert, nema að sannanlegt sé, að þessar fisktegundir hafi ver-
ið veiddar á lögleyfðum tíma. Brot gegn umræddum ákvæðum varða
sektum.
\ eiðimá last j ór i.
Gamlir árgangar FREYS
Fyrstu 20 árgangar Freys eru nú þrotnir, en það sem til er samstætt
eða 20 árgangar samtals, frá árunum 1925—1945, fæst fyrir kr. 45,00 auk
burðargjalds.
Sendið pantanir sem fyrst, því að nokkrir af þessum árgöngum eru
senn á þrotum!
Afgreiðsla Freys,