Freyr - 01.11.1946, Blaðsíða 24
324
FRE YR
meira kjötmagn í landinu, en verðlags-
nefnd landbúnaðarafurða hafði reiknað
með, og var talið að verðJ'öfnunargjald
hefði þurft að vera hærra.
Varðandi verðjöfnunargjald þessa árs
kom fram svohljóðandi tillaga, er sam-
þykkt var með öllum atkvæðum:
Búnaðarráð samþykkir að verðjöfnunargjald á
kindakjöti af þessa árs framleiðslu megi verða allt
að kr. 1,50 pr. kg.
Á fundunum kom fram erindi þess efnis,
að framvegis yrði leyft að selja mjólk og
mjólkurvörur úr Dalasýslu á verðjöfnun-
arsvæði Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. í
þessu sambandi kom fram svohljóðandi
tillaga:
Búnaðarráð samþykkir að mjólkurverðlagssvæði
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar verði fært út og að
Dalasýsla verði innan þessa verðjöfnunarsvæðis
hér eftir. Bændur í Dalasýslu verði starfandi inn-
an Mjólkursamlags Borgarfjarðar.
Tillaga þessi var samþykkt með öllum
atkvæðum.
Svohljóðandi tillaga var borin fram og
samþykkt með 20 samhljóða atkvæðum:
Út af bréfi atvinnumálaráðuneytisins frá 17.
des. 1945. þar sem óskað er umsagnar Búnaðarráðs
um þingsályktunartillögu um skipulag á fram-
leiðslu kindakjöts fyrir innlendan markað, ályktar
Búnaðarráð að nauðsynlegt sé að hefja undirbún-
ing að skipulagningu landbúnaðarframleiðslunnar
og beinir þeirri áskorun til Alþingis og ríkisstjórn-
ar, að skipuð sé nefnd til endurskoðunar afurða-
sölulaganna og heildar athugunar á framleiðslu-
málum landbúnaðarins. Hafi nefndin lokið störf-
um svo fljótt, að Alþingi geti gengið frá nýrri lög-
gjöf um þessi mál fyrir næsta verðlagsár.
Telur Búnaðarráð eðlilegt að þessi endurskoðun
fari fram í sambandi við 11. gr. laga um verð-
lagningu landbúnaðarafurða frá 19. marz 1946.
Nefnd sú sem fjallaði um hagnýtingu
markaða m. fl. bar fram eftirfarandi til-
lögur, sem allar voru samþykktar í einu
hljóði:
a. Búnaðarráð beinir þeim tillögum til verðlags-
nefndar, að hún beiti sér fyrir því við ríkis-
stjórn og S. í. S. að gerðar verði ýtarlegar til-
raunir um hraðfrystingu kindakjöts og slátur-
afurða, bæði fyrir innlendan og erlendan mark-
að og öflun markaða innanlands og utan.
b. Búnaðarráð beinir því til verðlagsnefndar að
hún beiti sér fyrir því að framkvæmdar verði
hið fyrsta bætiefnarannsóknir á íslenzku dilka-
kjöti, svo og gildi þess að öðru leyti sem fæðu.
Telur ráðið í því efni rétt, að leitað verði til dr.
Skúla Guðjónssonar, sem hins þekktasta fræði-
manns í þeim efnum.
c. Búnaðarráð beinir til verðlagsnefndar eftirfar-
andi, varðandi markaðsöflun fyrir mjólkur-
afurðir:
1. að hafin verði ýtarleg rannsókn á því, á
hvern hátt bezt muni vera að greiða fyrir
innanlandssölu á ostum t. d. með fram-
leiðslu fleiri ostategunda, auglýsingum
o. þ. h.
2. að betur verði nýttir ýmsir markaðsstaðir
fyrir mjólk og mjólkurafurðir, en hingað
til hefir verið.
3. að hafin verði rannsókn á því, hvort tiltæki-
legt sé að koma hér á framleiðslu þurkaðs
ostefnis til iðnaðar innanlands og utan.
4. að beita áhrifum sínum til þess að fyrirskipað
verði, að eingöngu verði notað smjör til
viðbits í sjúkrahúsum, veitingahúsum og
öðrum opinberum matsölustöðum.
Nefnd sú, er gera átti tillögur um gæöa-
flokkun og verðflokkun landbúnaðaraf-
urða, lagði fram svohljóðandi álit:
a. Flokkun kindakjöts:
1. Búnaðarráð telur ekki æskilegt eða heppi-
legt að breyta þeim lögum og reglum, sem
um það gilda, en telur nauðsynlegt að meira
samræmi náist í framkvæmd þeirra, sérstak-
lega að því er snertir gæðamatið. Vill ráðið
í því sambandi benda á, að það telur nauð-
synlegt að efna til námsskeiða fyrir kjöt-
matsmenn í landinu, svo oft sem föng eru á
og telur æskilegt að beitt verði áhrifum til
að fá því máli framgengt. Að því er snertir
mat á stórgripakjöti, telur Búnaðarráð að