Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1946, Blaðsíða 26

Freyr - 01.11.1946, Blaðsíða 26
FftEÝIi 32é það mál sé ekki nægilega undirbúið til þess að gera ákveðnar tillögur í því, en vill beina því til verðlagsnefndar að undirbúa það og framkvæma, eftir því sem hún telur fært og heppilegt. 2. Mat á mjólk og mjólkurafurSum: Búnaðarráð sér ekki ástæðu til að gera neinar tillögur til breytinga í því efni. þar sem ráðið telur, að það mál sé í góðum höndum sem er mjólkurbúanna, sem ráðinu er kunnugt um að vinna að áframhaldandi umbótum á því sviði með bættum og auknum tækjum og með hlið- sjón af þeirri reynslu, er þau fá með ári hverju. 3. Búnaðarráði er kunnugt um það, að mat á kartöflum er þegar komið til framkvæmda í nokkrum kaupstöðum landsins, en telur æski- legt, að slíkt mat næði yfir allar kartöflur sem seldar eru í landinu. Mat á grænmeti er nú í höndum gróðurhúsanna, sem það framleiða og er það samræmt fyrir milligöngu sölumiðstöðva þeirra. Telur Búnaðarráð að líku máli sé að gegna um það, sem mat á mjólk og mjólkur- afurðum og sér því ekki ástæðu til að gera nein- ar tillögur 1 því efni. Hinsvegar vill Búnaðar- ráð benda á það, að æskilegt væri að komið yrði á mati á gulrófum sem ætlaðar eru til sölu, og ákveðið verðlag á þeim. 4. Um mat á ull og gærum sér Búnaðarráð ekki ástæðu til, eða tök á að gera tillögur til breyt- inga, en telur það gleðiefni að verkun á ull er nú óðum að færast í betra horf en áður var. Allar þessar tillögur voru samþykktar með samhljóða atkvæðum. í sambandi við víðtækar umræður um kjötsölufyrirkomulag á árinu 1945—46 var eftirfarandi samþykkt með samhlíóða at- kvæðum: Að gefnu tilefni beinir Búnaðarráð eftir- farandi til verðlagsnefndar: 1. að stefnt verði að því, að kjötbirgðir verði að íullu seldar, er slátrun hefst næsta haust. 2. að haga svo ákvörðun verðjöfnunargjalds. að tryggt megi telja, að verðjöfnunarsjóður hrökkvi til útgjalda þeirra, er á hann verða lögð, svo að ekki þurfi að færa milli ára halla, eins og nú. 3. að vinna að því að ríkissjóður greiði halla þann, er orðið hefir hjá verðjöfnunarsjóði á þessu ári. 4. Verði svipað fyrirkomulag og nú er um niður- greiðslur á kjöti til neytenda, en kjötbirgðir of miklar, er líður á næsta vor, til sölu á venjuleg- um innanlandsmarkaði, og útflutningsverð ekki hærra en nú. verði bændum gefinn kostur á að kaupa fyrir ekki hærra verð en neytendur bæj- anna raunverulega greiða, allt að því magni er annars yrði að selja fyrir lægra verð á erlend- um markaði. Ætti slíkt að gera hvort tveggja í senn: auka innanlands neyzluna að miklum mun og um leið stuðla að hærra meðalverði en fást mundi, ef útflutningur yrði mjög mikill. Þá var eftirfarandi tillaga samþykkt meö 18 samhljóða atkvæðum: Búnaðarráð telur að fyrirkomulag á niðurgreiðslu kjötverðs til neytenda á framleiðslu ársins 1945, hafi verið óheppilegt og dregið verulega úr sölunni, þar sem bæði að ákvörðunin kom of seint fram, svo og hitt að verulegur hluti þjóðarinnar var úti- lokaður frá hlutdeild í niðurgreiðslu, ásamt því að engin trygging er fyrir því, að allir þeir sem niður- greiðslu njóta neyti kindakjöts. Beinir Búnaðarráð því eindregið til verðlagsnefndar að beita sér fyrir því að þetta endurtaki sig ekki, heldur verði á- kvæðin um niðurgreiðslu birt samtímis verðalgs- ákvörðuninni og að niðurgreiðsla nái jafnt til neyt- enda í landinu og verði framkvæmd með einskon- ar skömmtunarfyrirkomulagi. Svohljóðandi tillaga í tveimur liðum var samþykkt: Búnaðarráð beinir því eindregið til verðlags- nefndar, að svo miklu leyti sem henni er mögu- legt, að fá því framgengt: 1. að verðskrá landbúnaðarafurðir í haust í sam- ræmi við sex-mannanefndarálitið, að við- bættum öllum hækkunum, er síðan hafa orðið samkvæmt landbúnaðarvísitölu, þar með talin vísitöluhækkun ársins 1944, 9,4%, sem felld , var niður þá og síðan. 2. að beita sér fyrir því við ríkisstjórnina og Al- þingi, að útflutningsuppbætur fáist greiddar á þann hluta kjöts og mjólkurafurða, sem þurfa kann að flytja úr landi, svo að bænd- ur geti fengið fyrir þessa vöru fullt sex- mannanefndarverð, ásamt vísitölu.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.