Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1946, Blaðsíða 37

Freyr - 01.11.1946, Blaðsíða 37
Vinur mannsins og félagi. Einn traustasti máttarviðurinn hefir þú verið í menningarlífi þjóðarinnar og þróun í þúsund ár. ^öorfntr góðí^íar eftir ÁSGEIR JÓNSSON frá Gottorp, stílsnillinginn næstum sjötuga. Hér Itafa bjargazt á síðustn stundu merkustu sagna- þættir er þjéðin á í fárusn símim um norðlenzka góðhesta. Síðan dr. Broddi Jóhannesson flutti í útvarpið á síðastliðnum vetri þáttinn um Nótt á Svignaskarði, og þjóðinni þar með gefinn kostur á að kynnast þáttum þessum, hefir útkomu þeirra verið beðið með mikilli eftirvæntingu um land allt. Vegna erfiðleika á útvegun pappírs, er upplag bókarinnar mjög lítið, og ættu menn því að tryggja sér hana strax í dag. Bókin er 407 bls. í stóru broti, auk mynda af ýmsum mönnum og hestum. í eftirmála segir höfundurinn m. a.: .. Hestarnir hafa borið okkur á sínum fimu og styrku fótum frá vöggunni til grafarinnar .... Feður og mæður okkar hittust á hest- baki við hoppandi og hljómfagra lækinn eða við kyrrlátu lindina í faðmmjúka blöm- hvamminum, þar sem Freyjukettir og ástarguðir með sínum töfrasprotum settu á hreyf- ingu þær magnþrungnu kenndir, sem sameina karl og konu og sköpuðu nýtt líf, nýjan blómknapp .. Þá var nú alkunna þeysireiðin og þrekraunin fyrir hestana, þegar amma lagðist á sæng og von var á, að nýr íslendingur bættist í búið. En þá reyndi nú fyrst á fjör og þrek hestanna, þegar börnin lögðust í barnaveiki eða afi í lungnabólgu, og þetta gerðist innst inni í afdölum og heiðabýlum um hávetur við fannkingi, umbrota færð, stórhríðar og jökulvötn .... Og að lokum: Ekki varð komizt af án aðstoðar hest- anna við það kyrrláta ferðalag, þegar afi og amma voru flutt síðasta áfangann ....“. Það hlýíisr að vera hjartiir geislahasigiir um legstað þessarra horfira góðhesta. „Kona gekk frá hesthúsinu heim að bænum með fötu í hendi .... hún kom frá því að kveðja vininn sinn hinztu kveðju .... og sólin brosti gegnum þokutjaldið, eins og hún vildi senda geisla sina í kveðjuskyni yfir þetta fræga fallna náttúrubarn, sem hún hafði alið og fóstrað og gefið lífsmagn til hinztu stundar“. Nú eru þeir horfnir, þessir yndislegu vinir, en minning beirra er skráð, sem einn dýrmætasti gimsteinn íslenzkra bókmennta. AÐALÚTSAIiA XOBÐBA H.F. Pósthólf 101 — Reykjavík.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.