Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1946, Blaðsíða 16

Freyr - 01.11.1946, Blaðsíða 16
316 FREYR Norðurlandabúa. Veldur því skortur á vinnuafli, einkum við landbúnaðarstörf. En ráðninga- og ferðaskrifstofur land- búnaðarins á Norðurlöndum hafa nú tekið upp þá starfsemi, sem lá kyrr á stríðsár- unum, að hlutast til um ferðir og dvalir ungra manna og kvenna á vixl milli landanna. Hefir Búnaðarfélagi íslands boðizt hlut- deild um þátttöku í þessari starfsemi, og er því þess að vænta, að með milligöngu Búnaðarfélagsins annars vegar og hinna nefndu opinberu stofnana hins vegar, verði hægt að sinna óskum nokkurra bænda, er hyggja að ráða til sín Norð- urlandabúa til landbúnaðarstarfa. Ferða- skrifstofurnar rannsaka ætið gaumgæfi- lega alla pappíra þeirra hlutaðeigenda, sem óska að ráðazt á vegum þeirra og senda ekki úr landi aðra en þá, sem hafa hæfi- leika í samræmi við þær kröfur sem gerð- ar eru. Þá hefir og Dansk-íslenzka félagið í Kaupmannahöfn í hyggju að annast milligöngu um ráðningu Dana hingað ef ástæður leyfa eins og gerðizt á árunum fyrir stríð. En hvernig sem hlutunum verður ráðstafað á þessu sviði, þá er eitt víst, að fyrirætlanir og ákvarðanir geta allar að engu orðið nema unnið sé að mál- unum með nokkrum fyrirvara. Sambands Nautgriparæktarfélaga Eyjafjarðar. Fyrir 10 árum hófst starfsemi sú á Norðurlöndum, sem nefnd hefir verið „gervisæðing búfjár“. Starfsemi þessi hef- ir á nefndum slóðum rutt sér mjög til rúms og beint allri kynbótastarfsemi í nýja farvegu. Hún er í því fólgin, að all fjölbrotin tækni er notuð til þess að safna sæði karldýranna, varðveita það undir á- kveðnum heppilegum geymsluskilyrðum og skipta því í smáskammta til sæðingu kvendýranna. Á þennan hátt er hægt að hagnýta af- burða skepnur til kynbóta miklu betur en ella. Hrúturinn eða nautið geta á þenn- an hátt eignast langtum fleiri afkvæmi en ef náttúrleg frjóvgunaraðferð er notuð. Starfsemi sú, sem hér um getur, hófst í Danmörku árið 1936 og hefir náð svo mik- illi útbreiðslu þar í landi, að talið er að um 500 þúsund kýr muni frjóvgaðar með gervisæðingu árið 1946. Höfðu dýralæknar framkvæmdir með höndum fyrstu árin, en nú eru búfræði- kandidatar og eftirlitsmenn nautgripa- ræktarfélaganna menntaðir til starfsem- innar. Á öðrum Norðurlöndum er gervifrj óvgun einnig hafin, en hvergi svo langt á veg komin sem í Danmörku. í Englandi, Rúss- landi og Ameríku er þessi kynbótastarf- semi einnig orðin all útbreidd. Tveir íslenzkir búfræðikandidatar hafa numið sérstaklega þau störf er tilheyra hlutverkum þeim, sem tengd er þessari ný- tízku-kynbótastarfsemi. Hjörtur Eldiárn nam störf þessi í Englandi en Sverrir Arn- grímsson í Danmörku. * *

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.