Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2005, Page 20
20 MÁNUDAGUR 2. MAÍ2005
Sport DV
DV Sport
MÁNUDAGUR 2. MAÍ2005 21
Eiður Smári Guðjohnsen og félagar hans í Chelsea tryggðu
sér enska meistaratitilinn í íyrsta sinn í flmmtíu ár á laugar-
daginn þegar liðið bar sigurorð af Bolton, 2-0, á Reebok-
leikvanginum, gamla heimavelli Eiðs Smára. Chelsea hefur
nú fjórtán stiga forystu á Arsenal sem getur aðeins fengið
tóK stig úr þeim íjórum leikjum sem liðið á eftir. Það var
miðjumaðurinn frábæri Frank Lampard sem skoraði bæði
mörk Chelsea í leiknum. Eiður Smári var í byrjunarliði
Chelsea en fór af velli fimm mínútum fyrir leikslok. Eiður
Smári er fyrsti íslendingurinn sem verður meistari í
Englandi og nær jafnff amt að spila þá tíu leiki sem krafist er
að menn spili á tímabili til að fá verðlaunapening. Sigurður
Jónsson var í meistaraliði Arsenal árið 1991 en spilaði
aðeins tvo leiki.
Eiður Smári var að vonum í
skýjunum eftir leikinn og hrósaði
Rússanum Roman Abramovich,
hinum moldríka eiganda Chelsea,'
í hástert en Roman var mættur til
Bolton til að fagna meistaratitlin-
um með sínum mönnum.
„Ég held að sú staðreynd að
hann sé mættur hér í dag segi
meira en mörg orð og sýni glöggt
hversu sterkar tilfmningar hann
ber til okkar og félagsins. Þetta er
ekki eingöngu áhugamál hjá hon-
um heldur leggur hann hjarta sitt
í þetta. Hann er áhugamaður um
knattspyrnu og mikill stuðnings-
maður Chelsea," sagði Eiður
Smári sem vildi þó ekki fagna of
mikið vegna leiksins mikilvæga
gegn Liverpool í meistaradeild-
inni á Anfíeld Road á þriðjudag-
„Þegarvið þurft-
um að berjastþá
börðumst við.
Þegar við þurftum
að spila þá spiluð-
um við. Þegar við
urðum að þjást þá
þjáðumst við, en
við gerðum þetta
alltsaman,"
ínn.
„ÞetöT er örugglega stærsta
stundin á ferlinum og jafnvel líf-
inu öllu, en við munum bara
fagna hér. Síðan taka við rólegheit
og á morgun snýst aUt um leikinn
gegn Liverpool," sagði Eiður
Smári.
Skuldaði mark
Frank Lampard, hetja Chelsea
í leiknum, sagðist ætla að muna
eftir þessu aungabliki það sem
eftir lifði ævinnar, en hann skor-
aði bæði mörk liðsins gegn
Bolton.
„Mér fannst ég skulda stuðn-
ingsmönnum mark eftir færið
sem ég brenndi af gegn Liverpool
í vikunni. Þetta var besta leiðin til
að borga þeim til baka. Við vild-
um vinna deildina fyrst en núna
viljum við vinna Liverpool. Þetta
er augnablik sem ég mun varð-
veita allt mitt líf. Það er mikiU létt-
ir að vinna titilinn eftir fimmtíu
ár, bæði fyrir smðningsmennina
og aUa aðra," sagði Lampard.
John Terry fyrirUði Chelsea,
sem var á dögunum vafínn knatt-
spymumaður ársins í ensku úr-
valsdeUdinni af félögum sínum í
deUdinni, var í sjöunda lnmni og
sagði titilinn vera fyUUega verð-
skuldaðan.
„Þetta er það stórkostlegasta
sem ég hef uppUfað. Þetta hefur
verið löng fæðing, stuðnings-
mennirnir hafa beðið lengi og
þeir eiga þetta svo
sannarlega skUið.
Við byrjuðum ekki
vel og fengum að
heyra það ffá stjór-
anum. Við brugð-
umst hárrétt við.
Þetta er frábært, stór-
kostlegt," sagði Terry.
Sérstakur hópur
Máðurinn á bak við
meistaratitilinn, portú-
galski knattspymustjórinn
Jose Mourinho, fór ekki dult
með ánægju sína þegar titiU-
inn var í höfn. Þessi snjaUi
stjóri hefúr byggt upp gífur-
lega öflugt lið frá því hann
tók við Uðinu síðasta sumar
og hefur þegar skUað
tveimur titlum í hús.
„Hópurinn okkar er
sérstakur hópur og hann
á þetta skUið. Það getur
enginn sagt að við höf-
um ekki átt þetta skiUð.
Við vorum frábærir,
bæði leikmenn og
stuðningsmenn. Enginn á
þennan titU meira skUið en
leikmennirnir en ég er
einnig ánægður fyrir hönd
stuðningsmannanna, sér-
staklega þeirra sem hafa
aldrei séð Chelsea hampa
titlinum. Það var ekki auð-
velt að fara þá leið sem við
fórum að titlinum. Leikmenn-
irnir komu frá mörgum mismun-
andi stöðum en áttu metnaðinn,
hugarfarið og hungrið sameigin-
legt. Við hittumst fyrst í júlí og frá
því augnabliki höfiun við búið tU
eitthvað sérstakt. Þegar við þurft-
um að berjast þá börðumst við.
Þegar við þurfium að spUa þá
spUuðum við. Þegar við urðum að
þjást þá þjáðumst við, en við
gerðum þetta afít saman," sagði
Mourinho og bætti við að hann
vUdi vera eins lengi hjá Chelsea og
hann gæti.
„Hjarta mitt er hjá félaginu og
ég vU vera hér eins lengi og ég
get," sagði þessi frábæri stjóri.
Titlinum fagnað EiðurSmári sésthérfagna titlinum ásamtfélögum sínum íChelsea á Reebok-
leikvanginum iBolton á laugardaginn.
Nordic Photos/Getty Images
meistari
Lokaúrslitin um íslandsmeistarabikar karla í handbolta hófust á Ásvöllum á laugardaginn
Flott byrjun á úrslitaeinvíginu milli Hauka og Eyjamanna
Haukar héldu sigurgöngu sinni
áfram í handboltanum með því að
vinna fyrsta úrslitaleikinn við ÍBV,
en sigurinn var eins naumur og
hægt er, aðeins eitt mark skUdi liðin
að eftir jafnan og spennandi leik.
Varamarkvörður Haukanna, Jónas
Stefánsson, tryggði endanlega sigur-
inn sjö sekúndum fyrir leikslok með
því að verja þrumskot frá stórskytt-
unni Tite Kalandaze, sama manni og
hafði fyrr í leiknum skorað tíu mörk
með langskotum.
Eyjamenn voru að spUa sinn
fyrsta úrslitaleik í sögunni og byrjun
liðsins var mjög góð. Svavar Vignis-
son skoraði fjögur fyrstu mörkin,
þrjú af þeim af h'nunni eftir glæsUeg-
ar sendingar Sigtuðar Ara Stefáns-
sonar og ÍBV var komið þremur
mörkum yfir, 7-10, þegar PáU Ólafs-
son, þjálfari Hauka, tók leikhlé eftir
tæplega 19 mínútna leik.
Við þetta leikhlé náði PáU greini-
lega að skerpa einbeitingu sinna
manna sem unnu síðustu eUefu
mínútur hálfleiksins 8-4 og komust
yfir fyrir hálfleik, 15-14. Þar munaði
miklu um markvörslu Birkis ívars
Guðmundssonar sem varði á þess-
um tíma sjö skot, þar þrjú dauðafæri
og eitt víti. Haukarnir höfðu síðan
aUtaf frumkvæðið í seinni hálfleik og
þótt Eyjamönnum hafi margoft
tekist að jafna leikinn komust þeir
ekki yfir á nýjan leik.
Roland Valur Eradze kólnaði
snögglega eftir að hafa varið 7 af
fyrstu 14 skotum Haukanna og
sóknarleikurinn snerist nánast ein-
göngu um stórskyttuna Tite Kaland-
aze. Roland settist á bekkinn eftir að
9 af fyrstu 10 skotum Hauka í seinni
hálfleik höfðu sloppið fram hjá hon-
um og Jóhann Ingi Guðmundsson
kom með góða innkomu og stopp-
aði fimm sóknir Hauka sem hjálpaði
Eyjaliðinu að halda leiknum jöfnum,
en of mörg klaufamistök f sókninni
sáu þó tU þess að þeir náðu aldrei
frumkvæðinu og Haukarnir lönd-
uðu sigrinum þótt ekki hafi hann
verið sannfærandi í þetta skiptið.
Vignir Svavarsson átti enn einn
stórleikinn með Haukunum, Þórir
Ólafsson nýtti færin sín vel og þeir
Andri Stefan og HaUdór Ingólfsson
tóku af skarið þegar Eyjamenn
klipptu út Ásgeir Öm HaEgrímsson á
hægri vængnum. Andri kom að átta
mörkum í seinni hálfleik þar á með-
al skoraði hann tvö síðustu mörk
Uðsins sem vom afar mikUvæg á
lokamínútunum.
Birkir ívar varði einnig mjög vel,
auk þess sem Jónas leysti hann af í
lokin og gerði það vel.
Hjá ÍBV var Tite Kalandaze í sér-
flokki, Svavar Vignisson var einnig
mjög drjúgur og í raun óstöðvandi á
fyrstu sex mínútunum þegar hann
skoraði fjögur fyrstu mörkin. Aðrir
leikmenn fundu sig ekki eins
vel, þótt Robert Bognar hafi
nýtt færin sín vel.
Annar leikurinn fer fram í
Eyjum á morgun og búast má
við áframhaldandi skemmtun,
Eyjamenn þurfa ekki að bæta
miklu við til að vinna Hauka-
liðið sem mætti tU leiks á
laugardaginn, en eins má búast
við betri leik hjá íslandsmeist-
urunum í næsta leik. ooj@dv.is
Sjö mörk Svavar Vignisson lék vel m<
fyrsta leiknum og skoraði sjö mörk úr
skotum, þar af fjögur fyrstu mörk Eyjc
fyrstu sex mínútunum. DV-m
ÚRVALSDEILD fi
ENGLAND g
Birmingham-Blackburn 2-1
0-1 Steaci (13.), 1-1 Blake (61.), 2-1
Heskey (80.).
Fulham-Everton 2-0
1 -0 John (15.), 2-0 McBride (39.).
Liverpool-Middlesbrough 1-1
0-1 Nemeth (4.), 1-1 Gerrard (52.).
Man. City-Portsmouth 2-0
1-0 Distin (4.), 2-0 Fowler (16.).
Newcastle-Crystal Palace 0-0
Southampton-Norwich 4-3
0-1 Bentley (3), 1-1 Oakley (7.), 2-1
Crouch (20.), 2-2 Higginbotham,
sjálfsm. (31.), 3-2 Le Saux (39.), 3-3
McKenzie (45.), 4-3 Camara (88.).
Bolton-Chelsea 0-2
0-1 Lampard (60.), 0-2 Lampard (76.).
Tottenham-Aston Villa 5-1
1-0 Kanoute (6.), 2-0 King (19.), 3-0
Kanoute (27.), 3-1 Barry, viti (45.),
4-1 Reid (67.), 5-1 Kelly (90.)
Charlton-Man. Utd 0-4
0 -1 Scholes (32.), 0-2 Fletcher (44.),
0-3 Smith (62.), 0- 4 Rooney (67.).
Staðan
Chelsea 35 27 7 1 67-13 88
Arsenal 34 22 8 4 74-33 74
Man. Utd. 35 2110 4 54-21 73
Everton 35 17 7 11 41-36 58
Liverpool 36 16 7 13 49-37 55
Bolton 36 15 9 12 45-41 54
Tottenham36 14 9 13 47-40 51
MBoro 36 131211 51-45 51
Man. City 36 121212 44-37 48
A. Villa 36 121113 43-48 47
Charlton 36 12 9 15 40-55 45
Birmlngh. 36 101214 38-44 42
Blackburn 36 9 1413 31-40 41
Newcast. 35 9 1313 43-53 40
Fuiham 35 10 8 17 42-56 38
Portsm. 36 10 8 18 42-56 38
Snipton 36 6 1317 42-62 31
C. Palace 36 7 1019 37-58 31
WBA 35 5 1515 33-58 30
Norwich 36 6 1218 41-71 30
Korthafar VISA athugið!
Þið eigið kost á bílaleigubíl
frá AVIS á frábæru verði!
i,- vv jrtwfj ?
» .* ’ j t trf&s tL "c'
i k- .f.
Það borgar sig að panta bílinn
áður en lagt er af stað!
Sérkjör á dag erlendis*
Bretiand 2.700 kr. m.v.Biiokk
Danmörk 3.100 kr. m.v. A flokk
Florlda 2.300 kr. m.v.xtiow<
Frakkland 2.500 kr. m.v. A flokk
Italía 2.300 kr. m.v.Bfiokk
Kanarý 1.800 kr. m.v.Afiokk
Spánn 2.100 kr. m.v.Atiokk
Eigir þú von á vlnum eða öðrum gestum að utan,
skaltu benda þelm á að hafa samband vlð Avls
á Islandl og kynna sér þau tllboð sem (boðl eru
á bllalelgubílum. AVIS—speclal eða AVIS-sérverð
er allt sem nefna þarf við sölumann okkar og þú
eða gestir þlnlr fáið okkar hagstæðustu kjör.
ísland kr. 3.500,“ m.v. Aflokk. Iðgm. 7 daga lelga.
(Tlmabll: 1/03 -14/06 & 26/08 - 31/12, 2005)
ísland kr. 5.300,- m.v.Aflokk, lágm.7daoalelBa.
(Tímabll: 15/06 - 25/08,2005)
Einnig tllboð á stærri bilum.
Innifalið í verði erlendis:
Ótakmarkaður akstur, skattur, kaskótrygging, þjófatrygging og
afgrelðslugjald á flugvelll. Ekkert bókunargjald.
7% afsláttur veittur af öðrum flokkum I öllum löndum.
*M.v. 7 daga lágmarkslelgu. Verð háð breytlngum ágengl. Glldirtll 31/03 2006.
www.avls.ls
ViSA
AVIS
Við gerum betur
AVIS Knarrarvogi 2 • 104 Reykjavík • Simi: 591 4000
Fax: 591 4040 • Netfang: avis@avis.is
155/80R13 áður 5.990 nú 3.960 Sækjum og sendum
175/65R14 áður 7.590 nú 5.312 verð frá kr. 850
185/65R15 áður 8.990 nú 6.460
195/70R15 8pr. sendib. áður 13.700 nú 9.435
Ef þú kemur með bílinn í smur hjá Bílkó færðu 25% úfslúií afvinnu!
DEKK BÓN OG ÞVOTTUR SMURÞJÓNUSTA BREMSUKLOSSASKIPTI
PERUSKIPTI RÚÐUÞURKUBLÖÐ SÆKJUM OG SENDUM
Betri verð!
Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110