Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2005, Side 37
r
DV
MÁNUDAGUR 2. MAl2005 37
Það er alltaf viðburður þegar Bruce Springsteen sendir frá sér nýja plötu. Hans þrettánda
plata, Devils And Dust, kom út í síðustu viku og, eins og Trausti Júlíusson komst að þegar
hann kynnti sér hana, er karlinn síður en svo orðinn uppiskroppa með yrkisefhi.
„Þetta er í grunninn lag um íraks-
stríðið frá sjónarhorni hermanns, en
það er hægt að túlka textann á fleiri
vegu," segir Bruce Springsteen í ný-
legu viðtali þegar hann er spurður
um titillag plötunnar Devils And
Dust sem kom út í síðustu viku.
Hann samdi lagið fyrir rúmum
tveimur árum þegar stríðið skall á.
Textinn segir ffá hermanni sem efast
um gjörðir sínar, þrátt fyrir að það
hafi verið marg brýnt fýrir honum að
hann sé í sama liði og Guð. Þetta er
einmitt eitt af einkennum íraks-
stríðsins eins og margra annarra
stríða í mannkynssögunni. Stríðandi
fylkingar telja sig báðar hafa Guð á
sínu bandi.
Devils and Dust-textinn er einn
margra sterkra texta á nýju plötunni.
Hún staðfestir það sem aðdáendur
Bruce hafa lengi vitað, að hann er
fyrst og ffemst góður sögumaður
með hjartað á réttum stað.
Sonur einkaritara og strætó-
bílstjóra
Bruce Springsteen fæddist í Free-
hold í New Jersey 23. september
1949. Móðir hans var einkaritari, en
faðirhans strætóbílstjóri. Bruce fékk
snemma áhuga á tónlist og varð á
unga aldri fyrir miklum áhrifum ffá
Elvis Presley og Chuck Berry. Hann
hóf ferilinn sem trommuleikari en
gafst fljótlega upp á trommunum og
keypti sér rafmagnsgítar. Hann hóf
að semja lög og texta á unglingsár-
unum og var meðlimur í ótal hljóm-
sveitum á árunum 1965 - 1972.
Engin þeirra náði þó að vekja ein-
hverja athygli að ráði.
Hann fékk hins vegar stóra tæki-
færið þegar umboðsmaðurinn hans,
Mike Appel, reddaði honum áheyrn-
arprufu hjá John Hammond, útgáfu-
stjóra Columbia-plötufyrirtækisins.
Þann 3. maí 1972 söng Bruce tólf lög
og spilaði undir á gítar og píanó.
John Hammond kolféll fýrir honum
og gerði við hann samning. Bruce
hefur verið hjá Columbia síðan þá.
Born To Run
Fyrstu tvær plötur Bruce Spring-
steen vöku litla athygli, en með
þeirri þriðju, Born To Run sem kom
út 6. september 1975, sló hann í
gegn. Vinnsluaðferðimar og hljóm-
urinn á plötunni vom undir áhrifum
frá „hljóðvegg" Phils Spector. Hljóð-
færunum var hlaðið inn þangað til
hljómurinn var orðinn þykkur lfkt og
um stórsveit væri að ræða.
Bestu lögin á plötunni, lög eins
og titillagið, Thunder Road,
Backstreets og Jungleland vom
epísk stórvirki, sannkölluð popp-
snilldarverk. Plátan fékk frábæra
dóma og seldist vel. Allt í einu var
Bmce orðinn „framtíð rokksins" og
„arftaki Bobs Dylan" og Time og
Newsweek settu hann á forsíðu í
sömu vikunni í október 1975.
Fjögurra klukkustunda mara-
þonkeyrsla
Vinsældir Bmce Springsteen
náðu hámarki með plötunni Born In
The U.S.A. sem kom út árið 1984.
Þetta er ein mest selda plata níunda
áratugarins og á henni em sjö smá-
skífulög sem öll náðu vinsældum:
Dancing In The Dark, Cover Me,
Bom In The U.SA, I’m On Fire,
Glory Days, I’m Going Down og My
Hometown.
í kjölfar Bom In The U.SA. fór
Bmce á mikið tónleikaferðalag með
hljómsveitinni The E Street Band. Sú
tónleikaferð er margrómuð fýrir þá
ótrúlegu orku sem sveitin bjó yfir.
Bandið spilaði í heila íjóra tfma og
allan tímann var Bmce á fullu á svið-
inu. Höfúndur þessarar greinar var á
einum af þessum tónleikum, í Mont-
pellier í Frakklandi vorið 1985 ásamt
60 þúsund tónleikagestum. Bmce
náði þeim öllum á sitt band og hélt
þeim heitum alla fjóra tímana.
Einföld rokklög með kántrí-
og þjóðlagaáhrifum
Vinsældimar minnkuðu á tíunda
áratugnum, en þær jukust aftur þeg-
ar E Street Band var endurvakið árið
1999. Platan The Rising, sem kom út
fyrir þremur ámm, var fyrsta plata
Bmce með hljómsveitinni í 15 ár.
Hún fékk fínar viðtökur. Það kemur
því svolítið á óvart að hann skuli
ekki nota sveitina á nýju plötunni.
Bmce gerði Devils And Dust með
Brendan O’Brien upptökustjóra og
bassaleikara og Steve Jordan
trommuleikara. Flest önnur hljóð-
færi spilar Bmce sjálfur á. Kassagít-
arinn er áberandi, en það er líka raf-
magnsgítar í nokkmm laganna, og
svo bregður fyrir orgeli, blásturs-
hljóðfærum og strengjum. Það em
órafmögnuð lög á Devils And Dust
þar sem Bmce næstum því hvíslar,
en það em líka einföld rokklög sem
em undir áhrifúm frá kántrí- og
þjóðlagatónlist.
Mörg laganna á plötunni samdi
Bmce á tónleikaferðinni sem hann
fór á í kjölfar The Ghost Of Tom Joad
árið 1996. Önnur em nýrri, t.d. titil-
lagið. Upphaflega tók Bmce bæði
upp reiða rokkútgáfu og kassagítars-
útgáfu af laginu, en var ekki nógu
ánægður. Þá kom Brendan upp-
tökustjóri með hugmynd sem var
eiginlega mitt á milli. Þetta á við um
fleiri lög á plötunni.
Söguraf fólki
Textalega séð er Bmce í miklu
stuði á Devils And Dust. Þetta em
sögur af fólki og örlögum þess eins
og oft áður. Matamoros Banks fjallar
um ólöglegan innflytjenda sem
kemst ekki lifandi yfir Rio Grande,
The Hitter em endurminningar
fyrrverandi boxara og Reno íjallar
um mann sem fer á fund gleðikonu.
í þeim texta er talað um endaþarms-
mök, nokkuð sem varð til þess að
platan er merkt með sérstökum við-
vörunarmiða í Bandaríkjunum.
Fyrsta upplaginu af Devils And
Dust fýlgir DVD-diskur. Á honum
em tónleikaupptökur af nokkrum
laganna ásamt 5,1 hljóðblöndun af
öllum lögunum. Devils And Dust
hefur fengið fína dóma. Rolling Sto-
ne gefur henni t.d. fjórar og hálfa
stjörnu af fimm mögulegum.
Helstu plötur Springsteen
Stúdíóplötur
Greetings From Ashbury Park
N.J. (1973)
The Wild The Innocent and the E
Street Shuffle (1973)
BornTo Run (1975)
Darkness On The Edge Of Town
(1978)
The River (1980)
Nebraska (1982)
Born In The U.S.A. (1984)
Tunnel Of Love (1987)
HumanTouch (1992)
LuckyTown (1992)
The Ghost Of Tom Joad (1996)
The Rising (2002)
Devils And Dust (2005)
Og líka:
Live/1975-1985 (1986) Kassi
með tónleikaefni
Tracks (1998) Kassi með b-hlið-
um og áður óútgefnu efni
Live In New York City (2001)
Ferill Bruce
Springsteen
23. sept. 1949 Bruce Springsteen
fæðist (Freehold (New Jersey
1965 Bruce kaupir sinnfyrsta gftar
hjá veðmangara eftir að hann gafst
upp á þv( að vera trommuleikari.
1965 -1972 Bruce er meðlimur (
hljómsveitunum The Rouges, The
Castiles, Earth, Child, Steel Mill, Dr.
Zoom &The Sonic Boom og Bruce
Springsteen Band sem vekja litla
athygli.
3. mal 1972 Bruce spilar tólf lög
fyrir John Hammond hjá Columbia
fyrirtækinu sem heillast og gerir
samning við hann.
1973 Fyrsta platan, Greetings From
Ashbury Park, NJ., kemur út.
1973 The Wild The Innocent and
the E Street Shuffle kemur út. x
22. ma( 1974 Eftir tónleika Bruce (
Cambridge skrifar blaðamaðurinn
Jon Landau í Rolling Stone: „Ég hef
séð framtíö rokksins. Hún heitir
Bruce Springsteen." Jon gerist
skömmu s(ðar umboðsmaður Bruce.
1975 BornTo Run kemur út og fær
frábæra dóma.
27. okt. 1975 Bruce prýðir forsíður
tímaritanna Time og Newsweek
1976 -1977 Vegna málaferla við
fyrrverandi umboðsmann sinn, Mike
Apple, getur Bruce ekki tekið upp
nýtt efni til að fylgja eftir Born To
Run. Á meðan semur hann lög fyrir
aðra, m.a. BecauseThe Nightfyrir
Patti Smith og Fever fyrir Southside
Johnny.
23. ma( 1978 Bruce fer (fyrstu stór-
tónleikaferðina með hljómsveitinni
The E Street Band.
1978 Darkness On The Edge Of
Town kemur út.
1980 Tvöfalda platan The River
kemur út.
1982 Hin rólega og persónulega
plata Nebraska kemur út.
1984 Born InThe U.S.A. kemur út.
Hún slær (gegn, selst 115 milljón
eintökum og sjö lög komast inn á
topp tíu í Bandaríkjunum. Henni er
fylgt eftir með 15 mánaða fþrótta-
leikvangatónleikaferð. Á henni spila
Bruce og E Street Band sln frægu
fjögurra t(ma maraþonsett.
1986 Hið fimmfalda plötubox
Live/1975-1985 kemur út og selst (
þremur milljónum eintaka.
1987 Tunnel Of Love kemur út.
1989 Bruce segir skilið við E Street *
Band.
9. júní 1991 Bruce giftist Patti Sd-
alfa sem hefur verið (E Street Band
síðan 1984.
1992 Tvær lélegustu plötur Bruce,
HumanTouch og LuckyTown, koma
útsamadag. á
1994 Lagið Streets Of Philadelphia,
sem hljómar í kvikmyndinni Phila-
delphia, slær í gegn og fær fjögur
Grammy-verðlaun og einn Óskar.
1996 The Ghost Of Tom Joad kem-
ur út.
1999 Bruce er tekinn inn í Rock
N'Roll Hall Of Fame. E Street Band
endurvakið.
2002 The Rising kemur út.
2004 Bruce er áberandi (Vote For
Change-samtökunum sem styðja
John Kerry baráttu sinni um
forsetaembætti (Bandarlkjunum.
25. apr. 2005 Devils and Dust kem- t
ur út.