Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2005, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2005, Side 40
r’/OttdOjíOÍ! Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar lafnleyndar er gætt. rfrf (J f) (Jf) (J SKAFTAHLÍÐ24,105REYKJAVÍK [STOFAMÐ 1910] SÍMIS5OSO0O 5 6907101*""" 117 • Sá fáheyrði at- burður átti sér stað á laugardags- kvöldið að rokkkóngurinn Bubbi Morthens sást á ölknæpu Kormáks og Skjaldar. Þetta þykja tíðindi því hörðustu djammarar hafa ekki séð Bubba í bænum áratugum saman. Að öðru leyti er Bubbi í fínasta formi og ný plata á leið- inni. Barði Jó- hannsson í Bang Gang var upptökustjóri og platan sögð sú besta til þessa. Kóngur- inn er því enn á toppnum og að auki kominn á splúnkunýjan Range Rover... Kieíer hlaðinn verkefnum Kærastan starfar riHZ.tfft*- á kaffihúsi Njarðvíkurmærin og módelið Kristín Bára Haraddsdóttir varð landsfræg vegna sambands síns við Hollywood-stjörnuna Kiefer Sutherland á dögunum. Nú bíður hún þess dags að hún heimsæki kærastann en á meðan starfar hún sem gengilbeina á kaffihúsi í Keflavík við góðan orðstír. Reiknað er með að Kristín Bára fari utan í maí að hitta Kiefer. Ekki hefur náðst í Kiefer vegna málsins, en umboðsmaður Kiefers, Steve Don- tevich, kannaðist ekki við stúlkuna þegar hann var spurður um sambandið í síðustu viku. Kiefer hefur nóg að gera um þessar mundir. Samkvæmt heimasíðunni kiefer-rocks.com, sem aðdáendur kappans halda úti, verður gítar sem hann hannaði sjálfur boðinn upp á Hard Rock Café í Los Angeles á morgun. Þá er Kiefer á for- síðu júníheftis tímaritsins Cowboys & Indians. í viðtaíi við tímaritið lýsir hann þeim árum er hann stundaði ótemjureið að hætti kúreka. Einnig lék hann nýverið í auglýsingum fyrir japanskar orkustangir sem heita Calorie Mate. Þá er von á epísk-dramatískri kvikmynd með Ki- efer sem nefnist River Queen og var tekin upp á Nýja-Sjálandi. Og framundan eru tökur á kvik- myndinni The Sentinel þar sem Kiefer leikur á móti Kim Basinger, Michael Douglas og Evu Longoriu. Á meðan sinnir Kristín Bára starfi sínu á kaffí- húsinu af mikilli natni, samkvæmt frásögn gesta, sem hún heillar upp úr skónum. Hún sagði í við- tali við DV fyrir skemmstu að Kiefer væri eins og venjulegur strákur - bara miklu betri. Þau hittust nýverið í New York. „Síðan hringjumst við líka á nokkrum sinnum í viku," sagði hún. Kristfn Bára Haraldsdóttir Heppnasta kona á íslandi þjónar nú til borðs á vinsælu kaffihúsi í Keflavík. Gunnhildur í Djúpu Lauginni gengin út Gunnhildur Helga Gunnars- dóttir, sem stjórnar Djúpu lauginni ásamt Helga Þór Idolsstjörnu, sagði í viðtali á dögunum að það væri kaldhæðnislegt að reyna að koma fólki saman þegar hún væri sjálf á lausu. Ekki þarf snótin að hafa áhyggjur af því lengur því sést hefur til hennar nýverið með há- vaxinn og sterklegan karlmann upp á arminn. Gunnhildur viðkennir treglega að þarna sé á ferðinni nýi maðurinn í lífi hennar. „Hann heitir Árni,“ segir Gunn- hildur feimnislega. „Við erum bara rétt að kynnast þannig að ég vil ekki segja of mikið.“ Gunnhildur segir að hún og Árni hafi kynnst Gunnhildur Helga Gunnarsdóttir Sam- starfsfélagi heillaði hana upp úrskónum eftir að hún byrjaði að vinna á skjánum en samkvæmt heimildum DV vinnur hin heppni herra á aug- lýsingadeild Skjás eins Árni og Gunnhildur sáust í bæn- um á laugardagskvöldinu og komu meðal annars við á Kaffibarnum og Prikinu. Að sögn vitna fór ekki á milli mála að hér væri á ferðinni eitt heitasta par borgarinnar. Gælunafnagúrú fær f rítt í bíó Það var amerískur doktorsnemi, sem er m.a. sérfræðingur í íslensk- um gælunöfnum, sem var þrítug- þúsundasti gesmr Alþjóðlegu kvik- myndahátíðarinnar. Kendra Jean Willson er skráð í ís- lensku við Háskóla íslands. Hún hef- ur ítarlega kynnt sér myndun ís- lenskra gælunafna og m.a. skrifað ritgerðir þess efnis. Hún var grun- laus á leiðinni í Háskólabíó að sjá á Napoleon Dynamite klukkan sex í gær þegar aðstandendur Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar gripu hana glóðvolga og gáfu henni bíókort, sem gerir henni kleift að fara frítt í bíó út árið og bjóða öðrum með. „Hún var alveg yfir sig hrifin," segir ísleifur Þórhallsson, aðal- sprauta hátíðarinnar. í dag er loka- dagur hátíðarinnar, sem hefur stað- ið yfir í rúmar þrjár vikur. „Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég er hálf Kendra Jean Willson Fór á Napoleon Dynamite og fékk fritt í bíó í heilt ár fyrir vikið. feginn. Þetta er búin að vera rosa töm. En aðsóknartölumar fóm langt fram úr okkar björtustu vonum og nú fömm við að leggja línumar fyrir næstu hátíð, sem verður að ári." 20% afsldttur af öllum viðburdum Coiuert tf greitt er með MasterCard CONCERT KYNNIR í SAMVINNU VIÐ ET CONCERT PROMOTIONS BRUCE WELCH BRIAN BENNETT KAPLAKRIKI SMAj m . ■ Wl JrnAÍ ALLRASlÐUSTATÆKIÍÆI ORFAIR MIÐAR LAUSIR MIÐASALA I SKIFU BUÐUNUM BT Á AKURERYI OG SELFOSSI OG Á WWW.CONCERT.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.