Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2005, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2005, Blaðsíða 10
1 0 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ2005 Fréttir DV Hann er vinnusamur, ósérhlif- inn, sjarmerandi, hæfileikarík- ur, fyndinn og þorir aö stinga á kýlum í þjóðfélaginu. Jón Páll getur verið þrjósk- ur og hann vill hafa stjórn- ina sem getur verið galli jafnt sem kostur. „Þetta er alveg einstak- ur maður, frábærná- ungi, skemmtilegur og sprúðlandi talent. Hann ereinn afþessum sem skapar lífog skemmtun i hóp- um og hefur bæði góð og hvetj- andi áhrifá fólkið sem hann umgengst. Eitt afþvl sem hrífur mann við hann er hversu hvass þjóðfélagskrítiker hann er. Ég veit ekki um neina galla hjá honum Jóni Páli." Kristján Franklin Magnús leikari. „Ég get ekki lýst honum Jóni Páli í einu orði, en það sem ætti vel við er: Skemmtilegur fatastíll, ástriðufullur listamaður, geðveikur húmor, einstakt út- hald og einbeiting, mögnuð llk- amleg orka, traustur, trúr og hreinskilinn, en þetta eru allt orð sem lýsaJóni einstaklega vel. Ég man bara ekki eftir nein- um göllum sem skipta máli þegar þessir kostir eru annars vegar." Marla Ellingsen leikkona. „Jón Páll er mjög ástríðufullur og metn- aðargjarn leikstjóri, hann hefursterkar skoðanir og stendur við skoðanir sínar. Hann er drepfyndinn á groddalegan máta. Sem leikstjóri er hann mjög agaður og ákveðinn og stundum jafnvel um ofen hann kemur verkinu til skila og meira til.“ Hannes Óli Agústsson, meölimur Stúd- entaleikhússins. Jón Páll Eyjólfsson er fæddur 19. aprll áriö 1970 og er uppalinn í Keflavík. Jón er lærö- urleikari frá East 15 leiklistarskólanum í London og eftirað hann útskrifaöist fyrir nokkrum árum hefur hann látiö Ijós sitt skína í íslensku leikhúslífí.Jón Páll leikstýröi umdeildri sýningu Stúdentaleikhússins „Þú veist hvernig þetta er“, en hún var valin at- hyglisveröasta áhugaleiksýningin afÞjóð- leikhúsinu og varsett upp í vikunni á Stóra sviðinu og gengu margir hneykslaÖir út. Eldur laus í Grindavík Eldur kom upp í gámi við fyrirtækið HH-smíði í Grindavík á miðvikudagskvöldið var. Samkvæmt vef lögreglunn- ar í Keflavík var slökkviliðið kallað til klukkan korter yflr sjö að götunni Bakkalág í Grindvík. Eldur var þar laus í gámi. Greiðlega gekk að slökkva eldinn sem ekki hafði breiðst út fyrir gám- inn. Engar skemmdir urðu á öðru en gámnum og aldrei var talið að smíða- verkstæðið eða nálægar byggingar væru í hættu vegna eldsins. Jóhannes hefur barist fyrir endurheimt barnsins síns í áratug. Það var tekið frá honum þegar barnsmóðir hans veiktist á geðsmunum. Hann var sendur í skriflega sálfræðirannsókn og niðurstaðan var ótrúleg: Að hann hefði þroska á við 6 ára barn. Lesblindur sviptur brinu og sagður broskahnltur Harmsögu Jóhannesar Vilhjálmssonar munu fæstir geta ímynd- að sér. Barnið hans var tekið af honum og sett í fdstur fyrir rúm- um áratug vegna þess að sálfræðingur sagði hann með þroska á við 6 ára barn. Og nú þegar hann hefur barist í rúman áratug við að fá það aftur tU sín, og aðeins haft tveggja klukkustunda um- gengnisrétt á ári, segist barnið ekki vilja hitta hann oftar. Aðdragandi þess að Jóhannes missti forræðið var að hann hringdi á lögreglu þegar bamsmóðir hans og þáverandi sambýliskona missti tímabundið stjóm á sér vegna geð- raskana. „Ég bað um aðstoð ffá lögreglu vegna þess að hún var í sínu versta kasti. Svo fór lögreglan inn í herbergi og hringdi í bamaverndarnefnd. Eg var í góðu lagi, en það var ekkert hlustað á mig,“ segir hann. í skýrslu lögreglu kemur fram að barnið hafi verið pissublautt og að ástand móð- urinnar hafi verið slæmt. Góðfyrirmynd í úrskurði barnavemdarráðs ffá árinu 1993 kemúr fram rökstuðning- ur fyrir því hvers vegna barnið hafi verið tekið af Jóhannesi og sambýl- iskonu hans. Fjallað er í löngu máli um geðrænt ástand sambýliskon- unnar en um Jóhannes er þetta sagt: „Við góðar aðstæður [getur] Jóhann- es gefið af sér hlýju og verið börnum fyrirmynd að dugnaði og heiðarleik, en hann skortir þekkingu til að veita börnum örvun og festu í uppeldi. Jó- hannes virðist hafa verið dugandi til vinnu.“ Umsögn þessi var byggð á sál- fræðimati Sæmundar Hafsteinsson- ar, fyrrverandi sálfræðings á Félags- málastofnun Keflavíkur, sem lagði skriflegt próf fýrir Jóhannes. Sál- fræðingurinn sagði Jóhannes hafa meðalgetu 6 til 7 ára bams og vera „á mörkum þess að vera vangefinn". Bílstjóri án vandræða Jóhannesi er mikið niðri fyrir vegna greiningarinnar sem olli því að hann missti bamið sitt. Hann segir það hafa skekkt niðurstöður sálfræðimatsins að hann sé haldinn lesbhndu og þar af leiðandi illa læs á sálffæðipróf sem annað. Sálfræðingurinn sagði Jóhannes hafa meðalgetu 6 til 7 ára barns ogvera„á mörkum þess að vera vangefinn Hann hefur stundað ýmis störf sem fjarri lagi er að 6 ára börn ráði við. Hann hefur verið bflstjóri í fjölda ára án þess að hafa lent í vandræðum. Þá hefur hann unnið til sjós og við ræstingar á hóteU þar sem hann hlaut góð meðmæU at- vinnurekanda síns í tengslum við forræðismálið. „Ég er bara miðlungsmaður, eins og það er kaUað. Mér finnst þetta vera eins og fína fólkið rífi börnin af manni út af einhverju snobbi," segir hann. Of seint Jóhannes hefur í 12 ár árangurslaust reynt að fá barnið aftur eða aukinn umgengnisrétt. Ekki hefur verið hvUcað frá þeirri ákvörðun að leyfa honum að hitta barnið í tvær klukkustundir á ári. Og þessar tvær klukku- stundir hafa aðeins mátt vera innan síðustu viku maímánað- ar. Jóhannes telur að nú sé að verða of seint að berjast meira í málinu. Dóttir hans hefur alist upp hjá öðr- um foreldrum. „Ég sagði henni sein- ast, þessa tvo tíma sem ég hafði, að ég væri með lögffæðinga í að reyna að fá hana aftur. Síðan þá viil hún ekki hitta mig lengur. Hún náttúrulega ólst upp hjá þessu fólki og lítur á það sem foreldra sína." Nú einbeitir Jóhannes sér að uppeldi fóstur- dóttur sinnar, sem hann elur upp ásamt núver- andi sambýliskonu og gengur ágætlega. jontrausti@dv.is Jóhannes Vilhjálmsson Sál- fræðingur sagði hann á mörkum þess að vera vangefmn - en það kannast hvorki hann né aðrir við. Gekk út af leiksýningu Stúdentaleikhússins Hrafn gekk út en hneykslaðist ekki Það ráku margir upp stór augu þegar þeir lásu í DV í gær um út- göngu Hrafns Gunnlaugssonar og fleiri aðila af sýningu Stúdentaleik- hússins í Þjóðleikhúsinu. Þar lýsti Gunnar Eyjólfsson leikari óánægju sinni með leikhús framtíðarinnar. Það sanna í málinu er hins vegar það að Hrafn gekk ekki út af sýning- unni vegna þess að hann væri hneykslaður. „Ástæða þess að ég gat ekki fylgt sýningunni til enda er persónuleg. Ég hafði látið miðasöl- una vita að ég ætíaði líta inn til að forvitnast um efnilegt fólk og myndi staldra stutt við,“ sagði Hrafn Gunnlaugsson í gær en til að leiðrétta allan misskilnig fannst honum rétt að koma hinu sanna til skila. „Það sem ég sá af sýningunni var vel þess virði að horfa á og ég hefði horft á hana til enda hefðu per- sónulegar aðstæður ekki komið í veg fýrir það,“ tekur Hrafn skýrt fram og segist í raun aldrei hafa hneykslast á ævinni. Hrafninn Hafði gaman afþvl sem hann hafði tfma til að sjá á sýningu Stúdentaleikhúss ins f Þjóðleikhúsinu á þriðjudag. Kappakstur í Kópavogi Lögreglan í Kópavogi hafði í nógu að snúast í gærdag við að áminna ökumenn sem ekið höfðuyfir hámarks- hraðainnan umdæmis hennar. Um miðjan dag í gær höfðu hátt í tutt- ugu ökumenn verið stöðvaðir vegna slíkra brota. Þótt ekki hafi verið dæmi um svokallaðan ofsa- akstur, sagði vakthafandi varðstjóri að ærið tilefni væri til að hafa áhyggjur af þessari þróun. í hvert skipti sem lögreglunni gæfist góður tími til hraðaeftirlits væm margir stöðvaðir. Hann minnir ökumenn einnig á að hámarkshraði er mið- aður við bestu aðstæður, eitthvað sem ökumenn virðast oft gleyma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.