Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2005, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2005, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ2005 Heimilið DV Steini sleggja er þúsundþjalasmiður DVog reddar málunum fyrir lesendur. Hann tekur ámóti ábendingum og svarar sþurningum les- enda í gegnum netfangið heimiii@dv.is. — ÞÚSUNDÞJALASMIÐUR Skipt um dos Fryst rauð Þetta húsráð barst okkur með tölvupósti frá Björgu Ó. Bjama- dóttur og við þökkum henni fyrir. Þegar til er afgangur af rauðvíni sem enginn ætlar að drekka þarf ekki að láta hann fara til spillis. Helltu restinni í klakabox og settu inn í frysti og næst þegar vantar rauðvín í sósuna þá er bara að smella nokkrum molum út í pottinn! Kósí baðherbergi Dekur og slökun á baðherberginu 6. Opnið einn kaldan og stingið í samband Málunum reddaö! Stelnl sleggja. Við Langholtsveg 82 í Reykja- veg stendur Bólstrarinn ehf. þar sem fjórir einstaklingar vinna í fullu starfi við að bólstra allt milli himins og jarðar. Eigand- inn er Hafsteinn Gunnarsson en hann hefur verið i bransan- um síðan 1970 og rekið Bólstrar- ann frá 1980. „Ég byrjaði í þessu um 1970. Þá var mikið að gera í húsgagnaiðnaði hér á landi og mikið framleitt af hús- gögnum, þannig að þetta var mjög spennandi," segir Hafsteinn Gunnarsson, eigandi Bólstrarans ehf., að- spurður hvað haii kveikt áhuga hans á greininni. Það hoppar enginn inn í starfið því það þarf þriggja ára nám hjá meistara auk eins árs náms í Danmörku til að verða bólstrari og Hafsteinn segir að það séu ekki margir sem fari í þetta núna vegna þess hve erfitt sé að komast að hjá meisturum. Til vitnis um það hafa komið fram sex nýjir bólstrarar hérlendis síðustu fjögur árin. Tenging við íslenska ferðamennsku Þegar rætt er um bólstrun sjá margir fyrir sér sófa og stóla en í raun vinna bólstrarar að margvíslegum verk- efnum. Þó það sé minni framleiðsla á húsgögnum nú en þegar Hafsteinn hóf störf þá er alltaf eitthvað um sér- smíði. „Sérsmíðin er mest fyrir veitingastaði og gistihús en einnig fyrir stofnanir og fyrirtæki," segir Hafsteinn en Bólstrarinn sér einnig um bílaklæðningar og bólstrun húsgagna í skip og flugvélar. Hafsteinn segist finna fyrir aukinni ferðamennsku til landsins og lýsir það sér í fleiri verkefnum tengdum veitingastöðum og gistihúsum. Meginhluti starfsem- innar er samt bólstrun á eldri húsgögnum. Það er mjög mikið að gera í öllum gerðum húsgagna og þá sérstak- lega í antík. „Það er mikið að gera og aldrei verið eins mikið að gera og núna í öllum gerðum af húsgögnum, gera við og klæða," segir Hafsteinn. Hvað kostar? Það er allur gangur á því hvernig viðskiptin eiga sér stað. Ef húsgagnið sem um ræðir er h'tið þarf lítinn fýrir- vara og fólk getur komið og valið sér áklæði. Fyrir stærri verkefni þarf aftur á móti að panta tíma. Það getur reynst þrautin þyngri að velja áklæði því úrvalið er mikið og breitt og eiginlega allt til og Hafsteinn lýsir því þannig að fólk fyllist hreinlega valkvíða. Það þarf þó ekki að hafa áh- yggjur því hægt að fá prufur lánaðar heim svo hægt sé að velja í ró og næði. Einnig er algengt að fólk sendi myndir af húsgögnum með tölvupósti og biðji um föst verðtil- boð, en sá hátturinn er yfirleitt hafður á þ.e. fólk veður ekki blint í sjóinn heldur er búið að fá verðtilboð sem stendur þegar ffamkvæmdimar hefjast. Sem dæmi segir Hafsteinn að sófasett sem saman- stæði af tveimur tveggja- og þriggja sæta sófum væri mjög erfitt að verðleggja fyrir bólstrun því það fari mjög mikið eftir stærð sófanna og veröi efnisins sem valið er. Ef hann þyrfti að skjóta á eitthvað væri það á bilinu 70.000 til 200.000 krónur. Ljósir litir og rúskinn í tísku „Það er mikið ljóst efni notað núna og hefur verið mikið að undanförnu," segir Hafsteinn. Það er mikið not- að af látlausu efni og sléttu en þó em alltaf einhverjir sem velja öðmvísi efni og liti. Röndótt er að koma svolítið núna og rúskinn hefur verið mjög vinsælt og er enn. Ann- ars er allt í gangi í dag og mjög vinsælt að koma með gömul antíkhúsgögn í yfirhalningu. mgga@dv.is 3. Snyrtið til vírana og ver- ið alveg örugg á hvert hver vír á að fara 4.Tengið vírana í nýju dósina 5. Festið dósina í vegginn og skrúfið hana fasta Skrúfum svo nýju dósina I. Það virðist ekki flókið að skipta urn dós en hafa þarf ýmisiegt í huga. Það þarf að passa sig að fara variega og ef maður treystir sér ekki í verkið er betra að sleppa því en að fá straum. Betra er heima setið en af stað farið í þessum efn- um, eins og Steini segir. Dósin sem Steini notar er fyrir steypu en það er líka hægt að nota hana í gifs. Það er hægt að fá ýms- ar gerðir af rafmagnsdósum, fyrir hvaða gerð af veggjum sem er. Þegar skipt er úr gamalli dós í nýja geta staðiarnir hafa breyst og kannski em steypuhrönglar eða eitthvað inni í veggnum svo erfitt er að koma dósinni fyrir. Þá lemur maður það í burtu með skrúfjárni eða hamri og þá á þetta aht að smella. Ef þetta gengur illa er spurning um að stærðin sé kannski röng. Það er hægt að fá alis kyns dós- ir og í stíl við hvaða hús sem er, flóran er svo mikil. Það er hægt að fá antík, gyllt, svart, siifrað og hvað sem hugurinn girnist en það kost- ar bara meira. 1. Fyrst er að slá út raf- magninu svo maður fari sér ekki að voða Gleymum ekkiaðsláút rafmagnið. 2. Gamla dósín er losuð og aftengd Ertu með góða ábendingu? Sendu okkur tölvubréfd heimili@dv.is efþú ert með ábendingar um skemmtilegt viðfangsefni á heimilisslður DV. Þakviðgerðir Nánari upplýsingar á www.pace.is Málarameistari sér um þakið 555 7500 Það er auðvelt að skapa þægilegt athvarf í baðherberg- inu þar sem dekur og slöktm em orð dagsins. Úr nógu er að moða þegar velja á liti við hvíta baðkarið því allir litir passa við hvítt en til að ná fiam fersku, svölu og sefandi andrúmslofti er tilvalið að velja fallega bláa málningu á baðher- bergið. Hægt er að velja tvö lit- brigði en ef baðherbergið er lítið má einnig skoða að hafa bara einn því það stækkar herbergið. það er ódýrt að velja dúk á gólfið og getur verið sniðugt að hafa hann með parkettáferð, sérstaklega ef það virkar lagskipt því það opnar lítil baðherbergi enn frekar. Ef gömlu flísarnar em orðnar svolítið þreyttar er ekki úr vegi að smella upp h'nu af mósaíkflís- um fyrir ofan þær. Ódýrt, auð- velt og kostar lítið. Punkturinn yfir i-ið em fylgihlutirnir, hvítur vasi með fallegum blómum get- ur gert gæfitmuninn ásamt króm blöndunartækjum. Blár litur á baðinu Sefandi og smart og breytir miklu. DV Heimilið FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ2005 27 Draumatækið Ljósakrónur em yfirleitt staðsettar fyrir miðju herbergi og þegar það er eina loftlýsingin getur andrúmsloftið verið svolítið í stfl við yfirheyrsluklefa. Ljósakrónur em góð byrjun og geta vel verið aðallýsingin en það vantar eitthvað með og til að spila á móti myrkri lýsingunni. Það er líka voða sniðugt að hafa dimmer á ljósakrónum og jafnvel að geta tosað þær upp og nið- ur, fram og til baka svo þær séu ekki alltaf í sviðsljósinu. „Ég sá eitt sniðugt á netinu um daginn," segir J Garðar Gunnlaugsson, it fótboltamaður og tækja- H spekúlant. „Það er frá * Siemens og er skyrtu- 1 þurrkari. Þetta er svona ’ hálfgerð stálgína. Þú setur skyrtuna á hana og |k hún blæs heitu lofti á n hana og þurrkar og » straujar hana í leið- ■ inni. Það er ekkert W vandamál að strauja, mér finnst það bara leiðinlegt." Ljósakrónur Það er ágætt að hafa Ijósakrónur en betra að hafa lika fteiri tegundir aflýsingu. Ný og endurbætt fótanuddtæki Fótanuddtækin eru komin aftur og safapressurnar eru aftur vinsælar Hver man ekki eftir fóta- nuddtækjafaraldrinum um miðjan níunda áratuginn? í dag eru komnar á markað- inn nýjar og endurbættar út- _ gáfur af þessum tryllitækj- flj um. Remington-fótanudd- ■ tækin hafa verið vinsæl sem /• 'jjp' gjafir undanfarið. Þau eru ÉBf lík gömlu fótanuddtækjun- ffij$ um nema þau eru nýtísku- pfi legri og komnir eru margir P#*. nýir fídusar. Til dæmis má JH nefna að komin eru hjól H og/eða steinar (eftir þörf- H um) sem notað er við að U ná siggi af iljum. Einnig er að finna infra-rautt ljós sem linar verki í fótum. Auk þess er hægt að setja olíur í tækin og skella sér í fóta-spa. Tvær tegundir eru til af Remington-fótanuddtækjunum og kosta þau 4,990 kr. og 6,990 kr. Annað heimilistæki sem hefur notið mikilla vinsælda eru Solis- safapressur. Þær eru sérstaklega öflugar og þannig að ekki er nauð- synlegt að flysja ávexti eða græn- meti sem pressað er. Hægt er að pressa allt frá eplum og appelsín- um upp í engifer og rófur. Solis-safapressan kostar 13,900 Bæði tækin fást hjá Bræðrunum Ormsson. Jólaserían allt árið Skemmtileg lausn þegar kemur að lýs- ingum í dimmu herbergi eru jólaseríur. Hægt er að fá litlausar seríur í heimilis-, raftækja- og byggingavöruverslunum og kosta þær ekki mikið. Þær er hægt að vefja upp í bolta og koma fyrir á borði eða kommóðu eða vefja þeim í kringum falleg- an hlut, t.d. vasa eða litla styttu. Einnig er hægt að hrúga þeim ofan í glæra eða litaða skál eða gömlu gerðina af fiskabúri til þess að losna við drungann og skapa kósí stemmingu. Þessi sófi koni frá Danmörku er frá i 920. Hann hefur verið bó/straður með Ijósu silki- damaski. Gamall Chesterfield stóll fra 1930 4 þennan sofa sem ei frn 1910 varsett mohair-aklæði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.