Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2005, Blaðsíða 31
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ2005 31
Úr bloggheimum
Ai
Skjár eitt í gangi f bak-
grunninum - Innlit útlit.
Sem er málfræði- og mál-
farsstúdia afdýrustu og
bestu gerð.
Jónsi og frú fórnarlambið núna.
Einhver kona á vegum þáttarins að hjálpa
þeim að skreyta ibúðina og í fullkomnu
smekkleysi settihún textabúta meðj
svörtum fötum"- bút eftirþau skötuhjúin
- á striga og uppá vegg á tveim stöðum, í
stofu og svefnherbergi. Efþetta verður
ekki komið niður og útí tunnu innan
tveggja vikna...
Jón Kjartan Ingólfsson
jonkjartan.blogspot.com
Múli
Ármúli er einhver asnalegasta gata sem
að ég veit um. Hér eru grilljón lítil fyrirtæki
og svo hafa Síminn, KBBanki, Landsteinar-
Strengur og VlS svo eitthvað sé nefnt öll
stórar starfsstöðvar i götunni og gatan er
troðfull afbílum allan daga alltaf. Það er
vonlaust að komast til vinnu og það er
vonlaust að komast úr vinnu. Drasl.
Guðmundur Jóhannsson
www.gummijoh.net
Næringarráðgjafar hjálpa
ekki fitubollum
Ég hefengan hvítan sykur
borðað í mánuðinum og lít-
ið sem ekkert hveiti. Það er
lykillinn, í þessum fæðuteg-
undum eru fíklakolvetnin. Enginn
verður óstöðvandi gráðugur afþví að
borða grænmeti, kjöt, ávexti, egg og
margt fleira. Hvers vegna hafa viður-
kenndir næringarráðgjafar og einkaþjálf-
arar aldrei bent fólki á þessa leið? Hvers
vegna getur þetta fólk aldrei hjálpað
feitabollum og átvöglum? Það ráðleggur
fólki bara að gera eins ogþað gerir sjálft,
en fólkið sem leitar til þess getur ekki farið
eftir slíkum ráðum - þar liggur hundurinn
grafinn. Svo bíturþetta lið höfuðið af
skömminni með þvíað markaðssetja
heiisusnakk sem er nánast fítandi, orku-
rfkt, hálfgerð kolvetnaspengja og sfður en
svo seðjandi. Hvernig á nokkur að verða
grannvaxinn afþvi að maula nasliö
hennar Ágústu Johnsson ? Það er mér fyr-
irmunað að skilja. Þetta er kannski hollt
en gerir feitu fólki ekkert gagn.
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustborgthor.blogspot.com
Jimmy leysir Ringo af í Bítlunum
Þennan dag árið 1964 var Ringo
Starr lagður á spítala vegna háls-
kirtlabólgu. Þetta var afar slæm
tímasetning því daginn eftir átti
heimstúr Bítíanna að hefjast. Leiðin
lá til 50 borga í fjórum heimsálfum
og ferðinni lauk ekki fyrr en 10. nóv-
ember. Hinir Bítlarnir þrír voru
tregir til að fá varamann fyrir Ringo
en umboðsmaðurinn Brian Epstein
og upptökumaðurinn George Mart-
in taldi þá á að fá Jimmy Nichol til
að spila með þeim þangað til Ringo
hefði náð heilsu. Jimmy spilaði með
Bítíunum á tónleikum í Danmörku,
Hollandi, Hong Kong ogÁstralíu, en
Ringo hitti félaga sína í Melbourne
15. júní. George Martin stakk upp á
Jimmy því hann var með hina
nauðsynlegu bítíaklippingu og
þekkti vel tU Jiljóm-
sveitarinnar enda ný-
búinn að spila inn á
tökulagaplötuna
Beatíemania. Þegar
Jimmy var spurður að
því hvernig væri að
vera í Bítíunum svar-
aði hann jafnan: „Það
er að skána“. Síðar varð þetta svar
kveikjan að bítíalaginu
„Getting better". Fyrir
þessi forréttindi, að
vera BítiU í tólf daga,
fékk Jimmy 500 pund og áletrað
í dag
Síðustu tveir
geirfuglarnir í
heiminum voru drepnir
í Eldey 1844.
guUúr. Eftir Bítíaævintýrið stofnaði
hann hljómsveitina The Shubdubs
sem kom út tveimur litlum plötum
áður en hún hætti. Hann flutti tU
Suður-Ameríku og þaðan tU Ástral-
íu. Síðan hefur ekkert spurst til
hans.
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
Sinnuleysi lögreglunnar í ökufantsmáli
Siguröur H. Jónsson bríngdi:
„Ég er nú ekki þessi týpa sem
hringi og lcvarta yfir öUu en nú get ég
bara ekki setið á mér. Það er alveg
óskUjanlegt hvað lögreglan hér í
borg er afskiptalaus og í raun bara
löt, en ég var að lesa greinina í DV í
Lesendur
gær þar sem ung stúlka er að segja
frá reynslu sinni af ökuníðingi sem
reyndi að keyra hana út af veginum.
Það sem mér finnst fyrir neðan
aUar heUur er að lögreglan segi við
hana að þeir hafi nóg annað að gera
og hafi ekki tíma fyrir svona mál, og
það þrátt fyrir að hún hafi náð bók-
stöfunum í númeri bílsins. Ég spyr
bara hvað er að þessum mönnum
þama í löggunni, hvað er í gangi?
Ég hefði nú haldið að það væri
auðvelt að finna þennan ökufant
með allar þessar upplýsingar, ha,
hvað eru eiginlega margir bílar hér
með þessum númerastöfum sem
eru svona á litinn? ha, og eru vænt-
anlega klesstir Ifka.
Ef lögreglan getur borið fyrir sig
tímaleysi í svona einföldum málum
hlýtur að vera kominn
tími tU að skoða málin
alvarlega niður í kjöl-
inn þar á bæ."
Greinin í DV í gær
Sigurður er ekki sátt-
ur við framkomu lög-
reglunnar í málinu.
Umhverfisátak með Bláa hernum
Blái herinn Guðfínna eryfírsig
hrifin afframtaki Bláa hersins og
umhverfisátaki Reykjanesbæjar.
KeQvúdngur bringdi:
Mig langar að segja frá svolitlu
jákvæðu sem er að eiga sér stað og
vekja athygli á því að nú er hafið
umhverfisátak í Reykjanesbæ þar
sem Blái herinn kemur við sögu.
Það sem er svona sérstaklega
skemmttíegt er að í Bláa hernum
eru kafarar sem hafa séð um að
hreinsa rusl og drasl úr sjónum og
á ströndinni á Reykjanesi.
Herforinginn heitir Tómas
Knútsson og mig langar bara að
segja frá þessu og koma þökkum
til hans og hersins fýrir að vinna
þetta þarfa verk, að týna upp rusl
þar sem enginn sér það en margir
ganga tU liðs við herinn í hreins-
unarátaki á borð við þetta og tína
rusl á strandlengjum og víðar.
Þetta rusl er nefnilega líka meng-
un.
Ég vU svo skora á önnur sveita-
félög eða kafarafélög að leggjast í
álíka verkefni svo við náum að
halda sjónum okkar hreinum, því
þar er líka mikið rusl.
Sylvfa Dögg
Halldórsdóttir
Fjallar um aðferðir
Landsbjargar til þess að
fjármagna rekstur sinn.
Myndlistarneminn segir
Hvað ef?
Sjómannsdótturinni verður
órótt þegar hún sér auglýsingar
slysavarnafélagsins Landsbjargar
þessa dagana. Þær segja hvað ef...?
Hvað ef björgun vantaði á hafi úti
við íslandsstrendur og þeir gætu
ekki komið til bjargar? Telja svo til
hversu marga báta þeir eigi og
hversu marga þá vanti! Biðja svo í
framhaldi af því einstaklinga um
aðstoð í formi fjárffamlags.
Reksturinn er afar kostnaöar-
samur og framlag hins opinbera
nemur aðeins brotí af rekstrar-
kostnaði! Slysavamafélagið þarf að
afla fjár fýrir öryggi íslendinga ár-
lega með sölu jesútrjáa og fljúgandi
eldum. Þaðan kemur þorri inn-
komunnar. Takk jesú - ef ekki
hefðum við nú blessuð jólin?
Aðrar leiðir eru happ-
drættin - innflutningur
v. sjúkragagna að
ógleymdum spilaköss-
' JPNMk' unuin sem einir og
sér afla rúmlega
60% af heildinni!
* Þessi nauðsynlegu
I samtök eru ein stærstu
samtök sjálfboðaliða
hérlendis - eða um 18.000. Styrkt-
araðilar eru Esso - Sjóvá og Sam-
skip. Ef út af bregður verða allir sjó-
menn (og þeirra nánustu) að geta
reitt sig á hið öruggasta - segir í
auglýsingunni.
Satt er það. Og ekki er það fram-
lag hins opinbera! Hvaða brotabrot
ætli hið opinbera greiði til öryggis-
ráðstafana sjómanna af þeirri gríð-
arlegu innkomu skattapeninga sem
þeir einir greiða í þjóðarbúið ár-
lega? Það má ekki bara vanta heila
þrjá báta upp á að allir sjófarendur
við íslandsstrendur njóti fyllsta ör-
yggis! Ding Dong!
Sakna einskis afmölinni
Guðveig Anna Eyglóardóttír tók sig
upp í fyrra og leigði bæinn Háls í Öxna-
dal. Þar hefur hún búið laus við flest
„þægindi" borgarbúa, nær engri sjón-
varpsstöð heldur bara Rás 1. Á Hálsi rek-
ur hún veitingahúsið Halastjörnuna sem
hefur vakið mikla lukku matgæðinga á
Norðurlandi. Áður hafði Guðveig kynnst
veitingamennskunni á Hótel Búðum.
„Ég opnaði Halastjömuna í júní í fyrra
og þetta heftir gengið ljómandi vel. Það
hefur verið opið um heígar í vetur en nú
erum við byrjuð að hafa opið daglega frá
kl. 6. Staðurinn er nefndur eftir hryssunni
minni, Halastjömu, en ég er að fá hana
hingað aftur. Hún hefur verið í geymslu í
Eyjafjallasveit með hinum hestinum mín-
um honum Ljótí. Hann er geldur greyið
en ég er að vonast til að hann gangi folaldi
Halastjömunnar í föðurstað. Hún ætti að
fara að kasta hvað úr hverju.
Ég fæ forræktað grænmeti hjá Dísu í
Dalsgarði og set það niður í salatgarðinn
minn. Svo veiði ég bleikju í Þverbrekku-
„Ég veiði bleikju í Þver-
brekkuvatni sem er í um
hálftíma göngufæri héð-
an. Ég fer á miðnætti,
þegar gestirnir eru farn-
ir, með veiðistöngina og
köttinn á kantinum."
vatni sem er í um hálftíma göngufæri
héðan. Ég fer á miðnættí þegar gestimir
em farnir með veiðistöngina og köttinn á
kantinum. Oftast er mjög fin veiði. Ann-
ars fæ ég allt hráefrii frá Akureyri; kjöt,
fisk, humar og bláskel frá Hrísey. Allar
kryddjurtir má svo fá út í móa, t.d. fjólur
og hvönn og hundasúrur í salatið.
Hér eru bara fjögur borð og ég tek
aldrei fleiri en 20 manns á kvöldi í mat.
Það borgar sig að panta með góðum fýr-
irvara. Eg er ekki að stfla inn á massann
og sæki fyrirmyndina í litía veitingarstaði
í sveitum Evrópu. Þriggja rétta máltíð
kostar 4.500 kr og fjórrétta 5.100 kr.
Maður setur stundum upp hárið, fer á
hæla, skellir á sig varalit og fer í kaup-
staðinn, en mest er maður bara að skott-
ast hérna. Ég hlusta nokkuð á Rás 1 og
Orð skulu standa með Karli Th.Birgissyni
er tvímælalaust uppáhaldsþátturinn
minn. Ég sakna einskis af mölinni nema
kannski þess að geta hoppað í kaffi til
fjölskyldunnar. Ég er ein sjö systkina en
þau em reyndar dugleg að heimsækja
mig. Ég verð svo lfldega í Bændaskólan-
um á Hvanneyri næsta vetur - ég vona
allavega að ég komist inn. Þá verð ég
komin á æskuslóðir því ég er alin upp í
Borgarfirði."
Guðvei
Hálsi
eig Anna Eyglóardóttir er einhleyp veitingakona sem fluttiaf "“'í""' 'að
í Öxnadal. Hún prófaði það sem marga dreymir um: að yfirgefa þéttbylið.
I