Freyr - 15.05.1951, Qupperneq 10
166
FRE YR
Erindi Gunnars Bjarnasonar, um hlut-
verk hestsins í landbúnaði og þjóð-
lífi íslendinga.
Eftirfarandi ályktun búfjárræktarnefnd-
ar var samþykkt:
..Búnaöarþing beinir því til stjórnar Búnaðarfélags
Islands, að hún feli formanni Búreikningaskrifstof-
unnar og ráðunaut í hrossarækt að fá nokkra bænd-
ur til að halda skýrslur um kostnað við vélarekstur til
bústarfa annarsvegar, og kostnað við hestanotkun
hinsvegar, svo nokkrar bendingar fáist um hagrænt
gildi hvors fyrir sig, fyrir búskap landsmanna og
hvort halda beri áfram þeirri þróun í landbúnaðin-
um, að taka aflvélar til notkunar við bústörfin."
Tillaga búfjárrœktarnefndar um þings-
ályktun viðvíkjandi tamningastöð
fyrir dráttarhesta,
var samþykkt svohljóðandi:
„Búnaðarþing ályktar, að nauðsyn beri til að koma
upp tamningastöð fyrir dráttarhesta.
Búnaðarþing beinir þeirri ósk til stjórnar Búnaðar-
félags fslands, að liún vinni að því við ríkisstjórnina,
að koma slíkri stöð upp sem allra fyrst.“
Kristinn Guðmundsson og Sigurjón
Sigurðsson báru fram eftirfarandi
ályktun, er var samþykkt:
„Búnaðarþing skorar á ríkisstjórnina að gera ráð-
slafanir til að safnað verði saman þeim nautgripum af
Gullowaykyni, sem til eru í landinu, á eitt tilraunabú,
þar sem unnið verði markvisst að úrvali og kynbót-
um þessara gripa, með tilliti til holdsöfnunar.
Sýni reynslan, að takast megi að framleiða svo gott
holdakyn, að það taki verulega fram ísl. gripum, verði
síðar unnið að því að nota gripi af þessum stofni til
nautakjötsframleiðslu, í samráði við ráðunaut Bún-
aðarféiags íslands í nautgriparækt.
Greinargerð:
Þar sem vitað er, að til eru í landinu gripir með
meira og minna Gallowayblóði, í eign ýmissa bænda,
og ræktunin hefur verið með öllu skipulagslaus, virð-
ist augljóst mál, að æskilegt væri að þeim sé safnað
saman og gerð skipulögð tilraun undir umsjón Til-
raunaráðs búfjárræktar mcð framleiðslu á holdakyn-
stofni.
Sandgræðslustjóri mun hafa, síðastliðin tvö ár, eitt-
hvað unnið að því, á búi Sandgræðslu ríkisins í Gunn-
arsholti, að safna saman Gallowaykynblendingum.
Þessi staður virðist vel til þess fallinn og sandgræðslu-
stjóri áhugamaður um þessi málefni. Ríkisstjórnin og
fjárveitingavaldið þyrfti að rétta honum og tilrauna-
ráði búfjárræktar hjálparhönd, með ákveðnum fyrir-
mælum og nauðsynlegum fjárveitingum, svo hægt verði
að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu þessara kyn-
blendinga á þann skipulagslausa hátt, sem gert hefir
verið."
í framanskráðu hefir verið sagt frá
nokkrum málum og sýnt hvernig afgreidd
hafa verið. Auk þessa mætti geta um ýmiss
fleiri, svo sem um útrýmingu refa, um út-
flutning dilkakjöts og eflingu markaða
fyrir það, um rannsóknir á hrossakjöti
geymslu þess og gildi, ásamt verðskráningu,
o. m. fl.
Þá var samþykkt, að skipting á Búnaðar-
sambandi Austurlands mætti fara fram
þannig, að Austur-Skaftafellssýsla yrði
sjálfstætt samband.
Fjárhagsáætlun Búnaðarfélagsins var
afgreidd með 1.395 milljóna kr. rekstursfé.
Nokkrum málum var vísað til milliþinga-
nefndar, sem kjörin var. Má þar nefna
girðingalögin, sem Alþingi hafði sent Bún-
aðarþingi til umsagnar, svo og erindi um
atvinnufræðslu í framhaldsskólum.
Á Búnaðarþingi voru haldnir 26 fund-
ir. Þar að auki voru erindi flutt sem hér
segir:
Steingrímur Steinþórsson, forsætisráðh.:
Búnaðarfélag íslands og störf þess.
Hermann Jónasson, landbúnaðarráðherra:
Landbúnaðarmál.
Jakob Gíslason, raforkumálastjóri:
Raforkumál sveitanna.
Ólafur Jónsson, héraðsráðunautur:
Atvinnufræðsla við almenna framhalds-
skóla.
Runólfur Sveinsson, sandgræðslustjóri:
Búf j árræktartilraunir.
Ólafur Sigurðsson, bóndi, Hellulandi:
Lax- og silungsveiði og æðarvarp.