Freyr - 15.05.1951, Side 12
168
FREYR
Framleiðslukostnaður —
Reksturskostnaður
Svör við spurningunni: Hvað er átt við, þegar
talað er um framleiðslukostnað og reksturskostnað
og hvaða mismunur er þar í milli?
Spurningin var nr.- 4 í samkeppninni, sem Freyr
efndi til í fyrravor.
I.
Með framleiðslukostnaði er átt við kostn-
að á framleiðslu einhvers hlutar eða vöru-
tegundar. í þrengri merkingu er þá venju-
lega átt við öflun verðmæta úr skauti nátt-
úrunnar. Sá kostnaður, sem framleiðand-
inn leggur af mörkum við öflun verðmæt-
anna, þar til þau eru komin í nothæft eða
seljanlegt ástand, heitir framleiðslukostn-
aður.
Reksturskostnaður er hins vegar allur sá
kostnaður, sem fellur undir hverskonar
rekstur fyrirtækja eða einstaklinga. Rekst-
urskostnaður getur því um leið verið fram-
leiðslukostnaður, en þarf ekki að vera það;
er hann þá kostnaður við starfsemi, sem
ekki fellur undir framleiðslu, svo sem iðn-
að, verzlun eða aðra slíka atvinnu, sem
ekki er framleiðslustarfsemi. í stuttu máli
sagt:
Framleiðslukostnaður er kostnaður við
öflun og breytingu verðmæta, sem unnin
eru úr skauti jarðar, þar til þau eru kom-
in í nothæft ástand.
Reksturskostnaður er kostnaður við alls
konar atvinnu og rekstur, eða breytingu
hráefna í annað nothæfara ástand, hvort
sem starfsemin fellur undir framleiðslu
eða ekki.
Hermann Grímsson.
II.
Öll atvinnustarfsemi fer fram í fyrir-
tækjum, en fyrirtæki eru ákveðin skipu-
lags- og fj árhagsheild, rekin undir stjórn
ákveðins aðila.
Öllum fyrirtækjum má skipta í fjóra
flokka, eftir því, hvernig atvinnu þau
reka: 1) framleiðslufyrirtæki (landbúnað-
ur, sjávarútvegs- og námafyrirtæki), 2)
iðnaðarfyrirtæki, 3) viðskiptafyrirtæki
(verzlanir, bankar, samgöngu- og trygg-
ingafyrirtæki), og 4) þjónustufyrirtæki
(iðkun vísinda og lista, fræðsla og skemmt-
anir).
Allur sá kostnaður, sem þarf til þess að
reka ákveðið fyrirtæki, nefnist reksturs-
kostnaður og er þá venjulega miðað við eitt
ár. Ef um framleiðslu- eða iðnaðarfyrirtæki
er að ræða, má jafna reksturskostnaðin-
um niður á hverja vörueiningu, sem fyrir-
tækið framleiðir. Kemur þá fram hvað það
kostar að framleiða eina vörueiningu af
ákveðinni vöru og nefnist það framleiðslu-
kostnaður vörunnar.
Sá er munurinn á reksturskostnaði og
framleiðslukostnaði, að það er talað um
reksturskostnað fyrirtækis, en hinsvegar
framleiðslukostnað vöru.
Guömundur Jónsson.
III.
Ég álít, að þegar talað er um reksturs-
kostnað atvinnufyrirtækis (bús, verzlun-
ar), sé átt við allan kostnað, sem beinlínis
stafar af atvinnurekstrinum, sé ekki um
aukningu eða verulega breytingu á rekstr-
inum að ræða.
í hverju þessi kostnaður er fólginn, er
auðvitað breytilegt eftir því hvaða starf-
semi er um að ræða og hvernig henni er
hagað, en undir mjög mörgum kringum-
stæðum eru þó vinnulaun stærsti liður-
inn.
Þegar talað er um framleiðslukostnað
finnst mér að átt sé við hvað mikið það
kostar atvinnurekandann að framleiða af-
urðaeiningu (kg mjólkur, kg kjöts, tunnu
garðávaxta, sé um bónda að ræða).
Af þessu sézt, að hjá öllum atvinnufyrir-
tækjum er um reksturskostnað að ræða
eins þó að þau hafi enga framleiðslu
(verzlanir) og undir lang flestum kringum-
stæðum stendur reksturskostnaðurinn í
réttu hlutfalli við stærð fyrirtækisins.
Framleiðslukostnaður getur aftur á móti