Freyr - 15.05.1951, Blaðsíða 14
170
PRE YR
sveitcibœja frá alda öðli. Þá eru Egilsstaðir
á Völlum í S.-Múl., hið mikla hús og reisu-
lega frá þessari öld, með stórvöxnum trjá-
gróðri frrir framan, og gripahúsum til
beggja hliða. Er svipur nútíðarinnar yfir
þeim stað. Þriðja myndin er af Svínafelli
í Örœfum, A.-Sk., höfuðbóli að fornu og
nýju. Er þar íbúðarhús í miðju eins og þau
tíðkuðust fyrir 20—50 árum, en bustar-
byggingar til beggja hliða, sambland af
gömlu og nýju. Bakvið bœina eru fjöll, en
milli bœjanna eru skorin höfuð af hrúti,
hesti og nauti.
Fundarhamarinn er 28 cm. langur og er
hamarshausinn úr fílabeini og á hann
skornar myndir af þremur alkunnum
fjöllum úr fjórðungnum. Eru það Dyrfjöll
í N.-Múl., Búlandstindur í S.-Múl. og
Vestra-Horn í A.-Sk. Hamarsskaftið er úr
hreindýrshorni og á að tákna Lagarfljóts-
orminn sem bugðast áfram með gapandi
gini, en beggja megin á orminn er letrað:
Búnaðarsamband Austurlands hyllir Bún-
aðarþing 60 ára.
Hefir listamaðurinn lagt mikla hugsun
og mikið verk í að gera gripina sem bezta
og fegursta og verður ekki annað sagt en
að það hafi tekizt ágætlega, sé táknrænt
fyrir þann landsfjórðung, sem þá gaf og
sýna hlýjan hug íbúanna þar til Búnað-
arþings og Búnaðarfélags íslands.
R. Ásg.
ISvað kostar jas'ðviisíislan?
Mcr datt í hug að segja hér eitt dæmi um jarð-
vinnslu. Jarðvinnslan var framkvæmd vorið 1950 í
svonefndum Skriðuhaga í Fljótsdal. Unnið var með
V 4 dráttarvél, sjálfstýrandi plóg, tilsvarandi vélinni,
og 20 diska herfi. Ég mældi út ’3 ha og var spildan
300 m löng og 100 m breið. Landið var smáþýft, eða
næstum slétt víða og algróið. Harðvellisjurtir í öðr-
um jaðri og breyttist smám saman á þessari 100 m
breidd í sambiand hálfdeigju- og harðvellisgróður.
En jarðvegur er þarna mjög blandaður sandfoki frá
Jökulsá, og þess vegna auðunninn, einkum þurrari
hlutinn. í plæginguna fóru 23 stundir. Plægt var
langs eftir og skipt í 2 umferðir. Stykkið var lítið eitt
breiðara í annan endann og tafði það nokkuð fyrir.
Strax á eftir var herfað, og eftir að sáð hafði verið í
það grænfóðri, var það, ásamt áburði, herfað niður
með sömu vél. Herfingin tók alls 25 stundir. Með 30
kr. verði á vinnustund gerir þetta 1440 kr. eða 480
kr. á ha. Réttara til samanburðar er þó að miða við
tímann, því að mismunandi verð er á vinnunni.
Jónas Péturssoon, Skriðuklaustri.