Símablaðið - 01.02.1922, Qupperneq 7
SÍMABLAÐIÐ
3
nafnsins, að blaðið flytti svo vísinda-
legar greinar, að einungis fagmenn
hefðu gagn af lestri þeirra. Eftir nokkrar
umræður bar Snorri Arnar fram svo-
bljóðandi tillögu: »Fundurinn ályktar
að ákveða ekki nafn blaðsins á þessum
fundi.« Var tillaga þessi feld. þar eð
mönnum fanst sjálfsagt að fyrsta blaðið
á þessu ári bæri hið nýja nafn, en
næsti fundur myndi ekki verða haldinn
áður en það kæmi út. Var að lokum
samþ. svohlj. tiliaga frá G. Schram,
með öllum atkv. gegn 1: »Fundurinn
samþykkir að breyta nafni á málgagni
félagsins úr ,Elektron‘ í ,Símablaðið*.«
V. Siyrktarsjódurinn. Samþykt svo-
hljóðandi tillaga frá Gunnari Schram:
»Fundurinn samþykkir að láta styrktar-
sjóð félagsins renna til bókasafns þess,
til nauðsynlegra kaupa á bókum og
bókaskáp handa safninu.«
í sambandi við þetta mál hvatti
Andrés G. Þormar félagsmenn til að
ganga í Sjúkrasamlag Reykjavíkur —
bæði til að tryggja sér styrk og til að
efla þennan félagsskap.
VI. Lifeyrissjóðurinn. Form. las upp
áskorun til aðalfundar frá fjölda félags-
manna úti um land, þess efnis, að fél.
beitti sér af alefli fyrir því, að fá lögum
um lifeyrissjóð embættismanna breytt'
þannig, að þeir, sem færu úr þjónustu
ríkisins, fengju endurgreidd iðgjöld sín
til sjóðsins, þar sem aðeins örfáir menn
af símamannastéttinni gætu nokkurn
tíma hlotið rélt til styrks. Hvatti hann
félagsmenn til að mæta á sameiginlegum
fundi póst- og símamanna næstk. föstu-
dag, þar sem rætt yrði um þetta
mál.
VII. Borin upp og samþ. með öllum
greiddum atkv. áður framkomin tillaga
viðvíkjandi Eggert Stefánssyni.
VIII. Embœitaveitingar. Um þær urðu
nokkrar umræður, út af greinum þeim
er birtst höfðu í Elektron. Álitu fundar-
menn það varhugavert, hve mörg dæmi
þess væru orðin, að mönnum utan
símans væru veittar stöður við hann,
þó starfsmenn hans sæktu um þær.
Félagið mætti ekki lengur láta slíkt af-
skiftalaust. Pað myndi verða orsök þess,
að símamenn hættu að hafa áhuga á að
menta sig og kynna sér nýjungar á
þessu sviði, og síst sæti það á stjórn
landssímans, að gefa tilefni til þess.
Fleiri verkefni lágu ekki fyrir fund-
inum.
Mættir um 30 félagar.
Fundi slitið.
Gunnar Scbram, Andrés G. Pormar,
form. ritari.
Félag’afréttir
Árni Kristjánsson er skipaður II. fl.
símritari á ísafirði, frá 1. febr. s. 1.
Gunnar Kr. Bachmann, símritari í
Reykjavík, fór í marsbyrjun til Vest-
mannaeyja og vinnur þar á stöðinni í
nokkra mánuði.
Dansleik hélt F. í. S. þ. 3. mars í
Iðnó. Voru þar flest allir simamenn í
Reykjavík og fjöldi gesta þeirra. Skemtu
menn sér hið besta, eins og æfinlega á
dansleikjum lélagsins.