Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.02.1922, Side 10

Símablaðið - 01.02.1922, Side 10
6 SÍMABLAÐIÐ hver sem í hlut á hinsvegar. Og eg vil endurtaka það, að úrslit þessa máls ráða því. Aðalkjarni málsins er ekki lengur sá, hvort starfsfólk símans þarf að vinna nokkrum stundum lengur á mánuði en verið hefir. Ekki sá, að laun símameyj- anna hafa skerst eða að símastjórnin getur, hvenær sem hún vill, hælt að gera mun á dag- og næturvinnu. Hitt er aðalkjarninn, hvort félagið knékiýpur nú svo djúpt, hvort það ber nú þann hlut frá borði, að það verði aldrei skoðað sem samningsaðili í slíkum málum. Það er komið á kné, en það verður að reisa sig á fætur attur. Og þá kemur það aldrei oftar fyrir, að breytingum, slíkum og þeim á siðastliðnu surnri, verði dembt á starfsfólk símans, án þess félagið geti þar nokkru um ráðið. En til þess að slíkt geti orðið, verður félagið að halda fast saman. Þær virðast ekki vera neilt ósann- gjarnar, eftir það sem á undan er gengið, tillögurnar sem við sendum stjórnarráðinu í haust, en þó hefir hið háa stjórnarráð enn sem komið er ekki getað samþykt þær. í Elektron hefir þó verið sýnt fram á það með rökum, að hin munnlega skýring landssímastjórn- arinnar á »nýju stundatöflunni«, við- víkjandi því atriði, að með henni sé viðurkendur munur á dag- og nætur- vinnu, er ekki nægileg. Að þess vegna geti hún óhindrað haldið áfram á þess- ari frjálslyndisbraut. Það liggur því ekkert beinna fyrir en að ætla, að félagið fái þessum tillögum ekki framgengt nema með harðri bar- áttu. Og við henni má það ekki veigra sér, jafnvel þó að til alþingis yrði að sækja, ef það viil ekki verða eins og eitt stórt 0 í viðskiftum sinum við símastjórnina framvegis. Það er auðvitað illa faiið, þegar misklíðarmál milli starfsfólks og yfiiboðara þess geta ekki orðið leidd til lykta svo báðir máls- partar geti við unað, án þess að aðstoðar væðri valda sé leitað. En einörð fram- koma fél. í þessu máli verður því aldrei til annars en sóma. Að öðrum kosti er er í það óefni komið, sem ekki getur góðri lukku stýrt. Sírnamenn um alt land verða því að standa saman sem einn maður og krefjast þess, að tillögur F. í. S. um fastan og ákveðinn starfstíma verði teknar til greina, og sömuleiðis, að fé- lagið verði af símastjórninni viðurkent sem samningsaðili í slíkum málum. Til þess vildi eg hvetja ykkur, félagar, með þessum línum, og minna ykkur á það, að stjórnin megnar ekkert í þessu máli, nema þið standið sem einn mað- ur með henni. (Frh.) Andrés G. Pormar. Póst- og símamanna- fundur. Föstud. 10. febr. 1922 héldu síma- og póstmannafélögin sameiginlegan fund á Hótel Skjaldbreið, til að ræða um lífeyrissjóðinn. Höfðu stjórnir félaganna að tilblutun F. í. S., haldið fund saman til að ræða um hvaða afstöðu félögin gætu tekið til þessa máls, og hvort þau gætu ekki unnið saman að breytingum á líteyrissjóðslögunum, þar sem þau kæmu harðast við þessar tvær stéttir. Á fundinum voru allir, að undanskild- .

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.