Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.02.1922, Page 11

Símablaðið - 01.02.1922, Page 11
SÍMABLAÐIÐ 7 um form. Póstmannafélagsins, hr. póst- meistara Þorl. Jónssyni, sammála um, að það væri réttmæt krafa frá póst- og símamönnum, að iðgjöld til lífeyris- sjóðsins yrðu endurgreidd peim, sem fara úr þjónustu landsins, en hins vegar ef til vill sanngjarnt, að sú endurgreiðsla miðist við vissan árafjölda í þjónustunni. Samþykt var að fela fulltrúum félag- anna að flytja þetta mál á fundi í full- trúaráðinu og leita aðstoðar þess í því. Að spara. Flestum mun víst flnnast það vera að bera í bakkafullan lækinn, að vera að fitja upp á sparnaðartali. Og salt er það að visu, að ekki mun hafa verið talað um annað meira nú á þessum síðustu og verstu tímum um allan heim, en að spara og aftur að spara, og jafn- framt að auka framleiðsluna. Þetta ætti að vera auðskilið og sjálf- sagt, af þeirri einföldu ástæðu, að það er engin önnur leið til út úr öngþveitinu. Um þetta eru allir hugsandi menn sam- mála. Þess vegna er það fullkomlega rétlmætt, undir núverandi alvarlegu kringumstæðum, og verður ekki gert um of, að brýna sparnað fyrir mönnum. Það þarf helst að hamra það inn í meðvitund hvers einasta manns. Ætli það yrðu margir íslendingar, sem ekki myndu bjóða fram hjálp sína af fúsum og frjálsum vilja, ef ísland væri í hættu statt og þyrfti á hjálp þeirra að halda? Ekki trúi eg því, að þeir yrðu margir. En það er einmitt þelta, sem á sér stað núna: ísland er í hættu statt og þarf á hjálp allra sinna sona og dætra að halda. Nú vill einmitt svo vel til, að allir sem vilja geta bjálpað, því hver er það, sem ekki getur annað hvort sparað meira, eða unnið meira eða bet- ur? Og ef allir gera skyldu sína í þessu efni, verður áreiðanlega ekki langt að bíða, að landið komist úr kröggunum. Annars var það aðaltilgangur minn með línum þessum, að stinga upp á því, að símamannastéttin bindist sam- tökum um, að hver einstaklingur stétt- arinnar geri sitt ýtrasta til að spara alt sem hægt er fyrir landssímann og geti þannig orðið öðrum til eftiibreytni. Til að fyrirbyggja misskilning, skal eg strax taka það fram, að það er fjarri mér að halda, að meira gangi í súginn hjá landssímanum en öðrum líkum stofnunum. En það mun víst víðast vera svo, að eitthvað mun hægt með góðu móti að spara, ef hver einstakl- ingur hefir einlægan vilja á því. Mér finst það vera ekki einungis vel við eigandi, heldur líka jnfnvel metnað- armál fyrir okkur símamenn, að ganga hér á undan öðrum með góðu eftirdæmi. Það er enginn efi á því, að við getum sparað landssímanum margan skilding- inn, ef við leggjumst allir á eitt, að vera nýtnir og sparsamir: að fara vel með áhöld og verkfæri, að fara spar- lega með eyðublöðin og eyðileggja þau ekki að óþörfu, að nota vel alt efni og láta ekkert fara í súginn. Pá lofar því þá í dag, lesari góður, að leggja þinn skerf til, svo að upp frá þessum degi má enginn sjá þig fara illa eða ósparlega með neitt, að minsta kosti ekki annara eignir. Sparon.

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.