Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2005, Side 4
4 MÁNUDAGUR 29.ÁGÚST2005
Fréttir DV
Fleiri veiði-
menn en gæsir
Gæsaveiðitímabilið er
hafið veiðimönnum til
mikillar ánægju. Jóhann
Vilhjálmsson byssusmiður
segir vertíðina byrja
rólega líkt og oft
áður. „Sumir eru að
fá en aðrir ekki,"
sagði Jóhann, en
bætti við að
aðsóknin í
gæsina væri
mjög mikil.
„Það er
rosalega mikil að-
sólcn. Eg var að koma úr
Gnúpveijahreppi og man
ekki eftir að hafa séð jafn
lítið af fugli. Hins vegar var
þar afar margt um mann-
inn." Jóhann segir tímabil-
ið hins vegar svo nýbyrjað
að ekki sé hægt að segja til
um framhaldið.
Verða kærð-
irfyrirbrot
á fánalögum
Bóndi greinir
frá ógnunum
lögreglunnar
Lögreglumenn á merkt-
um og ómerktum bílum
létu á stundum ófriðlega
og sýndu erlendum mót-
mælendum, sem á Austur-
landi voru til að andmæla
virkjanaframkvæmdum,
óþarfa aðgangshörku. Það
segir Guðmundur Ár-
mannsson, bóndi á Vaði í
Skriðdal. „Þetta fólst í lát-
lausri vöktun, bæði að
nóttu og degi," segir hann í
samtali við DV, en hann
leyfði mótmælendum að
tjalda á lóðinni hjá sér eftir
að þeir voru reknir frá
Kárahnjúkum.
Tveir menn um tví-
tugt sem klipptu niður
íslenska fánann á
stjórnarráðinu á föstu-
dag verða kærðir fyrir
brot á fánalögum og
eignaspjöll en greint er
frá því á Rúv.is. Fáninn
hafði verið dreginn í
hálfa stöng í virðingar-
skyni við látinn fyrrver-
andi starfsmann sem
borinn var til grafar á
laugardag. Þegar verið
var að draga fánann aft-
ur að húni, fóru menn-
irnir upp á þak og skáru
á fánalínu. Drógu þeir
þá upp borða með áletr-
un gegn stóriðju. Menn-
irnir tveir voru teknir
höndum og sleppt eftir
yfirheyrslur.
Mikiö hvassviðri gekk yfir Laugarvatn í vikunni sem leið. Talsverðar skemmdir
urðu á hjólhýsahverfinu þar, enda brast stormurinn skyndilega og óvænt á.
Viðvörun var send út til eigenda hjólhýsanna og brugðust margir við. Talið er að
skjót viðbrögð hafi komið í veg fyrir stórfellt tjón.
Stormur reið yfir hjólhýsahverfið við Laugarvatn í lok síðustu
viku. Skemmdir urðu á hjólhýsum, en með snarræði tókst að
íbúum og eigendum að bjarga því sem bjargað varð.
„Hvassviðrið skall akkúrat á
Laugarvatni og hef ég heyrt að fólk í
næsta nágrenni hafi ekki orðið vart
við storminn," segir Valdimar Gísla-
son, en hann rekur hjólhýsasvæðið á
Laugarvatni.
„Það var sem betur fer hægt að
koma í veg fyrir miklar skemmdir á
hjólhýsasvæðinu með því að taka
niður fortjöld og búa svo um að
vindurinn gæti ekki feykt til lausum
hlutum. Stormurinn jókst mjög
hratt og sendi ég viðvörun til fjöl-
miðla um leið og ég varð hans var,
en honum var ekki spáð fyrirfram.
Eftir tilkynninguna gerðu allnokkrir
sér ferð hingað eftir að hafa heyrt
fréttirnar og gátu komið í veg fyrir
frekari skemmdir. Ég fór svo sjálfur á
kreik og festi niður fortjöld hjól-
„Efþað fer vindur inn
í þetta þá bara
splundrast allt."
hýsanna en mestu skemmdirnar
urðu á þeim."
Að sögn Valdimars rifnuðu tæp-
lega tuttugu fortjöld eftir að vindur-
inn feykti þeim til en hjólhýsin sjálf
högguðust ekki. „Ég er búinn að
starfa hér á Laugarvatni í átta ár og
hef ég aldrei lent í öðru eins. Yfirleitt
er ekkert nema blíðan hérna og kom
þetta því dálítið á óvart. Það er þó
allt komið á rétt ról núna og fólki er
því óhætt að reisa fortjöldin á ný eða
setja blómapottana á sólpallana,"
segir Valdimar.
Sorglegt að koma að skemmd-
unum
„Það var mjög sorglegt að aka upp
að svæðinu og sjá allar skemmdim-
ar," segirÁmýJónsdóttirhjólhýsaeig-
andi. Hún og vinkona hennar, María
Kristjánsdóttir, eiga báðar hjólhýsi á
Laugarvatni og brunuðu því á svæðið
eftir að hafa fengið símtal frá kunn-
ingjum sem sögðu frá ofsaveðrinu
sem reið yfir svæðið. „Ég slapp frekar
vel og var bæði hjólhýsið mitt og for-
tjaldið í heilu lagi. Það var þó önnur
sjón að sjá þegar við komum að hjól-
hýsinu hennar Maríu. Fortjaldið var
rifið í tætlur. Hitaofninn, ferðaklósett-
ið og garðstólamir sem undir því vom
höfðu dottið um koll og máttum við
ekki seinni vera til að hindra frekari
skemmdir."
Að sögn Ámýjar skall óveðrið á
mjög snögglega og var því h'tið annað
að gera en að bjarga því sem bjargað
varð. „Það setti strik í reikninginn að
óveðrið gerði ekki boð á undan sér því
það var ekki hægt að gera neinar var-
úðarráðstafanir," útskýrirÁmý.
Slapp með skrekkinn
Einar Pétursson er einn af þeim
sem á hjólhýsi við Ástarbraut. Hans
hjólhýsi slapp blessunarlega við
óveðrið. „Ég var ekki með neitt for-
tjald þannig að það slapp," segir Ein-
ar. „Hjólhýsin sjálf sleppa en það em
fortjöldin sem eyðileggjast. Ef það fer
vindur inn í þetta þá bara splundrast
allt."
Einar segir að ástæðan fyrir þvi að
hann sé ekki með fortjaid sé sú að
hann vilji ekki taka áhættuna á að það
fjúki í óveðri. „Ég er aldrei með for-
tjald. Þeir hafa misst þetta margir
hveijir, kannski misst tvö til þrjú for-
tjöld ffá því að þeir byrjuðu að vera
með hjólhýsi. Þau kosta 150-200 þús-
und þannig að það er aðallega útaf
því sem ég er ekki með það. Þetta er
allt of dýrt að lenda í þessu."
iris@dv.is, soli@dv.is
osaveðr
leí
t
Fortjöld margra hjól-
hýsa fóru illa þegar
stormurinn skall á.
Valdimar Gíslason segist
ekki hafalentíöðru ein s
óveðri í átta ár.
Árstíðin sem drepur
Líklega hafa allir fslendingar
fundið haustið nísta inn að beini
síðustu daga. Margir hafa orðið til að
dásama haustið og meinta fegurð
þess en Svarthöfði getur ekki logið.
Haustið er illur fyrirboði. Það endar
alltaf með vetri.
Svarthöfði þakkar fyrir að hafa
fæðst á tímum vitsmuna. Það hlýtur
að hafa verið erfitt fyrir fmmmenn-
ina að vita ekki hvað var að gerast
þegar degi tók að halla til langs tíma.
Hvað myndi maður gera? Dagarnir
verða styttri, kuldinn eykst og svo
breytist vatn í ís. Þetta er eins og
heimsendir. Á hverju ári.
- Svarthöfði
Veturinn ber öll einkenni dauð-
ans. Ekkert getur vaxið á venjuleg-
um vetri. Hann er ekki gerður fyrir
líf. Nú skal enginn segja að veturinn
sé bara hluti af ósköp eðliiegri
hringrás lífsins, því sums staðar
kemur enginn vetur.
Múmínálfarnir kunnu þetta. Þeg-
ar haustið kom fóm þeir að sofa og
vöknuðu ekki aftur fyrr en á vorin.
Helst vildi Svarthöfði haga þessu
þannig. Vaka allt sumarið og sofa
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað bara mjöggott,“segirÓlöfMariaJónsdóttirgolfari.„Ég erí Finnlandiog fersvo til
Danmerkur á morgun svo það eru tvö mót eftir í sumar. Mér gekk ekki nógu vel hér i Finnlandi,
missti„köttiö“með einu höggi og er því ekki nógu ánægð, enda var égað vonast eftir að kom-
ast ígegn. Ég er hins vegar bjartsýn varðandi mótið í Danmörku. Ég er búin að æfa í Ameríku
siðustu tvær vikurnar og ég vona að ég nái mérástrik og að þetta smelli allt saman núna."
allan veturinn. Þetta hlýtur að vera
hægt. En ekki ennþá. Líklega ættum
við bara að þakka fyrir að veturinn
drepur okkur ekki, eins og var hér
áður fyrr. Og þakka fyrir allt sem
hægt er að gera, annað en hlusta á
upplestra í baðstofum og endalaust
olsen olsen eins og í denn.
Svarthöfði ætlar að eyða vetrin-
um á netinu. Á köldum vetrarkvöld-
um mun hann sitja upplýstur af
skjánum og skrifa blogg. Þar getur
hann misst sig algerlega og kallað
nafngreint fólk skítapakk, eins og
svæðisstjóri Rásar 2 á Suðurlandi.
Eða rætt í ítarlegu máli um öran vöxt
tánagla sinna og möguleg úrræði við
honum. Einhvern veginn verður að
drepa tímann.
Svarthöfði
hverfi