Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2005, Side 6
6 MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST2005
Fréttir OV
Keyrðu út af
og földu sig
Lögreglunni á Akureyri
barst tilkynning á sunnu-
dagsmorgun um bif-
reið sem farið hafði
út af veginum við M- t
Ólafsfjarðarveg. Þeg-
ar lögreglan kom á vett-
vang var enginn sjáanlegur
í bifreiðinni en farþegi og
ökumaður fundust í fjalls-
hlíðinni eftir fimm klukku-
tíma leit. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Lögreglunni á
Akureyri voru mennirnir
blautir og kaldir enda kalt í
veðri. Ástæðan fyrir flóttan-
um taldi lögreglan vera þá
að mennirnir hefðu verið
ringlaðir eftir óhappið og
ekki vitað hvernig þeir áttu
að bregðast við, en þeir
voru á lánsbíl. Málið telst
upplýst.
Fjöldi fíkla
þrefaldast
í ársriti SÁÁ
kemur fram að
fjöldi fíkla hefur
þrefaldast á und-
anförnum tíu
árum og að fíkni-
efnavandinn hafi
aldrei verið meiri
hér á landi en
einmitt nú. í árs-
ritinu kemur fram að
Reykjavík líkist í meira
mæli stórborg með tilheyr-
andi fíkniefnaneyslu, vímu-
efnin séu orðin sterkari og
að sprautufíklar hafa aldrei
verið eins margir. Vinsæl-
ustu lyfin nú eru rítalín og
vantalgin-töflur og kanna-
bisneysla eykst jafnt og þétt
í öllum aldurshópum.
Aron Pálma
heim?
Böfivar Þ. Eggertsson,
hárgreiðslumaöur.
„Það er kominn timi til að fá
hann Aron heim. Fyrst að þaö
var hægt að gera svona mikið
fyrir skákmeistarann er lágmark
að hjálpa stráknum. Dómskerf-
ið er allt öðruvisi í Bandarikjun-
um en við eigum að venjast hér.
Mér fínnst óliklegt aö viö hér
heima hefðum dæmthann jafn
harkalega. Enda varhann bara
stráklingurþegaratvikið um-
rædda átti sér stað. “
Hann segir / Hún segir
„Það er gott að Aron fái að
koma heim og lifa eðlilegu lifí.
Það er bara vonandi að
blessuðum drengum líði vel í
framtíðinni. Þessi refsing hefði
hvergi verið með þessum hætti
nema íTexas. Hann þarfaö fá
að vera frjáls og jafna sig því
þetta hefur eflaust verið mikil
þrekraun. Fjölmiðlar verða lika
að gefa honum friö því það er
áreiðanlega erfítt að fá svona
mikla athygli út afviðkvæmu
máli sem þessu."
Sigríður Arnardóttir,
sjónvarpskona.
Allt stefnir í að prófmál verði úr máli heilsunuddarans Katrínar Erlu Kjartansdótt-
ur gegn Ingu Rós Vilhjálmsdóttur, meðlimi pýramídafyrirtækisins Aquanet World.
Skrifstofur Aquanets
Pýramídinn hefur fíutt höfuð-
stöðvar sinar tll islands ikjölfar
lögreglurannsóknar á Kýpur.
„Þetta fjölþrepa sölukerfi er nýlunda fyrir mér. Getur þú útskýrt
þetta aðeins nánar," sagði Sigurður H. Stefánsson héraðsdómari
á föstudaginn en pýramídafyritækið Aquanet World kom mikið
við sögu í réttarsal hans. Sigurður átti í mestu erfiðleikum með
að skilja hinn flókna heim pýramídaviðskipta.
Aðalmeðferð var í máli Katrínar
Erlu Kjartansdóttur gegn Ingu Rós
Vilhjálmsdóttur í Héraðsdómi
Reykjavíkur á föstudaginn. Katrín og
Inga voru báðar ofarlega í
pýramídakerfi Aquanet World stuttu
eftir að fýrirtækið var sett á laggimar á
íslandi fýrir ári. Katrín dró sig hins
vegar út úr fýrirtækinu eftir að hafa
lesið fréttir DV um Aquanet og krafð-
ist þess að henni yrðu greiddir aftur
þeir fjármunir sem hún lagði í
pýramídann. Við því var ekki orðið og
ákvað Katrín því að stefna Ingu Rós.
Stærstur hluti peninganna sem
Katrín setti í fýrirtækið var lagður inn
á bankareikning Ingu Rósar en Aqu-
anet átti engan bankareikning til að
taka við peningunum. Katrín lagði
alls um 236 þúsund krónur inn í Aqu-
anet.
Sló til eftir kynningarfund
Stofnendur Aquanet World og
frumkvöðlar koma flestir úr Sprinkle
Network pýramídafýrirtækinu sem
hafði milljónir af íslendingum. For-
sprakki Sprinkle, Mark Ashley Wells,
er höfuðpaurinn í Aquanet ásamt
konu sinni Berglindi Baldursdóttur.
„Þeir pressuðu mig
mikið i að leggja pen-
inginn strax inn i
gegnum heimabanka
og hlustuðu ekki þeg-
ar ég sagðist vilja
hugsa mig um."
Fyrirtækið er rekið eftir kerfi sem
nefnt er af forsprökkum fýrirtækisins
fjölþrepa sölukerfi, en það er í raun
aðeins fínt orð yfir pýramídakerfi.
Aquanet lofar væntanlegum meðlim-
um sínum að þeir fái afsláttarkort
gegn vissum greiðslum sem þeir geti
notað hjá fýrirtækjum sem ganga í
netkerfið. Aldrei hefur orðið úr því.
Kynningarfundir á vegum fýrir-
tækisins voru haldnir í fýrra af Mark
Wells, Berglindi konu hans og Kýp-
verja nefndum Kojak. Það var eftir
einn slíkan fund sem Katrín sló til og
keypti sig inn í fýrirtækið. Aquanet
heldur enn slíka kynningarfundi í von
um að fólk borgi peninga til fyrirtæk-
Mark Welsh
Höfuðpaurinn /
Aquanetá
islenska konu.
isins. Inga Rós Vil-
hjálmsdóttir sagði á föstudag að um
fjörutíu manns væru búnir að kaupa
sig inn.
Pressuð í að leggja strax inn
„Þau sáu mikla bisness-mami-
eskju í mér og gerðu mér tilboð sem
stóð bara í einn dag," sagði Katrín
þegar hún lýsti því hvemig hún var
lokkuð til að leggja fé í Aquanet. „Allt
fór fram á ensku og ég skildi ekki alveg
allt sem fór fram. Þeir pressuðu mig
mikið í að leggja peninginn strax inn í
gegnum heimabanka og hlustuðu
ekki þegar ég sagðist vilja hugsa mig
um."
Óljós ábyrgð
Málið sem nú er rekið fyrir héraðs-
dómi er afar sérstakt. Ekki vegna þess
að um miklar upphæðir sé að tefla
heldur vegna hins flókna og næstum
óskiljanlega eðlis pýramídafýrirtækja.
Erfitt er að greina hver skuli bera
ábyrgð á starfsmönnum Aquanet ef
skortur er á efrídum. Hugtök eins og
sponsor, investor, creator, net
developer og owner em notuð yfir
einstaklinga í fýrirtækinu án þess að
auðvelt sé að sjá hver munurinn sé á
öllu saman. í aðalmeðferðinni á
föstudag stoppaði dómarinn vitnin
hvað eftir annað til að fá skýringar á
því hvað þau vom að tala um. Líklega
verður erfitt fýrir hann að komast að
því hvort einhver sé sekur í málinu,
það er að segja um eitthvað annað en
trúgimi og von um skjótfenginn
gróða.
Árstöf
Forsvarsmenn Aquanet reyna enn
að telja viðskiptavinum sínum trú um
að kortakerfi netsins muni komast í
gagnið 21. október. Því var einnig
haldið fram í fyrra, að kerfið myndi
opna 21. október það ár, en ekki varð
úr því.
„Þetta er prófmál og mér finnst
mikilvægt að ég vinni þetta mál. Því ef
ég vinn ekki er dómskerfið að leggja
blessun sína á starfsemi slíkra fyrir-
tækja," segir Katrín Erla í samtali við
DV.
andri@dv.is
T-
Fyrrverandi tæknimaður í mál við Útvarp Sögu
Eingöngu stjörnurnar fá útborgað
Halldór Ingi tækni-
maður Fær ekki launin
sln hjá Útvarpi Sögu.
Halldór Ingi Kárason tæknimað-
ur á inni 350 þúsund krónur hjá Út-
varpi Sögu. Hann hefur árangurs-
laust reynt að fá Arnþrúði Karlsdótt-
ir, útvarpsstjóra, til að borga sér en
hefur gefist upp og fengið sér lög-
fræðing. Hann segir að tæknimenn-
imir séu neðstir í goggunnarröðinni
þegar kemur að því að fá útborgað.
„Ég vann aldrei minna en 200 tíma á
mánuði á meðan ég var í fullri vinnu
á stöðinni og samt fæ ég ekki launin
m£n,“ segir hann, en Halldór vann á
Útvarpi Sögu frá júlí í fyrra og til
mars á þessu ári. „Ég er í skóla og
það er nauðsynlegt fyrir mig að fá
þennan pening," segir Halldór, sem
segist hafa haldið þessari stöð í loft-
inu á meðan hann vann þarna.
Hann segist ekki hafa viljað blanda
lögfræðingum í málið fyrr en núna:
„Ég vil þessari stöð vel og ég
kunni vel við að vinna með Arn-
þrúði." segir hann. „Ég tel mig hafa
unnið þarna samviskusamlega allan
tímann sem ég var þarna og ég er
enn að hjálpa tæknimanninum sem
vinnur þama núna. Ég skrifaði Arn-
þrúði nokkur bréf þar sem ég bauð
henni að borga mér þetta í nokkmm
skömmtum. Hún svaraði mér og
sagði að þetta myndi allt reddast,"
segir Halldór, en hlutirnir redduðust
ekki.
Halldór er ekki eini tæknimaður-
inn sem ekki hefur fengið launin sín
hjá Útvarpi Sögu. DV sagði á sínum
tíma frá Guðmundi Kristjánssyni sem
vann á stöðinni um árabÚ og fékk ekki
launin sín nokkra mánuði. Hann
þurfti fyrir bragðið að leita sér aðstoð-
ar hjá Fjölskylduhjálpinni en Am-
þrúður sagði við DV þá að Guðmund-
ur væri kominn þangað sem hann var
sóttur í upphafi. Ástandið er ekki eins
slæmt hjá Halldóri sem stundar núna
nám í stærðfræði. „Ég kemst alveg af,
en skólagjöldin vom 250 þúsund
krónur þannig að mér veitir ekkert af
þessum peningum." Halldór segist
vita af fleirum sem eigi inni laun hjá
Amþrúði en meðal þeirra em engar
útvarpsstjömur. Eingöngu tækni-
menn. jonknutur@dv.is