Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2005, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Læti í
Sandgerði
Lögreglan í Keflavík fór í
tvö útköll aðfaranótt laug-
ardags vegna til-
kynninga úr
Sandgerði. Um
eittleytið um
nóttina tilkynnti
húsráðandi í
bænum um hóp
manna sem reynt
hafði að ryðjast
inn í hús hans.
Komið hafði til átaka milli
húsráðenda og mannanna
sem enduðu með því að
maður var handtekinn og
færður á lögreglustöð. Síðar
um nóttina, um fjögurleyt-
ið, fékk lögreglan svo aðra
tilkynningu úr Sandgerði
um að brotin hefði verið
rúða í húsi i bænum. Grjóti
hafði verið hent í hana og
brotnaði hún við það. Ekki
er vitað hveijir voru að
verki. Hvorugt málið teng-
ist indversku söngkonunni
Leoncie.
Fyrstu réttir
haustsins í
Mývatnssveit
Mikið var um að vera
hjá Mývetningum í gær
þegar þeir drógu hátt á
fjórða þúsund fjár af fjalli
og í dilka. Segja menn að
féð komi vænt af fjalli
þótt veðurguðirnir hafi
ekki verið gangnamönn-
um hliðhollir. Um 3.000
flár voru dregin í dilka í
Hlíðarrétt en það er svip-
aður fjöldi og undanfarin
ár. Á árum áður var þó
mun fleira fé í réttum en
margir bændur hafa
brugðið búi seinni ár eða
tekið upp annars konar
búskap. Sauðfjárréttir
verða á 58 stöðum á
landinu í haust.
Beltanotkun
góð á Reykja-
nesbraut
Hinn margdæmdi kynferðisbrotamaður Steingrímur Njálsson hefur sést í KR-
hverfinu að undanförnu og er hann sagður fluttur tímabundið inn til vinar síns í
blokkaríbúð við Skeljagranda. Foreldrar barna í hverfinu hafa verið varaðir við.
Steingrímur Njálsson
lluttur í Vesturbæinn
Foreldrum barna í KR-hverfinu hefur verið tilkynnt að kynferð-
isbrotamaðurinn Steingrímur Njálsson sé fluttur í hverfið og búi
í fbúð hjá félaga sínum í Skeljagrandablokkunum. Nokkrir for-
eldrar höfðu samband við DV og lýstu áhyggjum sínum af því að
þessi margdæmdi kynferðisbrotamaður væri kominn í hverfið,
sem annars er mjög barnvænt en þar eru leikskólar, grunnskólar
og aðsetur KR.
Steingrímur Njálsson er þó enn
skráður í þjóðskrá til heimilis að
Skúlagötu 70. DV ræddi við ná-
granna hans á
Skúlagötunni og
kom það þeim
ekki á óvart að
frést hefði af
honum í
öðrum
hverfum.
Hann
hefði
lítið
sést í
steingrímur Njálsson
Hefur hlotið fjölda
dóma fyrir kynferðisbrot
gegn ungum drengjum.
Foreldrar f KR-h verfinu
hafa verið varaðir við
honum.
blokkinni
að undan-
förnu og
ætti það til
að leita í
húsaskjól til
vina sinna
tímabundið,
þar sem áreiti
á Skúlagötu
væri mjög
mikið.
Frí-
stundaheim-
ili Granda-
skóla og
starfsmönn-
„Einn nágranna hans
sagðiþó aðStein-
grímur ætti það til að
flytja inn á vini sína
og kunningja tíma-
bundið."
um KR-heimilisins var tilkynnt að
Steingrímur væri fluttur í KR-
hverfið.
Fengu tilkynningu seint á
föstudag
Forsvarsmenn frístundaheimil-
isins Undralands, sem staðsett er í
Grandaskóla voru seint á föstudag
látnir vita að Steingrímur hefði
sest að í hverfinu og hefði sést til
hans í grennd við skólann. f fram-
haldinu voru foreldrar þeirra
barna sem í vistun eru á frístunda-
heimilinu látnir vita.
„Ég get staðfest að við fengum
tilkynningu um þetta frá foreldr-
um í hverfinu seint á föstudaginn. í
framhaldinu létu við þá foreldra
sem við hittum vita af þessu," seg-
ir Halla ösp Hallsdóttir, forstöðu-
maður Undralands. Hún segir
einnig að tilkynningin hafi komið
það seint að ekki hefði verið hægt
að ná í forsvarsmenn Grandaskóla,
sem voru
farnir heim úr
vinnu. Einnig barst
tilkynning um
Steingrím til starfs-
manna í KR-heimil-
Á það til að
flytja tímabundið
íbúar á Skúlagötu 70 hafa þó
ekki orðið varir við að Steingrímur
flytti endanlega búferlum. Einn
nágranna hans sagði þó að Stein-
grímur ætti það til að flytja inn á
vini sína og kunningja tímabundið
og væri því sjaldséður í stigagang-
inum. Væri hann heima færi hann
yfirleitt ekki út á daginn heldur
laumaði sér út í skjóli nætur vegna
áreitis frá almenningi.
Hefur komið víða við
DV flutti í mars á þessu ári frétt-
ir af því að Steingrímur héldi til í
blokk við Ástún í Kópavogi. Einnig
var
Steingrímur talinn hafa verið á
vappi við Vesturbæjarskóla á síð-
asta ári. Síðast voru fréttir af Stein-
grími í DV í byrjun júlímánaðar,
þegar ungir drengir sögðust hafa
gengið í skrokk á honum fyrir utan
skemmtistaðinn Rauða ljónið við
Eiðistorg á Seltjarnarnesi. Stein-
grímur hefur hlotið fjölda refsi-
dóma vegna kynferðisofbeldis
gegn ungum drengjum auk dóma
vegna umferðarlagabrota. Hann
var dæmdur til greiðslu sektar árið
2000 fyrir að hafa í fórum sínum
barnaklám.
gudmun dur@dv. is
ívan Ólafsson veiðimaður Fékkháfá veiðistöng við Geldinganesið.
MikiII fengur viö Geldinganes
Fékk háfvið
„Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð
veðrið þegar eitthvert kvikindi bóks-
talega reif út línuna. Ég vissi strax að
þetta var ekki ýsutittur eða eitthvað
af því taginu. Þetta var eitthvað
miidu stærra og sterkara," segir ívan
Ólafsson, veiðimaður í Mosfellsbæ,
en það hljóp heldur betur á snærið
hjá honum á laugardagskvöldið.
Hann veiddi rúmlega eins metra
langan háf við bryggjuna rétt hjá
gömlu malarnámunni úti í Geld-
inganesi en það ku vera afar óvenju-
bryggjuna
legt að veiða háf upp við bryggju.
„Eg var bara með litla stöng og var
hálftíma að draga hann inn,“ segir
ívan sem leist ekki á blikuna þegar
hann sá fenginn. „Já, ég get ekki
neitað því. Maður var soldið stress-
aður enda ekki vanur því að veiða
svona stóran fisk," segir hann. ívan
segir að eitthvert annað öflugt kvik-
indi hafi bitið á hálftíma síðar en því
hafi tekist að sleppa. Annars ætlar
hann að stoppa háfinn upp og hafa
hann til sýnis á heimili sínu.
liggur á hjá mér að klára próftörnina sem ég er I núna,"segir Sigrún Bender, fegurð-
ardrottning og fiugnemi.„Ég er eiginlega bara að kenna sjálfri mér að læra og verð að því
fram til prófloka i desember. Svo taka verklegu prófin við og eftir þau get ég farið að ein-
beita mér að því að klára flugtímana sem ég á eftir. Mig vantar ekki nema 400 flugtíma og
þá get ég farið að sækja um vinnu."
80% ökumanna í
Reykjanesbæ nota öryggis-
belti að jafnaði. Þetta kem-
ur fram í niðurstöðum
könnunar sem lögreglan
gerði um helgina, en greint
er frá á vef Víkurfrétta.
Þessar tölur er ekki ósvip-
aðar þeim sem komu út í
könnuninni í fyrra þar sem
86% notuðu bflbelti.
Ástandið virðist öllu betra á
Reykjanesbrautinni þar
sem 94% spenntu beltin í
könnuninni sem gerð var
úr 100 bfla úrtaki. Betur má
þó ef duga skal enda skylda
að vera í bflbelti.
Keyrt inn í Snælandsvideó í Mosfellsbæ
Bílapartí endar með
árekstri
Bfll keyrði inn í Snælandsvídeó í
Mosfellsbæ á fimmtudagskvöldið.
Að sögn vitna sem DV talaði við voru
margir viðskiptavinir staddir á leig-
unni og þykir mikil mildi að enginn
slasaðist. Afgreiðslustúlka sem DV
talaði við segir að viðskiptavinir hafi
fyllst skelfingu og hlaupið út en ver-
ið fljótir að róast. í bflnum voru tveir
ungir karlmenn og tvær stúlkur sem
slösuðust ekki og segir vitnið að
þeirra helsta áhyggjuefni eftir hasar-
inn hafi verið hve löggan var lengi á
leiðinni. DV talaði við ökumanninn
og segist hann ekki kunna neina
skýringu aðra en að hann hafi ekið
Snælandsvideó f Mosfellsbæ Stella
Hallsdóttir varð vitni að þvi þegar ungir öku-
menn óku inn I leiguna á fimmtudagskvöld.
of hratt „og gleymt að bremsa".
Hann sagðist ekki hafa verið drukk-
inn sjálfur en það var „partí í bfln-
um“ sem hugsanlega varð til þess að
hann var ekki með hugann við akst-
urinn. jonknutur@dv.is
Hvað liggur á?