Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2005, Page 10
10 MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Kostir & Gallar
Jónína þykir Ijúfur karakter
og prýðilegur vinnufélagi. Þá
kemur hún sér vel inn íöll
mál.
Hún veit ekki eins mikið
um pólitík og hún heldur.
Hún er í Framsókn.
„Ég hefeiginlega ekk-
ert nema gott um hana
að segja. Hún er prýði-
tegur vinnufélagi og
Ijúfur karakter. Það er
auðvitað enginn fullkominn en
ég einblíni bara á það jákvæða
I fari hennar."
Drífa Hjartardóttir, samstarfsmaður
og vinkona.
„Hún er auðvitað mikill
skörungur og afar rök-
traust og veit slnu viti í
þeim málum sem hún
vinnur i. Það er líka
kostur við hana að hún kemur
úr atvinnulífinu ípólitíkina og
sú reynsla nýtist vel. Gallarnir
eru kannski hinirsömu. Hún
kemur alsköpuð ípólitíkina og
hún veit minna um hana en
hún heldur. Svo erhún auðvit-
að I Framsóknarflokknum sem
er mikill galli."
Guömundur Ární Stefánsson, sam-
starfsmaður í utanríkismálanefnd.
„Ég kann ágætlega við
Jónínu. Það vita allir að
hún kemur sér vel inn I
öll mál sem vissulega
er mikill kostur. Þá
finnst mér líka kostur að hún
maldar stundum I móinn þegar
hennar líkar ekki hvert flokkur-
inn hennar stefnir. Hún er ekki
eins og barn I bandi eins og
Dagný og Birkir."
Sigurjón Þóröarson, samstarfsmaður i
allsherjarnefnd.
Jónína Bjartmarz er fædd 23. desember
árið 1952 í Reykjavík. Hún er lögfræðingur
að mennt en hefur setið á þingi frá árinu
2000. Þeirri hugmynd hefur verið varpað
fram að hún leiði lista Framsóknarflokks-
ins í borginni.
Níu gistu
fangageymslur
Níu gistu fangageymsl-
ur lögreglunnar í Reykja-
vík aðfaranótt sunnudags.
Þeirra á meðal voru þrír
menn, sem handteknir
voru í miðbæ Reykjavíkur
þegar þeir reyndu að
hindra framgang réttvís-
innar og réðust á lögreglu-
menn þegar þeir reyndu
að handtaka félaga þeirra,
tvítugan pilt sem var í
slagsmálum. Þeir voru
látnir gista fangageymslur
ásamt þeim sem ágrein-
ingur þeirra stóð um.
Fimm aðrir voru látnir
gista fangageymslur,
nokkrir vegna ölvunarláta
í miðbænum og aðrir fyrir
að aka undir áhrifum
áfengis, en alls voru sjö
ökumenn stöðvaðir vegna
ölvunaraksturs.
Hinn umdeildi bankamaður Kristján B. Snorrason hefur hafið nýtt líf á Sauðár-
króki. Kristinn komst í fréttirnar í fyrra þegar hann var á móti því að merki KB
væri tekið af Kaupfélagi Borgfirðinga. Málið endaði með brottrekstri Kristjáns. en
svo komst hann aftur í fréttirnar þegar hann var sagður hafa lánað fé til manna
sem tóku þátt í svikamyllu varaþingmannsins Kristins Gunnarssonar sem sagt var
frá fyrir ári í DV.
Fréttir DV þar sem sagt
var frá brottrekstri
Kristjáns frá KB bankan-
um í Borgarnesi. Nokkrum
mánuðum siðar var sagt
að hann hefði lánað fé til
svikamyllu.
forfeðra
„Það stóð aldrei til að gefast upp þó maður hefði lent í þessum
vandræðum og nú er maður farinn norður," segir Kristján B.
Snorrason sem hefur verið gerður að útib'ússtjóra í Sparisjóði
Skagafjarðar. Áður var hann rekinn úr starfi útibússtjóra í KB
banka á Borgarnesi. Hann ætlar ekki að slá slöku við fyrir norðan
heldur og hefur j hyggju að spila bæði bridds og á bassa, en hann
er stofnandi Upplyftingar sem átti smellinn Traustur vinur.
Kristján komst í fréttirnar fyrir
um ári þegar hann var rekinn frá
KB banka, að því er talið var vegna
andstöðu hans við að merki KB-
banka væri tekið af Kaupfélagi
Borgfirðinga. Hann komst svo aft-
ur í fréttirnar þegar sagt var að
hann hefði lánað stórfé í
svikamyllu varaþing-
mannsins Kristins Gunnarssonar.
Er sagt að hann hafi hætt eftir að
upp komst að hann veitti þeim
ábyrgðarlaus lán. Þessar sögusagn-
ir hafa þó ekki komið í veg fyrir það
að hann fái aftur vinnu í banka-
kerfinu því á mánudaginn hefur
hann störf sem útibússtjóri
Sparisjóðs
Skaga-
fjarðar.
Segja
sumir að
þessi ráðn-
ing sé hluti
af yfirtöku
Fram-
sóknar-
Upplyfting áfram
Sjálfur segist Kristinn vera
ánægður með að fara norður en
þar er hann fæddur og alinn upp.
Hann flytur þangað með fjölskyldu
sína en hann á konu og þrjú börn.
„Hver veit, kannski verð ég
hérna í tuttugu og fimm ár
en það fer eftir því hvort
fjölskyldunni minni
líður vel hérna," segir
Kristján sem segist
vera búinn að ná átt-
um eftir erfitt síðasta
ár. „Ég ætíaði ekkert að
gefast upp á því að vera
bankamaður. Þá
væri ég
ekki Skagfírðingur," segir Kristján
sem er, ásamt vini sínum og fram-
sóknarmanninum Magnúsi Stef-
ánssyni, meðlimur í hljómsveitinni
Upplyftingu sem varð landsfræg
með laginu Traustur vinur. Hljóm-
sveitin er ekki að hætta þó
Kristján sé farinn norður.
jonknutur@dv.is
Krístján B.
Snorrason Ætl-
ar að hefja nýtt
líf á Sauðárkróki.
flokks
ms
Spari-
sjóð-
un-
um
Sigurður Helgason hjá Umferöarráði hræöist ekki sölu á radarvörum
Lögreglan er alltaf einu skrefi á undan
íslenskir bifreiðaeigendur, sem
hafa gaman af því að aka hratt, hafa
löngum íjárfest í radarvörum ýmiss
konar sem eiga að gera það að verk-
um að þeir geti keyrt eins hratt og
þeim sýnist án þess að
þurfa að hafa áhyggj-
ur af hraðamæling-
um lögreglunnar.
Búðir með rafeinda-
búnað auglýsa radar-
vara grimmt og
höfða til þess
að kaup-
endur geti
sloppið
við
hraða-
Sigurður Helgason
hjá Umferðarráði
Segir radarvara vera
afar lélega fjárfestingu.
sektir og punkta hjá lögreglunni.
DV hafði samband við Sigurð
Helgason hjá Umferðarráði og spurði
hann hvort það væri eðlilegt að fyrir-
tæki hvettu til lögbrota líkt og þessar
búðir gera með auglýsingum sínum á
radarvörum. Sigurður sagðist ekki
hafa miklar áhyggjur cif því þar sem
það hefði sýnt sig að lögreglan væri
alltaf skrefi á undan radarvömnum í
hraðamælingum sínum.
„Þessir radarvarar em ekki nógu
góðir og ég ráðlegg fólki alfarið frá því
að kaupa þá. Það er ömgglega hægt
að finna betri not fyrir peninga,"
sagði Sigurður, sem sagði það ekki
hafa komið til umræða að banna rad-
arvara.
„Þeir em bannaðir í sumum
löndum en ekki hér. Það hefur
ekki verið ástæða til þess að
banna þetta þvf lögreglan er
alltaf á undan," sagði Sigurður.
Jónína Jónsdóttir hjá
Nesradío sagðist selja grimmt af
radarvörum þegar DV hafði
samband við hana í gær. „Ég stað-
hæfi að radarvarar lækka irmferðar-
hraða. Þeir sem hafa radarvara em
meðvitaðri um hraðann þegar lög-
reglan er að mæla og það skilar sér í
lægri umferðarhraða," sagði Jónína.
Að sögn Jónínu em
radarvarar vinsæl gjöf hjá
útíendingum sem sækja ísland heim.
Hún sagði að þetta væri sérstaklega
vinsæl fimmtugsafinælisgjöf hjá ítöl-
um en radarvarar em bannaðir þar í
landi.
oskar@dv.is
að sögn Sigurðar.