Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2005, Side 26
26 MÁNUDACUR 29. ÁGÚST2005
Bílar TfV
Leó M. Jónsson svarar fyrirspurnum á leoemm.com og eru þær birtar á bílasíðum DV
Spunt og svarað
Bréffrá lesanda: Ég las greinarþínar
um jeppabreytingar á vefsíöu Leós. Ég
er áhugamaður um jeppa og hefgam-
an afþví að aka breyttum jeppum við
erfíð skilyrði. Hins vegarhefég gefist
upp á því að reka breyttan jeppa, bæði
vegna kostnaðar og þess hve þeir eru
erfiðir í notkun. Ég hefþví að undan-
förnu notast við óbreytta jeppa með
upprunaiegri hjólastærð frá framleið-
anda. Þannig jeppi
kemst nánast allt
ogdugarbetur.(9SSMC _'
I snjó en marg-'
ur hyggur. Þá
má nefna að
maður þreytist minna við að aka
óbreyttum jeppa og slit á tegum, stýris-
búnaði, drifbúnaði og öðru er minna,
að ekki sé minnst á miklu minni elds-
neytiseyðslu.
Ég gagnrýni ekki þá sem vilja eiga og
aka breyttum jeppum. Ég skil einnig
velþá sem hafa áhuga á þessu - en ég
held samt að flestirþeirra aki fyrst og
fremst á þjóðvegum eða innanbæjar
og breytingin sé bara eltingaleikur við
tisku eða tildur. Ég hefhins vegar oft
gagnrýnt þessa sömu menn fyrir akst-
urslag þeirra, t.d. þegar þeir aka þess-
um bílum ískafrenningi og slæmu
skyggni á þjóðvegunum og þá oft
mun hraðar en aðrir - þrátt fyrir að
vera á bilum með ótraustari akst-
urseiginleika, að mínu mati. Þeir á
breyttu jeppunum hegða sér eins og
þeir haldi að þeir þurfi ekki að sjá fram
fyrir bílinn líkt og aðrir vegfarendur.
Svar:
Mér finnst ástæða til að nefna eftirfar-
andi i sambandi við þetta bréf. Sjálfur
á ég mikið breyttan AMC C5-jeppa á
38" dekkjum og vek athygli á að marg-
ir hafa gaman afbreyttum jeppum -
þetta er einfaldlega tómstundagaman
margra - þar á meðal mín sem ekki
nota slíkan jeppa dags daglega, - bara
að eiga, aka og stússast í kringum
breyttan jeppa er hvlld.
Margir eru á sömu skoðun og bréfritari
um að flestum jeppum sé breytt ein-
ungis til að sýnast. Engu að síður er
það staðreynd að með ákveðnum
breytingum er hægt að auka notagildi
jeppa til ákveðinna ferðalaga í
óbyggðum þar sem sérstakar aðstæð-
ur eru ráðandi, ekki síst að vetri til. Og
ekki ersama hvernig að breytingum er
staðið (en um það fjölluðu skrifmín
fyrst og fremst auk þess sem ég gagn-
rýndi að reglum um ástand breyttra
bíla og endurbyggðra (t.d. tjónabíla) sé
ekki fylgt eftir við árlega skoðun á bíl-
um - sem sést m.a. á þvf að skoöunar-
fyrirtækin hafa ekki einu sinni nauð-
synlegan tækjabúnað til þess.
Lætin sem urðu út afþessari gagnrýni
minni komu mér ekki á óvart - jeppa-
breytingar er talsverður iðnaður sem
veltirstórum fjárhæðum - breyting á
nýjum jeppa kostar t.d. um og yfir eina
milljón króna án þess að teljast meiri-
háttar. Við jeppabreytingar fást, sem
betur fer, vandvirkir fagmenn þótt inn-
an um séu fúskararsem bregðast
snakillir við hvers konar gagnrýni, sem
þeir vita að getur ógnað peningaleg-
um hagsmunum þeirra. Ég erþeirrar
skoðunar að auka megi öryggi i um-
ferðinni með því einu að þeim reglum,
sem gilda um breytta bíla, sé framfylgt
afskoðunarfyrirtækjum og veittsé
eðlilegt aðhald með umferðareftirliti
lögreglu.
Jeppar eru vinsælir. Mig grunar að það
hafi minna með jeppaeiginleika að
gera en látið er í veðri vaka og á þá við
jeppa sem margir nota til daglegs
brúks ístað fólksbíls. Ég erþeirrar
skoðunar að margir, sem gera sér grein
fyrirþvíhve umferðin er orðin hættu-
leg vegna skorts á löghlýðni, vegna
kæruleysis, ruddaskapar og frekju telji
öryggi sínu best borgið á sem stærst-
um og þyngstum bíl og velji þvíjeppa.
Cetur ekki verið að i augum margra sé
stór, upphækkaður 3ja tonna jeppi á
risahjólum einhvers konarsálræn
trygging fyrirþvi að verða ekki slas-
aður, limlestur eða drepinn vegna
framferðis ökuníðinga í umferðinni?
Spurt um relmar: Ég var að hafa
áhyggjur afalternator-reiminni i bíln-
um mínum. Hvað gerðist efhún færi
nú allt í einu og ég væri út á landi?
Vökvastýrið fer út og altenatorinn
hættir að snúast. Kæliviftan er líklega
rafmagnsknúin en hvað með vatns-
dæluna er hún tengd tímareiminni eða
erhúná sömu reiminni og alternator-
inn? Ég gæti væntanlega ekið án
vökvastýris en efvatnsdælan fer útþá
er ég í vondum málum eða hvað?
Fyrir nokkrum árum sá ég neyðarreim,
einhvers konar teygju sem smella átti
upp á trissurnar og mátti notast við i
neyð. Ég spurði um slíka reim í Stillingu
en hún var ekki til - en þeim leist vel á
hugmyndina. I Bílanausti kannaðist
enginn við neyðarreim. Er eitthvað til
sem hægt er að nota sem neyðarreim?
Svar:
Isumum vélum knýr tímareimin vatns-
dæluna, m.a. í einhverjum gerðum af
Renault og því ekki hætta á að vél of-
hitni þótt alternatorreim slitni.
Teygjureimar voru til fyrir nokkrum
árum en eftir að flatar fjölspora-reimar
komu ístað kílreima, sem nú eru nán-
ast reglan, hurfu þær afmarkaðnum.
Það vill til að flötu fjölspora-reimarnar
sem knýja alternator, vökvastýri og
jafnvel kæliviftu (og loftpressu) endast
miklu betur en kílreimar auk þess sem
á þeim eru sjálfvirkir strekkjarar sem
ekki var auðvelt að hafa á kílreimum
vegna þess að strekkisvið þeirra er
miklu meira. Ending flötu reimanna er
jafnvel meiri en tímareimar og reglan
sú að skipta um báðar samtímis.
Reimavandamál eru því áreiðanlega
ekki eins atgeng nú og þau voru t.d.
fyrir áratug. Nota þetta tilfelli til að
benda á að lengd kilreima er mæld á
ytri hringferlinum - þar sem reimin er
breiðust.
Spurt um oliumiðstöðvar: Veistu
hvar maður getur nálgast olfumiðstöð
fyrir diseljeppa, upplýsingar um slik
tæki og jafnvel hvar maður getur feng-
ið olíumiðstöð keypta? Hverjirsjá um
að setja svona tæki ibílinn?
Svar:
Seljendur nýrra olfumiðstöðva eru
Bílanaust (Eberspacher) og Bílasmið-
urinn (Wabasco). Steinmar Gunnars-
son plastsmiður hefur sett olíumið-
stöðvar í fjölda báta og bíla - hann veit
allt um þessi tæki og er I simaskránni.
Netfangið hans varsiðast
þegar ég vissi
steinmarg
@hotmaií.com
Bílasérfræðin
Smábílar í sókn
Smábflar frá Suður-Kóreu hafa
sterka stöðu á markaðnum.
Hyundai hefur lagt mflda áherslu á
að auka gæði sinna bfla og hefur
fengið árangurinn staðfestan, meðal
annars í gæðamælingum J.D. Power
í Bandarflgunum (www.jd-
power.com). Til að lífga upp á sölu
smábflanna hefur Hyundai m.a.
beitt tíðari útlitsbreytingum. Einn
vinsælla smábfla er Hyundai Matrix
sem nú hefur fengið andlits- og bak
hlutalyftingu, en Matrix er að því
leyti öðru vísi en flestir
smábflar að hann ei
boðinn með 3 vélum
sem aliar eru yfir
hö. Ein þeirra er ný 1,5
lítra dísilvél sem er 102
hö og með hámarkstog
234 Nm við 2000 sm. Matrix dísfl-
bfllinn mun vera með sprækustu
smábflum. Eyðslan er
5,4 lítrar í blönduðum akstri.
■
Pfírsí lu' líynnir nýjnstn hörniuii
'hnrulraU a 5,4 sekiuiíhim. % ,
Jf i • * •» ■ WrrSe- 8 « * "»•« *.
Aukin áhersla á aldrif
í október mun Porsche hefja sér-
staka kynningu á nýrri kynslóð 911
sportbflsins með fjórhjóladrifi. Um
er að ræða seríu nýrra gerðar.
Porsche Carrera 4 Cabriolet er með
3.6 lítra flötu vatnskældu 6 sflindra
vélina í 325 ha útfærslu. Þessi opni
sportbfll er 5,3 sekúndur að ná 100
km hraða frá kyrrstöðu og há-
markshraðinn er 280 km/klst. Þegar
Porsche gefur upp hámarkshraða er
það ekki sá hraði sem bíllinn nær,
heldur sá sem halda má klukku-
stundum saman á þýskum átóban -
hafi bflstjórinn nægilegt úthald.
Carrera 4S er öflugra afbrigði með
3,8 lítra vélina, 355 ha og er sá
sneggri - nær 100 km hraða á 4,9
sek.
Carrera 4-bílarnir eru búnir
sjálfvirkri aflmiðlun frá miðdrifi um
tölvustýrða seigjukúplingu; drifafl
framhjólanna er breytilegt eftir þörf
fyrir veggrip, frá 5 og upp í 40%. í
fljótu bragði er ekki sjáanlegur mik-
ill munur á útliti nýja opna 911-
bílsins eftir því hvort hann er með
afturhjóladrif eða aldrif. Við nánari
samanburð sést að aldrifsbfllinn er
nokkru breiðari - undirvagninn,
þ.e. hjólbotninn, er 44 mm breiðari.
Sérfræðingar sem hafa átt þess kost
að taka þennan nýja opna 911 Car-
rera til kostanna eru á einu máli um
að Porsche hafi tekist betur en flest-
um öðrum framleiðendum sport-
bíla að gefa opna bílnum viðunandi
botn- og snerilstyrk - en það hefur
löngum þótt ókostur opinna sport-
bíla hve þeir vilja „liðast".
Þá þykir frágangur Porsche á
þakhlífinni úr mjúku plastefni vel
heppnaður, en rafbúnaður setur
hana upp og tekur niður á 20 sek-
úndum og virkar upp að 50 km/klst.
Þakhlífin með búnaði vegur 42 kg
sem er nærri helmingur þyngdar
hlífa úr málmi eins og hafa verið á
eldri opnum Porsche 911. Þá hefur
Porsche þróað frekar veltiboga og
aukið öryggið með hraðvirkari sjálf-
virkni. Bogamir em úr sérhertu þol-
stáli, annars vegar innbyggðir í
framrammann en hins vegar em
tveir sjálfvirkir bogar sem skjótast
upp aftan við aftursætið í neyðartil-
fellum.
Auk þess þykir Porsche hafa tek-
ist vel upp með öryggismálin að
öðm leyti en þau em, eins og við er
að búast, sérstakur kapítuli í opn-
um bfl. Öryggispúðar em inn-
byggðir ofarlega í hurðunum en
þeir vernda höfuð gegn hliðar-
höggi. Þá em Thorax-öryggispúðar
innbyggðir í hliðar framstólanna og
aðalpúðar hvor sínu megin fyrir
framan bílstjóra og farþega í fram-
sæti.
Til að tryggja sem mest öryggi í
akstri er PSM-kerfið (Porsche
Stability Management). PSM er eins
konar akstursgát sem er óáþreifan-
leg þar til tölvukerfið „skynjar"
ákveðna hættu. Sú hætta er skil-
greind sem ástand þar sem stöðug-
leiki er farinn að nálgast ystu mörk,
en þá tekur kerfið í taumana. PSM-
kerfið heldur utan um önnur kerfi
svo sem ABS-læsivörn, spólvörn og
drifmiðlun og getur þannig numið
þá krafta sem verka á bílinn og
valda t.d. undir- eða yfirstýringu
(hliðarskriði). í nýrri útfærslu hefur
nýjum þætti verið bætt við PSM-
kerfið, en það er styrkstýring sem
eykur bremsuafl eftir ákveðnum
álagsbreytum t.d. í neyðartilvikum.
Nýi 911 er fáanlegur með keramísk-
um bremsudiskum (PCCB) eins og
eldri gerðir.
Þegar hætta er á að bfllinn missi
jafnvægi, veggrip eða rásfestu tekur
PSM-kerfið fram fyrir hendur bfl-
stjóra og beitir stýringu í gegnum
hinn ýmsa búnað bflsins þannig að
veggrip og jaftivægi haldist. Prófan-
ir hafa sýnt að PSM-kerfið eykur ör-
yggi umtalsvert, sérstaklega þegar í
hlut eiga ökumenn sem ekki eru
þaulvanir svo öflugum sportbflum
sem 911 er.
Stöðugleiki þessara mögnuðu
sportbfla er aukinn með tölvu-
stýrðu kerfi sem nefnist „Porsche
Active Suspension Management"
eða PASM-kerfið. Það gegnir því
hlutverki að draga úr lóðréttum
hreyfmgum og halla bflsins í akstri
við mismunandi álag og aðstæður.
Kerfið stýrir m.a. þrýstingi í
dempara hvers hjóls og getur
þannig gegnt fleiri en einu hlut-
verki; með því getur ökumaður val-
ið stinnari eða mýkri fjöðrun eftir
því hvað hentar aksturslagi; það
tryggir hámarksveggrip og jafn-
framt stöðugleika: Bfllinn verður
öruggari, skemmtilegri og þægi-
legri. PASM-kerfið er staðalbúnað-
ur í 911 Carrera 4S.