Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2005, Síða 32
32 MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST2005
Menning 1>V
Ólöf Ingólfsdóttir, Harpa Arnardótt-
ir, Ástrós Gunnarsdóttir og Nadine
Banine Þær Ólöfog Nadine eiga báöar
verk á hátiöinni sem veröa fiutt um næstu
heigi DV-mynd Stefán
DANSHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR
var startað á laugardag með
kynningu og forsýningu á nýja
sviði Borgarleikhússins. Þar var
komið saman margt manna úr
dansgeiranum sem skemmti
sér við spjall, myndbandssýn-
ingar af dansverkum og flutn-
ing á samstarfsverkefni dansara
og leikara af þremur þjóðern-
um. Enginn opinberra fulltrúa
ríkis og bæjar var á opnuninni.
ALÞJÓÐLEGT yfirbragð er á
hátíðinni sem nú verður haldin
í fjórða sinn. Listamenn frá sex
þjóðlöndum koma að verkun-
um og verða átta sviðsverk á
fjölunum frá fimmtudegi í
næstu viku. Þá verður dans-
myndum gert sérstaklega hátt
undir höfði á
hátíðinni, en
myndbandið er
f vaxandi mæli notað sem birt-
ingarform fyrir dansverk, nú
nærri hálfri öld eftir að frum-
kvöðlar nútímadansins reyndu
að slá saman mynd og dans-
hreyfmgu vestur í Bandaríkjun-
um.
Flugur
SYND að aðeins verður ein
sýning á hverju þeirra verka
sem í boði er. Frá fimmtudegi
fram á sunnudag eru kvöldsýn-
ingar, en á laugardegi verða
myndbandsverk sýnd í Regn-
boganum. Þá verður sérstök
sýning fyrir börn á sunnudags-
eftirmiðdag.
DANSHÁTÍÐIN er sprottin
úr grasrótinni og er einstakt
tækifæri fyrir almenning að
setja sig inn í þá strauma sem
leika um dansgólfið. Mörg
þeirra verka sem hér eru á ferð-
inni eru á leið út í heim á
smærri og stærri danshátíðir.
Listdansinn er það form ís-
lenskra sviðslista sem víðast fer
og gætir mikillar grósku í dans-
inum sem vonandi stendur af
sér það hausthret sem nú næðir
um ungviði danslífsins og blæs
um byggðina úr Skuggahverf-
inu.
UM HELGINA lauk sýning-
um á vegum fsbrjótsins, sam-
norræns verkefnis til að brjóta
niður veggi milli sjónlista og
sviðslista. Þær sýningar sem
voru um helgina verða ekki
endurteknar. Fram undan er
Bókmenntahátíð með alþjóð-
legu sniði og verða menn að
hafa sig alla við til að fylgjast
með öllu því sem er á boðstól-
um þessa dagana.
Rúmenar vinna í Höfn
Það var Faröu og liföu, kvik-
mynd unnin í samvinnu ísraela og
Frakka sem var valin besta mynd-
in á Kvikmyndahátíðinni í Kaup-
mannahöfn á laugardagskvöld.
Leikstjórinn er rúmenslcur, Radu
Mihaileanu. VerÖlaunaafhending-
in fór fram í Cirkus-byggingunni í
miðborg Kaupmannahafnar, en
Baltasar Kormákur sat í dóm-
nefndinni ásamt Nick Roeg,
Susönnu Bier, og leilcurunum
Asinee Khanjium og Ude Kier.
Sérstök verðlaun nefiidarinnar,
Grand Prix, féllu í hendur öðrum
Rúmena, Cristi Puiu fyrir myndina
Dauöi hi. Lasarus. Norski leik-
stjórinn Bent Hamer var valinn
besti leikstjórinn fyrir Factotum
sem er norsk-amerísk samfram-
leiðsla. Þessar tvær uppskáru
Gyllta svaninn fyrir besta karl og
lcvenhlutverkið sem þau Ioan
Fiscuteaunu og Lili Taylor hirtu.
Tíu myndir kepptu í aðalkeppn-
inni.
Faröu og liföu hlaut bestu
handritsverðlaunixm en í mynd-
inni segir frá dreng sem þykist
vera gyðingur til að Ufa af. Þá voru
veitt verðlaun fyrir kvikmynda-
töku, besta kvenleikstjórann,
Costa Gavras og Nic Roeg fengu
ferilsverðlaun og þeir Nils Malm-
ros og Emir Kusturica heið-
ursverðlaun.
Seta Baltasars í valnefndinni er
til marks um vaxandi veg hans á
alþjóðlegum vettvangi og eykur
hróður hans sem bíður nú nýrrar
prufu þegar Lítil ferö til himna
verður frumsýnd.
Baltasar Kormákur Vegur
hans vex á aölþjóöavettvangi.
DV-myndTeitur
Boðuð lokun á Listdansskóla íslands hefur vakið mikla athygli en menntamálaráð-
herra hefur ákveðið að loka skólanum að loknu þessu starfsári. Skólinn er eini list-
dansskólinn sem hefur mátt til að að kenna listdans svo dugi nemendum til starfsþjálf-
unar, þeirrar stopulu vinnu sem fæst listdansi hér á landi og frama erlendis. Skólinn
stendur á gömlum merg og er kjölfestan í listdanslífi í landinu. Menntamálaráðherra
hyggst koma dansmenntun fyrir í framhaldsskólakerfinu og telur væntanlegt leikfimi-
hús Menntaskólans við Hamrahlíð duga sem ræktunarstöð listdans í framtíðinni.
Leitað var til nokkurra einstaklinga sem hafa tengst listdansi,
höfunda, dansara og kennara úr dansgeiranum og óskað eftir
áliti á þeim fregnum sem borist hafa úr menntamálaráðuneyt-
inu. Eftir könnun DV síðustu daga er ljóst að sú gagngera breyt-
ing sem ráðuneytið hyggst gera á stöðu listdansins í menntakerf-
inu er án nokkurs samráðs við greinina: Dansráð, Félag íslenskra
listdansara, forstöðumenn einkaskóla, sem eru sjö starfandi í
greininni, forstöðumenn leikhúsa, Bandalag sjálfstæðra leik-
hópa, en innan þeirra er að finna fjölmarga smærri dansflokka,
Listaháskóli íslands sem hefur nýlega stofnað framhaldsbraut
fyrir dansara; ekki hefur verið leitað til eins eða neins um þær
óljósu hugmyndir sem ráðuneytið virðist hafa um málið. Einn
viðmælanda blaðsins orðaði það á þann veg að skrifstofumenn í
ráðuneytinu vissi einfaldlega ekkert hvað þeir væru að gera.
Bára Magnúsdóttir dans-
ari og framkvæmdatjóri
Oansræktar JSB
DV-mynd Heiða
Bára Magnúsdóttir dansari og skólastjóri
„Maður er að velta þessu fyrir sér og reyna að
halda ró sinni. Það er fyrst að spyija hvað komi í
staðinn ef Iistdanskóli íslands verður lagður nið-
ur. Ef ekki verður fundin lausn á framtíðarmennt-
un dansara er það skelfilegt til að hugsa. Að fram-
haldsskólar taki við þessu verkefni er skrýtin
lausn. Kennsla í dansi heimtar sérhannað hús-
næði sem þeir ráða ekki yfir. Þetta nám er gerólflct
námi tónlist sem oft er tekið til samanburðar. Sú
lausn sýnir vanþekkingu á eðli námsins."
Geta einkaskólamir tekiö viö þessum þætti
menntunar?
Það yrði þá að vera gerður um það samningur
og leggja tfl þess fé. Það er ekki hægt að dreifa
kennslu í dansi í marga skóla á Reykj avflcursvæð -
inu. Það eru ekki margir sem fara á bekk afreks-
manna í dansi. Þeir þurfa þjálfun daglega fimm
daga vikurmar, tvo og hálfan tlma dag hvem.
Þekking er til að annast þessa þjálfun. Það er ekki
málið. En menntun sem þessi kostar meira en
fjölskyldur geta borið eða einstaklingar. Hún
kostar peninga. Þetta er því mikil afturför ef af
verður."
Irma Gunnarsdóttir
danshöfundur og kenn-
ari, formaður Félags
fslenskra listdansara.
DV-myndHeiöa
Irma Gunnarsdóttir danshöfundur og
formaður Félags íslenskra listdansara
„Þetta ber brátt að, undirbúningur málsins
er skrýtinn. Ekki er haft samráð við neina fag-
aðila heldur bara tilkynnt að það eigi að loka
skólanum. Breytinga kann að vera þörf í mál-
efnum Iástdansskólans og þær geta verið til
batnaðar, en svona ákvörðun er ekki hægt að
taka nema að vel athuguðu máli. Sú stefna sem
ráðherra hefur boðað er óskýr. Stjóm Félags
listdansara mun funda með ráðherra og við
höfum leitað eftir stuðningi Bandalags ís-
lenskra listamanna. Við höfum ekki efni á
svona stóra skrefi afturábak. Það er búið að
leggja gríðarlegan kraft í að koma dansinum á
þann stað sem við erum nú stödd. Þessi
ákvörðun ber vott um mikið skilningsleysi hjá
stjómvöldum á stöðu dansins og eðli listgrein-
arinnar."
Ástrós Gunnarsdóttir dansari, dans-
höfundur og framkvæmdastjóra
Reykjavik Dance Festival
„Þetta er bara skandall. Ráðuneytið getur
engu svarað. Með þessu óljósa fyrirkomulagi
verður listrænt uppeldi fyrir borð borið. Hver á
að vera samræmingaraðili fyrir dansmenntun í
landinu? Það er til námsskrá í Iástdansskólan-
um sem samin var fyrir fimm árum og er fyrir-
liggjandi á heimasíðu skólans. Þar er stefna
skólans sem ráðuneytið hefur samþykkt fyrir-
liggjandi. Það er ekki hægt að opna framhalds-
deild í Listaháskólanum á sama tíma og lokað er
grann- og framhaldskennslunni í kerfinu. List-
dansskólinn hefúr búið við slæm rekstrarskil-
yrði og verið rekinn með bullandi tapi í langan
tíma. I tíð fyrrverandi ráðherra var lofað ijár-
veitingum til framhaldsdeildar sem ekki var
staðið við. Þetta er avanhugsað sem mest getur
verið."
Ástrós Gunnarsdóttir
dansari, höfundur og
kennari.
DV-mynd Stefán