Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2005, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2005, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 Fréttir DV Fimmtugur í hnappheld- una Jóhannes Kristjánsson eftirherma hélt upp á fimm- tugsafinæli sitt á Núpi í Dýrafirði á laugardag. Fyrr um daginn höfðu hann og unnusta hans Halldóra S. Sigurðardóttir gengið að eiga hvort annað á Brekku á Ingjaldssandi en fáir vissu að það stæði til. Um kvöldið var haldin afinælis- og brúð- kaupsveisla og meðal þeirra sem stigu á stokk og héldu ræðu var Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra en Jó- hannes er hvað þekktastur fyrir að herma eftir Guðna. Þetta vakti milda lukku og að borðhaldi loknu var dansað fram á nótt. Bólan er sprungin! Arnór Sighvatsson, aðal- hagfræðingur Seðlabankans, sagði á morg- unverðarfundi Viðskiptaráðs íslands á Hótel Sögu í gær- morgun að vextir í heimin- um væru í 100 ára lágmarki. Óeðlilegt væri að búast við að það ástand myndi vara að eilífu. Fundarmenn voru almennt sammála um að ástandið í hagkerfinu væri neikvætt, sveiflan komin í topp. Auka bæri því sparn- að og minnka neyslu al- mennings með öllum til- tækum ráðum. Lagí Júróvisjón? Karl Olgeirsson tónlistarmaöur. Nei, ég held ekki. Ég sendi inn tvö lög síðast þegar það var undankeppni og tapaði þá mjög illa. Ég treysti mér eigin- lega ekki til að taka þátt aftur. Annars elska ég Júróvisjón og keppnin er ein afástæðunum fyrir því að ég gerðist tónlist- armaður. Hann segir / Hún segir Nei, ekki séns. Það er ekki fyrir mig. Ég elska samt Júróvisjón, en bara upp að vissu marki. Ef ég mundi taka þáttþá mundi ég vilja syngja frumsamið lag eftir sjálfa mig. Ekki eftir ein- hvern annan. Anna Katrfn Guðbrandsdóttir söngkona. Dómendur í Baugsmálinu taka ákvörðun fyrir 20. september um hvort hluta þess, eða jafnvel öllu málinu verði vísað frá dómi. Aukaþinghald var í Baugsmálinu í gær og voru þá ræddir þeir annmarkar sem dómendur hafa bent á í bréfi sem þeir sendu til málsaðila. Jón H.B. Snorra- | son Umkringdur fréttamönnum í lok þinghaldsins. Jón H.B. Snorrason ríkissaksóknari freistaði þess í héraðsdómi í gær að sannfæra dómendur í Baugsmálinu um að vísa málinu ekki frá dómi. Aukaþinghald var í Baugsmálinu í gær vegna bréfs sem dómendur sendu málsaðilum en þar er lýst áhyggjum yfir að annmarkar séu á ákærunum. Jón sjálfur og Baugsákærumar í heild sinni vom um leið harðlega gagnrýndar af höfuðpaur verj- enda Baugsmanna, Gesti Jónssyni. Baugsverjend- ur Hristu hausinn yfir málflutningi saksóknara í gær. I „Rökrétt niðurstaða dómsins er að vísa öllu málinu frá," sagði Gest- ur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar, í gríðarlega mikilvægu aukaþinghaldi Baugsmálsins í gær. Hann sagði ákærur ríkissaksóknara á hendur Baugsmönnum einkenn- ast af fljótfærni og óvandvirkni. Það sé afrek miðað við að rannsókn málsins hafi tekið þrjú ár. Gestur segir að ómögulegt sé fyrir verjendur að taka til varna í málinu þar sem ekki sé skýrt nægilega vel hvað það er sem sakborningar hafi gert af sér í bréfi Péturs Guðgeirssonar til málsaðila koma fram áhyggjur yfir að saknæmum verknaði sé ekki íýst nægilega vel í ákærum á hendur Baugsmönnum sem þingfestar voru 17. ágúst síðastliðinn. Jóni H.B. Snorra- syni var gef- inn kostur „Rökrétt niðurstaða dómsins er að vísa öllu málinu frá." Jón er harður á sínu Jón minnti dómendur á mál þar sem komist hefði verið að þeirri nið- urstöðu að verknaðarlýsing í ákær- um hafi ekld verið nógu skýr án þess að málinu hafi verið vísað frá dómi. Sagði hann að nóg sé að ákærðu sé ljóst hvað ákært sé fýrir. „Málsvöminni þarf að vera áfátt vegna annmarkanna til að ákæmm sé vísað frá dómi,“ sagði Jón og bætti við að svo væri ekki í þessu máii. Sakborningum sé fulljóst hvert sak- arefnið sé og þeir hafi þegar lýst hug sínum til þess, en allir sakborning- amir kváðust saklausir af ákæmm og sögðu þær rangar við þingfest- ingu málsins í ágúst. Stefán einn mættur Að svo búnu laukjón Snorra- son máli sínu. Á þeim klukku- tíma sem mál- flutningur hans tók mátti nokkrum sinnum sjá , a að tja [ sig um H þetta í ik auka- r Þins- haldinu í gær. Jón Asgeir Hafði öðrum hnöppum að hneppa I gær. Jóhannes i Bónus Hefur sagtmáliö verajortúr". Tryggvi Jónsson Sagðist saklaus I þingfestingunni eins og allirhinir. Kristín Jóhannesdóttir Er framkvæmdastjóri í fjölskyldufyrirtækinu Gaumi. verjendur sakborninga hrista haus- inn eða glotta við tönn. Svipaða sögu er að segja af Stefáni Hilmars- syni, erjdurskoðanda Baugs og eina sakbomingnum sem var viðstaddur aukaþinghaldið í gær en hann sat við hlið Söm Daggar Jónsdóttur, upplýsingafulltrúa Baugs, í dómsalnum. Pínlegar villur Gestur Jónsson steig þá í pontu og benti á að annmarkarnir í ákær- um saksóknara væm mun fleiri en þeir sem dómendur benda á í bréfi sínu. Til dæmis er kennitala Gaums, sem er fyrirtæki í eigu Bónusfjöl- skyldunnar, röng í ákæmnum. Einnig vakti hann athygli á þeirri pínlegu staðreynd að þótt ákærum- ar eigi, samkvæmt skjölum málsins, að vera nfu talsins vanti ákærukafla númer sjö. „Slíkar fljótfæmisvillur er auðvelt að lagfæra," sagði Gestur en bætti við að það væri hins vegar ekki hægt í öðrum og stærri göllum líkt og þeim sem dóm- endur hafa þegar bent á. Undarleg fljótfærni Gestur sagði að ákærurnar bæm þess merki að vem- Gestur Jónsson VerjandiJóns Ásgeirs gagnrýndi ákærurnar harðlega I gær. lega hafi skort á vandvirkni við gerð þeirra og bætti við að svo virtist sem ákæruvaJdið hafi beinlínis ekki gefið sér tíma fýrir vandvirkni. Dæmi um þetta segir Gestur vera að síðasta skýrslutaka við rannsókn málsins hafi farið frarn klukkan 16.45 daginn áður en ákæran var birt Jóni Ásgeiri og félögum. Þetta segir Gestur vera undarlega fljótfærni, sérstaklega í ljósi þess að ákæran er í 40 liðum og byggir á þriggja ára rannsóknar- vinnu. Þrír valkostir Péturs Niðurstöðu Péturs Guðgeirsson- ar dómara er beðið í ofvæni en hann stendur frammi fyrir þremur val- kostum; að fallast á útskýringar Jóns H.B. Snorrasonar og fara með málið í aðalmeðferð; að vísa hluta ákær- anna frá og halda áfram með rest- ina; eða þeim sem Gestur Jónsson krafðist, að málinu í heild sinni verði vísað frá. Niðurstöðu er að vænta 20. sept- ember. andri@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.