Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Söfnin verði
auglýst
Hilmar Malmquist, for-
stöðumaður Náttúrufræði-
stofu Kópavogs, hefur lagt
til við bæjaryflrvöld að átak
verði gert í að kynna nátt-
úrufræðistofuna og bóka-
safn bæjarins. Lista- og
menningarráð bæjarins
hefur rætt tillögu Hilmars
um að kaupa 24 birtingar á
skjáauglýsingum í Ríkis-
sjónvarpinu fyrir 240 þús-
und krónur. Einnig eru
menn í ráðinu að velta því
fyrir sér að útbúa kynning-
arbækling sem dreift yrði í
öll hús í bænum.
Peningur
fyrir titil
Hestamaðurinn Sig-
urður Straumijörð Páls-
sonfær 100 þúsund
króna styrk úr bæjarsjóði
Mosfellsbæjar sam-
kvæmt ákvörðun bæjar-
ráðs í gær. Er styrkurinn
veittur „vegna heims-
meistaratitils í 100 metra
skeiði er hann vann til á
heimsmeistaramóti ís-
lenska hestsins í Sviþjóð
í ágúst."
Tónlistarhúsið ?
Jakob Frímann Magnússon
tónlistarmaður.
„Þetta er stórglæsileg hug-
mynd og mikið fagnaðarefni
fyrir tónlistarunnendur og
iðkendur tónlistar á Islandi.
Það að fá ÓlafEliasson sem
ráðunaut hefurskilað mjög
skemmtilegri og óvenjulegri
hugmynd og þannig gæti hús-
ið komist í hóp glæstustu tón-
tistarhúsa heims. Ég hefsvo
enga ástæðu til að ætla ann-
að en að færustu menn sjái til
þess að hljómburður, lýsing og
aðstaða öll verði með besta
móti. Ég vil óska þeim til ham-
ingju sem hafa látið þennan
áratugalanga draum verða að
veruleika."
Hann segir / Hún segir
„Ég er rosalega glöð og spennt
yfirþessu og mér finnst þetta
líta mjög glæsilega út. Glæsi-
leiki hússins gæti líka leitt af
sér að ungu fólki finnist gam-
an að sækja tónleika þar og
það eitt og sér gæti orðið mikil
lyftistöng fyrir íslenskt tónlist-
arlíf. Það er samt vottur af
smástressi þegar ég hugsa um
hljómburðinn í húsinu en ég
vona að hljómburðurinn verði
góður og það nýtist vel til tón-
leikahalds."
Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari.
Listahjónin Baltasar og Kristjana Samper eru komin í mál við Söfnunarsjóð lífeyr-
isréttinda. Þau sætta sig ekki við að þurfa að greiða í lífeyrissjóð samkvæmt
nýjum lögum sem færir þeim ekki nema 2.500 krónur á mánuði í ellinni.
Baltasarhiónin í mál
Listahjónin góðkunnu, Baltasar Samper og Kristjana Samper,
hafa hvort í sínu lagi höfðað mál gegn Söfnunarsjóði lífeyrisrétt-
inda. Sætta þau hjón sig ekki við að vera skylduð til að greiða í
lífeyrissjóð samkvæmt nýjum lögum þar sem ljóst sé að þau fái
aldrei neitt út úr sjóðnum.
Eðli málsins samkvæmt hafa
Baltasar og Kristjana lengst af unn-
ið á eigin vegum og sjálf séð um að
tryggja sig fjárhagslega í ellinni
þegar hún kemur. Með lagabreyt-
ingum sem gerðar voru hér á landi
fyrir nokkrum árum voru allir
landsmenn skyldaðir til að greiða í
lífeyrissjóð, burtséð frá því hvert
starfið væri eða afkoman yfirleitt.
Tvær grímur
Baltasar og Kristjana byrjuðu að
borga í lífeyrissjóð þegar þeim barst
tilkynning þar um en þegar yfirlit
fóru að berast um réttindi þeirra
runnu á þau tvær grímur. í ellinni
átti aðeins að skammta þeim smá-
aura og það ekki í neinu samræmi
við framlag þeirra úr eigin vasa.
Skýringin einföld: Þeir sem byrja að
borga seint í lífeyrissjóð fá lítið sem
ekkert til baka.
2.500 á mánuði
Baltasar Samper er 67 ára gamall
og Kristjana kona hans að verða 61
árs. í yfirliti sem Baltasar barst frá
lífeyrissjóðnum sá hann að við 82
ára aldur myndi hann fá 2.500
„íyfirliti sem Baltasar barst
frá lífeyrissjóðnum sá hann að
við 82 ára aldur myndi hann
fá 2.500 krónur á mánuði til
æviloka. Þá var honum nóg
boðið."
Baltasar Samper
Heldur seint að byrja
að greiða i lífeyrissjóð
67 ára gamall.
Kristjana Samper
Vill sjálfráða sínu ævi
kvöldi i friði fyrir kerf-
inu líkt og bóndi
hennar.
krónur á mánuði til æviloka. Þá var
honum nóg boðið.
Lögmaður þeirra hjóna í málinu
gegn lífeyriskerfinu er Steingrímur
Þormóðsson og er málið nokkurs
konar prófmál fyrir þau öll
þar sem lögmaðurinn
sjálfur hefur lengst af
unnið sjálfstætt og
lenti því í sömu
hringavitleys-
unni og skjól-
stæðingar
hans þegar
gert var að
skyldu að
vera í líf-
eyrissjóði.
Málið
var tekið
fyrir
Héraðs-
dómi
Reykja-
ness í
fyrra-
dag.
Vopnað rán framið í Laugarnesapóteki í gær
Lögreglan yfirbugar lyfjaræningja
Vopnað rán var framið í Laugar-
nesapóteki á þriðja tfmanum í gær.
Tveir grímuklæddir menn vopnað-
ir hnífum réðust inn í apótekið og
kröfðu starfsfólk um lyf og peninga.
„Þeir komu hérna inn öskrandi og
létu okkur opna skúffur með lyfjum
og peningum. Það voru fjórir
starfsmenn í apótekinu en þrír
starfsmenn komust út bakdyra-
megin og hringdu á lögregluna,"
segir starfsstúlka í apótekinu og
bætir við að lögreglan hafi verið
fljót á staðinn. Hjá lögreglunni
fengust þær upplýsingar að lög-
reglan hafi komið á staðinn þegar
mennirnir tveir voru við það að
setjast upp í bíl í nágrenni apóteks-
ins þar sem þriðji maðurinn beið.
„Við náðum þeim á flótta og hand-
tókum alla þrjá,“ segir Sigursteinn
Steinþórsson hjá lögreglunni.
svavar@dv.is
Brottnámið
í rannsókn
„Við erum enn að rannsaka
málið en höfum ekki fundið neitt
úr eftirlits-
myndavél-
um, hvorki
ff á Laugar-
dalslaug né
Hagkaup-
um," segir
Bjamþór
Aðalsteins-
son, hjá rannsóknardeild lögregl-
unnar um mál stúlkunnar sem
tjáði lögreglu að hún hafi verið
numin á brott við Laugardalslaug
í fyrradag. Stúlkan heldur því
fram að maður hafi þröngvað sér
upp í bíl og keyrt í Hagkaup í
Skeifunni, þar sem henni hafi ver-
ið gert að máta föt meðan maður-
inn tók myndir, hann hafi síðan
borgað henni nokkur htmdruð
krónur fyrir og keyrt hana í skóla.