Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Scott Ramsey og sam-
[ býliskonan Birgitta
ganga inn t Héraðsdóm
Eiga langveikt barn og
glíma saman við sorgina.
Leikskólar og frí-
I stundaheimili Ekki
spurning með þaö
segja félagarnir i
minnihluta, Viijáimur
Steinunn Myndi
meðal annars eyða
íuppbyggingu
hafnarbakkans.
Guðný ánægð
„Ef ekki kæmi til rekstur
félagslegu íbúðanna væri
góður hagnaður af rekstri
sveitarfélagsins. En þetta
er allt á rétti leið," segir
Guðný Hrund Karlsdóttir,
sveitarstjóri Raufarhafnar-
hrepps. Rekstur hreppsins
snerist við á árunum 2003
og 2004 miðað við tvö ár
þar á undan. Hagnaður af-
sveitarsjóði var 3,2 millj-
ónir 2004 en 305 þúsund
krónur 2003. Vegna yfir-
töku sveitarfélagsins á
íbúðum í félagslega
kerfinu var tap á heildar-
samstæðunni aftur á móti
um 3,7 milljónir.
Ósáttirvið
sorphauga
Eigendur og ábúend-
ur jarðanna Grænhóls,
Strýtu og Auðholtshjá-
leigu mótmæia nýrri deil-
skipulagstillögu fýrir
Sorpstöð Suðurlands við
Kirkjufeijuhjáleigu í Ölf-
usi. Benda þeir meðal
annars á að skammt frá
urðunarsvæðinu séu
upptök þekktra lax-
veiðáa. Sóðaskapur og
mengun fylgi starfsem-
inni og að fjailasýn þeirra
muni versna. Er þess
krafist að breytingamar
fari í umhverfismat.Telja
landeigendumir
sveitarfélagið skaða-
bótaskylt sem þeir muni
sækja með dómsmáli ef
þörf krefji. Sveitarfélagið
segir unnið að því að
finna nýjan urðunarstað.
Trassar
sektaðir
Tæplega sextugur mað-
ur sem trassað hefur að
ganga frá lóð og einbýlis-
húsi sínu við Fjallalind í
Kópavogi á von á dagsekt-
um frá og með næsta mið-
vikudegi. Bæjaryfirvöld
hafa misst þolinmæði
gagnvart húseigandandum
og ætla að sekta hann um
þrjú þúsund krónur fyrir
hvern dag sem líður þar til
gengið hefur verið að fullu
frá lóðinni í samræmi lóða-
leigusamninginn sem mað-
urinn gerði við Kópavog.
Manninum hafði áður ver-
ið gefinn lokafrestur tii 1.
september.
Dramatík í réttarsal. Sambýliskona Scott Ramseys sagði kvöldið, sem Scott
varð dönskum hermanni að bana, það fyrsta sem þau hafi farið út á lífið
eftir að þau eignuðust alvarlega veikt barn sjö mánuðum áður.
Niðurbrotinn útskýrði Scott sýna hlið: Afbrýðisemi, óhófleg drykkja varð
að eitruðum kokteil sem endaði með hörmulegu morði.
„She told me to
kick that boy's ass
Stóri salurinn í Héraðsdómi Reykjaness var þétt setinn þegar
aðalmeðferð í máli fótboltakappans Scott Ramseys hófst
klukkan níu í gærmorgun. Vinir, fjölskylda og velunnarar Scott
sátu út réttarhöldin auk fulltrúa frá danska hemum. Scott
Rámsey var fyrsti maðurinn til að bera vitni. Svitaperlurnar á
enni og hikstandi rödd bám vanlíðan hans glöggt vitni.
Scott Ramsey sagði: „Ég var í verið. Birgitta sagði að þetta væri
teiti með fótboltaliðinu mínu. Við
vorum að horfa á sjónvarp og
drekka. Síðan fórum við á Kaffi
Duus. Við sátum á einu borði.
Konurnar okkar á öðru. Skömmu
síðar sá ég að Flemming er kom-
inn að Birgittu. Fannst þetta ekk-
ert mál. Fyrst. Síðan tek ég eftir að
hann hallar sér þétt upp að henni.
Eftir smá stund gekk ég að
Birgittu og spurði hvort hún vildi
koma á Traffic. Hún sagði já og
við fórum."
Scott Ramsey var snyrtilega
klæddur í svörtum jakkafötum.
Hann upplýsti að hann hefði lagt
fótboltabúninginn á hilluna. Hon-
um þætti það bera vott um virðing-
arleysi ef hann héldi áff am að spila
undir þessum kringumstæðum.
Banvænt hnefahögg
Það var á Traffic sem Scott
Ramsey veitti Flemming Tolstrup,
dönskum hermanni í æfingaferð
um ísland, banvænt hnefahögg.
Þóra Steffensen, réttarmeinafræð-
ingur, sagði fýrir dómnum í gær
höggið hafa komið efsti við hægra
kjálkabeinið og valdið blæðingu í
mjúkveijum og vöðvum sem festast
við eyrað.
Það hafi komið rifa í hálsslagæð,
fylgt hafi mikil blæðing. Flemming
Tolstrup hafi látist nær samstundis.
Scott hélt áfram: „Á leiðinni á
Traffic spurði ég hver þetta hefði
danskur hermaður. Ég spurði hvort
hann hefði verið að reyna við hana.
Hún svaraði já en hann hefði vitað
að hún væri með kærasta því hún
talaði með skoskum hreim. Á
Traffic kom Birgitta aftur upp að
mér og sagði að Flemming væri að
reyna við sig.“
Örlagaríkt samtal
Sjálf lýsti Birgitta Hrund
Káradóttir, sem var í fallegri svartri
drakt, atburðarrásinni á þann veg
að hún hefði verið að dansa á
Traffic. „Scott sat hins vegar við
barinn. Hann dansar ekki,“ sagði
hún og bætti við að þegar hún leit
upp hafi hún séð Flemming Tolstr-
up. Hún hafi svo farið á barinn þar
sem Flemming hafi haldið áfram
að „áreita" hana. Scott hafi hins
vegar brugðið sér á klósettið þar
sem kunningjakona hans stoppaði
hann. Sagði Flemming vera að
reyna við konuna hans.
Scott sagði um samtal hans og
stúlkunnar: „She told me to kick
the bo/s ass."
í gröfina
Stúlkan, feitlagin á þrítugsaldri,
sem lét þessi örlagarfku orð falla
bar vitni fyrir dómnum í gær. Hún
sagðist ekki muna eftir að hafa
sagt þetta við Scott og virtist hún
óróleg með vitnisburð sinn. Eftir
að stúlkan yfirgaf réttarsalinn bar
lögreglumaður vitni. Hann sagði
stúlkuna hafa komið til sín á
skemmtistaðnum eftir að Flemm-
ing Tolstrup féll í gólfið. Stúlkan
hafi verið æst, spurt hvort hún yrði
kærð. Kærð fyrir að æsa Scott upp.
Áður en stúlkan yfirgaf réttarsal-
inn í gær sagði hún að minningin
um þetta atvik, þetta kvöld, yrði
greipt inn í huga hennar alla tíð.
Hún myndi taka þá minningu með
sér í gröfina.
Með veikt barn
Réttarhöldin í gær fjölluðu
minnst um sekt eða sakleysi. Þau
fjölluðu um hörmulegan atburð sem
enginn gengur keikur frá. Lögreglu-
maður í vitnastúkunni sagði Scott
hálfan mann frá því sem áður var.
Vinir og fjölskylda Scotts ífá
Skotlandi veittu honum stuðning í
réttarsalnum. Erfiðast var þó þegar
Birgitta, sambýliskona Scotts,
greindi ffá fjölskylduaðstæðum
þeirra. Sagði að bamið þeirra sem
fæddist sjö mánuðum áður en ógæf-
an dundi yfir á Traffic hefði greinst
með litningargalla og væri alvarlega
veikt.
Hún sagði: „Við höfðum ekki far-
ið út á h'fið allt ffá því að bamið
fæddist. Sjálf ætlaði ég ekki einu
sinni út en þegar systir mín bauðst til
að passa ákvað ég að slá til.“
simon@dv.is
Reykjavíkurborg gerir kröfu á olíurisana þrjá vegna verðsamráðs.
Borgin fengi 150 milljónir til að eyða
„Það liggur fyrir viðurkenning af
hálfu olíufélaganna að þau höfðu
samráð í útboðinu 1996," segir Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson fýrrver-
andi borgarlögmaður en honum
var falið að meta hvort borgin ætti
bótarétt á hendur olíurisunum
þremur vegna ólöglegs verðsam-
ráðs. í kjölfarið hefur borgin gert
150 milljón króna kröfu á hendur
olíurisunum. Skeljungur fékk þessi
viðskipti og ætluðu olíurisarnir síð-
an að skipta hagnaðinum á milli
sín. En hvers vegna 150 milljónir, af
WBEBBM
hverju ekki meira eða minna? „Ef
samráðið hefði ekki átt sér stað
1996 hefðum við náð hlutfallslega
sama afslætti á gmnnverði og náð-
ist í útboðinu 2001," segir Vilhjálm-
ur en í síðara útboðinu liggur fyrir
að ekkert samráð hafi átt sér stað.
Vilhjálmur bendir á að í desember
2001, þegar enn var í gildi samning-
urinn við Skeljung frá 1996, hafi
borgin verið að borga 44,96 krónur
fyrir líterinn en mánuði síðar, þegar
nýtt útboð án samráðs hafði átt sér
stað, hafi líterinn hins vegar verið á
30,4 krónur.
„Það liggur mikið á hverr dag,"segir Hlédís Sveindóttir arkitekt.„Nú er ég að hlaupa á
fund hjá Kópavogsbæ en þar er ég með þrjú einbýlishús í teikningu og eitt þeirra verður
með stærri húsum borgarinnar. Þar á eftir fer ég á fund hjá skipulagi Reykjavlkur út af
annari byggingu sem ég er að vinna að i miðbænum. Dagarnir eru yfirleitt pakkaðir hjá
mér og ekki mikill tími fyrir annað en vinnuna. Ég reyni þó að komast á hestbak þegar
tækifæri gefst og þannig næ ég að hlaða batteríin."
DV hafði samband við fulltrúa
allra flokkanna sem eiga sæti í borg-
arstjórn og spurði þá hvað þeir
myndu gera við 150 milljónirnar fari
svo að olíurisamir borgi. Hvorki Árni
Þór Sigurðsson hjá Vinstri grænum
né Alfreð Þorsteinsson hjá Fram-
sóknarflokki vildu nefna neitt sér-
stakt, sögðu báðir að hjá borginni
væm fjöldamörg verkefni sem biðu
úrlausna. „Það er best að útdeila
ekki silfrinu strax," bætti Árni við.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir var
einnig varkár en nefndi þó uppbygg-
inguna á hafnarbakkanum sem eitt
verkefni. Ekkert hik var hins vegar á
Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni sjálfstæð-
ismanni og Ólafi F. Magnússyni hjá
Frjálslynda flokknum. „Að bæta
starfsemi leikskóla og frístunda-
heimilanna segi ég tvímælalaust,"
sagði Vilhjálmur og Ólafur bætti við
að þar væri neyðarástandið í borg-
inni um þessar mundir.
Varkárir Alfreð og Árni vildu
ekki útdeila silfrinu strax.