Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Side 31
DV Fréttir FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005 31 Úr bloggheimum LOST „í kvöld byrjaði 2. serían af LOST. Þetta var magn- þrungið. Ég hélt f mér and- anum, kreisti saman hönd- unum, neri saman höndun- um, beit mig, kipptist við, efaðist um sjálfan mig og Jesúm og bara allt. Svo margar spurningar, svo fá svör. Ég get ekki bítt eftir að sjá meira. Eiginlega langar mig að vita allt núna. Ég þoli ekki að vita ekki neitt, það er svo skringilega óþægilegt. Grimmu snillingar sem eiga sannteikann!" Haraldur Agnar Civelek - icomefrom- reykjavik.com/halli Tilvonandi hönnuður „I hönnun ermjög auðveltað fokka upp í Islenskri innanhúsdekorasjon, eins og sjá má oft og iðulega I Innlit/útlit og svoleið- is dóti. Það er eins og fólk vilji endilega breyta hlbýlum sfnum I frystihús og kalla það svo ógeðslega smart og brilljant lausn. Sem mér finnst ekki. Sem tilvon- andi hönnnuður vil ég breyta þessu. “ Solla - blog.central.is/han- gerladies Grátið afþrá „Ég var (MJÖG) stoltur meðlimur I aðdá- endaklúbbi The Boys hér á yngri árum. Ég var svo yfir mig ástfangin, afþeim báðum, að ég gat farið að gráta afþvf að hugsa um þá. Eg átti sko diskinn, og hlustaði ekki á neitt annað, stofn- aði m.a.s The Girls, og tróð- um við upp fyrir allan skól- ann. P.S. ENGIN okkargat sungið!!„Bye bye love, bye bye happiness..Hello lon- eliness..!"Já, ég táraðistyfir þessu lagi, hugsandi um þessa„töffara“, f rauðum satfnskyrtum og hvftum, útvfð- um buxum. Ja hérna!" Regina - regina.blogdrive.com/ Tyrkneski piparinn „Fáðu þér smók og sopa afkók, sjúgðíðig kosmíska krafta. Já burt séð frá kosmfsk- um kröftum þá gæti ég vel hugsað mér eina helfeita rettu og eina löðrandi kóla. Ég verð að láta mér tyrkneska piparinn duga. Hann ffla ég mjög. Þetta eru bestu brjóstsykrarnir. Ég sakna piparstang- anna. Þær voru svo dásamlegar. Hættu- legar voru þær. Efþú saugst lengi á slfkri stöng þá varð hún að oddhvössu spjóti sem gat stungist i gegnum stinnt hold tungunnar." Lóa - naridill.blogspot.com „ Eigi skal höggva" Snorri Sturluson fæddist í Hvammi í Dölum árið 1178 að því er talið er. Hann var yngstur þriggja bræðra, sá elsti hét Þórður en sá næstelsti Sighvatur. Þegar Snorri var þriggja ára gamall var hann sendur í fóstur í Odda hjá stórhöfðingjanum lóni Loftssyni. Snorri stundaði því nám í Odda á uppvaxtarárum sínum en þá var Oddi stærsta menntasetur landsins. Snorri kom mjög við sögu valda- baráttu í landinu og jók veldi sitt meðal annars með eigin kvonfangi og giftingum dætra sinna. Meðal tengdasona hans voru Gissur Þorvaldsson, Kol- beinn ungi og Þorvaldur Vatnsfirðingur. Hann bjó á Mýrum frá 1201 og í Reyldiolti frá 1206. Hann var goðorðsmaður og lögsögumaður á Alþingi 1215-1218 og aftur 1222- 1231. Hann er þar að auki einn þekktastur ís- lenskra rithöfunda og skrifaði meðal annars svo vitað sé Snorra-Eddu og Heimskringlu. Sumir Eigi skal höggva Vorusíð■ ustu orð Snorra Sturlusonar. Stytta var reist afSnorra við Reykholt árið 1947. telja hann einnig hafa skrifað Egils sögu. Snorri bland- aðist inn í mis- heppnaða upp- reisn gegn Hákoni Noregskonungi og var að þeim sökum stimplaður sem landráða- maður. Hákon konungur fékk Gissur Þor- valdsson til að drepa Snorra. Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi-stundar. Niðurlæging á kvenímyndinni GuöríðurB. Helgadóttir skrííar. Finnst ykkur ekki að þama ætti að vera KARLMAÐUR í svona stelling- um? Það er jú verið að höfða til karla með þessum auglýsingum frá Goldfinger! Hvemig haldið þið að þeir tækju því? Ég var að fikta við að teikna skegg á uppstillinguna og önnur karl- mennskutákn og þetta tók sig bara vel út! En í alvöru að tala, þá er þessi aug- lýsing svo fýrir neðan allar hellur, að það er ekki einu sinni hægt að hafa hana í flimtingum. Því auk niðurlæg- ingar á kvenímyndinni, þá er þama líka auglýst áfengi sem er bannað með lögum, það ég best veit. En svo ég snúi mér aftur að jafn- réttismálunum, þá er ég alltaf jafn undrandi og reið þegar ég sé þessi tákn h'tilsvirðingar og viðbjóðs í ldám- auglýsingum nútímans. Maður hélt þó að kominn væri tími til og öllum væri alvara með að kveða niður þann draug, samt verður mönnum enn og aftur á að nota kvenímyndina á þenn- an niðrandi hátt. Em konur ekki í óða önn að reyna að afla sér virðingar og metorða, menntunar og þroska til þátttöku á opinberum vettvangi til að bæta heiminn? Og karlmenn famir að sjá og skilja að það er líka þeirra hagur.? Hvemig stendur á þessum seina- gangi í jafnréttismálum yfirieitt, þegar allir virðast sjá og skilja að jafhrétti er eina færa leiðin til bættra lífskjara og hamingjusams lífs? Hvað er að? Er það kannski siðblinda nútím- ans í kynferðismálum yfirleitt og dýrsleg hegðun í fyrirmyndum kvik- myndaiðnaðarins, sem þröngvað er inn í stofur manns dag hvem og kvöld, þegar opnað er sjónvarp og skilaboðin sem þar blasa við augum bama og unglinga jafnt og annarra. Eða gefa stúlkur sjálfar þennan högg- stað á sér með auglýsingum eins og þeim sem birtast í iEróú'sku línunnii daglega með myndum og tilgerð.? Er ekki kominn ú'mi til að moka út úr þeirri svínasú'u.? Fimm mínútur á þrjúþúsund kall JóhannhringdL- Fyrir um mánuði sfðan fékk ég stöðumælasekt. Var rukkaður um einhvem fimmtán hundmð kall fyrir Lesendur að koma fimm mínútum eftir að tím- inn minn rann út. Stöðumælavörður- inn var ennþá á svæðinu og ég reyndi að tala við hann, en allt kom fýrir ekki - sektin stóð. Ég settist upp í bfl, henti sektinni í hanskahólfið og keyrði áfram. Síðan var það ekki fyrr en á mánudag að ég opnaði hanskahólfið aftur. Og þá blasú við mér stöðu- mælasektin, ég hafði bara stein- gleymt henni. Fór í bankann og ætl- aði að borga fimmtán hundmð kall- inn. En nei, þá hafði sektin hækkað um hvorki meira né minna en annan fimmtán hundmð kall. Samtals greiddi ég því þijúþúsund kall fyrir að vera fimm mínútum of lengi í bílastæði. Ansi dýrt það. En hver er ár- angurinn af þessu sekt- arbulli hjá borginni? Iú, næst versla ég í Kringl- unni eða Smáralind. Aldrei aftur á Tími útrunninn Og sektin ? Þrjúþúsund kall fyrir að koma fimm mfnútum ofseint. Laugaveginum. í dag áriö 1943 var Alþingi af- hent áskorun frá 270 kjós- endum um að ganga ekki frá formlegum samhands- slitum viö Danmörku. Ekki var orðið við þeim óskum. Gissur kom í Reykholt að nóttu til með sjö tugi manna. Snorri flúði ofan í kjallara en þar fannst hann og var hann veginn af Áma beisk. Síð- ustu orð Snorra vom: „Eigi skal höggva." Stytta af Snorra Sturlusyni eftir hinn norska myndhöggvara Gustav Vigeland var reist við Reykholt árið 1947. Geir Ágústsson ræðir um framboð í öryggisráðið Frjálshyggjumaðurinn segir Utanríkis- þjónusta sósíalistanna Umræðan um ffamboð íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna er brandari. Hefur einhver spurt sig að því hvaða hlutverki ís- lensk utanríkisþjónustan á að gegna? Fáir mótmæltu þegar embætti umboðsmanns íslenska hestsins var stofnað. Fáar mótbár- ur hreyfast þegar enn eitt rándýrt sendiráðið er opnað í einhverju útnáranu. Skemmtireisur hans hátignar forseta íslands um heim- inn tmfla fáa. Þátttaka íslenska ríkisins á heimssýningum og lista- viðburðum um allan heim birúst íslendingum ekki sem bullandi sóun á peningum. íslendingar vilja bmðla á alþjóðavettvangi og þykir það fínt. Það er að segja, á meðan þeir fá ekki sendan gfró- seðil vegna útgjaldanna. íslend- ingar eiga ekkert erindi í öryggis- ráðið, óháð því hvað framboð til þess kostar. Utanríkisþjónustan þarf á niðurskurði að halda. ís- lenskir embættismenn á ferðalög- um um heiminn eiga að einbeita sér að því að opna landamæri, tryggja að vörur íslendinga geti selst sem víðast, tryggja að Islend- inga geú keypt sínar vömr frá sem flestum löndum, og þar við situr. Fríverslun tryggir frið og stöðug- leika bemr en tutmgu ályktanir frá öryggisráðinu. Frjáls, kapítal- ísk rfki sem smnda viðskipti sín á milli fara ekki í stríð. Við getum haldið út okkar eigin öryggisráði sem kostar brotabrot af því sem skriffinnarnir berjast fyrir og er margfalt áhrifaríkara - öryggisráði fríverslunar. VIII að konur sameinist og hafi hátt Kona dagsins „Ég ætía að hætta að vinna klukkan átta mínútur yfir tvö þann 24. október. Þá em liðin 30 ár frá kvennafríinu 1975," segir Edda lónsdóttir, verkefnisstjóri Magn- aðrar miðborgar. „Síðan geng ég í fararbroddi krömgöngu sem ber yfirskriftina „Konur hömm hátt." Þetta var byltingardagur og vakti heimsat- hygli á þeim tíma en þrír áratugir em of langur tími fyrir of litlar breytingar. Konur em helmingur af vinnuafli á íslandi, en samkvæmt skattskýrslum em þær með ekki nema rúm 64% af tekjum karla. Við viljum að vinnuframlag kvenna sé metið til jams á við karla og hvetj- um því allar konur til að fara fram á launahækkun," segir Edda. Eddu finnst þetta ekki vera skref aftur á bak í þeirri viðleitni aðila vinnumarkaðarins að halda aftur af launaskriði? „Nei, alls ekki. Ætti „Ætti þá ekki bara að lækka karla í launum til þess að stemma stigu við því?" þá ekki bara að lækka karla í laun- um til þess að stemma stigu við því? Það em allir sammála um það að launamunur milli kynja er órétúátur en það virðast engir hafa tök á að gera eitthvað í málinu. 24,- október verður til að vekja ráða- menn og atvinnurekendur til vit- undar á þessum mun," segir Edda og vill árétta að það sé ekki sjálf- sagt að konur veljist til umönnun- arstarfa eins og í skólum og öldr- unarheimilum bara vegna þess að þær em konur og sætú sig við lægri laun. „Hvers vegna em þessi störf kölluð láglaunastörf?" spyr Edda. „Það er einfaldlega vegna þess að það er óskrifuð regla í þjóðfélaginu að vinna kvenna kosti minna." Edda Jónsdóttir sagðist undir engum kringumstæðum vilja vera „Maður dagsins" og því umbreyt- um við þessum dálk í „Kona dags- ins". sSseSSSSSHSeSSS ídi. Hún hefur BA próf (fjölmiðlafræði. _ Edda Jónsdóttir Verkefnisstjóri Magn- aðrar miðborgar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.