Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005
Menning DV
Stefán Her-
mannsson
verkfræðingur.
MORGUNINN sem
tilkynnt var hvaða
tillaga yrði fyrir val-
inu um byggingu
Tónlistarhúss birtist
áskorun til Austur-
hafnar frá stórum
hópi áhrifamanna í
íslensku tónlistarlífi
um að þar yrði
komið fyrir 200
sæta sal og tónlist-
' arfólki tryggð þar
aðstaða gegn vægu verði. Áskorun
þessi kemur fram í kjölfar greinar-
skrifa Stefáns Hermannssonarfram-
kvæmdastjóra Austurhafnar og
Kjartans Ólafssonar for-
manns tónskáldafélags- j
ins sem erað auki ein
driffjöðurin í Myrkum
músikdögum.
FYRR í SUMAR
sendu tónlist-
armenn frá sér
áskorun sama
efnis. Komið hefur
fram f skrifum Stefáns að Austur-
höfn hyggst ekkert tillit taka til
óska tónlistarmanna. í Ijósi upplýs-
inga um rekstrarfyrirkomulagTón-
listarhúss í gær er greinilegt að nú
eru islenskirtónlistarmenn komnir
upp á náð breskrar umboðsskrif-
stofu sem ætlar að leggja fram plan
í grófum dráttum um listamenn
sem verða gestir í húsinu.Tónlistar-
húsið í Reykjavík verður verstöð fyr-
ir breska umba (
alþjóðlegum
rekstri. Þetta er
heldur klúðurslegur frágangur á
mikilvægu máli.
Flugur
ERU AÐ SANNAST verstu hrakspár
umTónlistarhúsið? Það verði fyrst
og fremst rekstrareining sem taki
tillit til hinna stóru hagsmuna, Sin-
fóníunnar, ráðstefnuhalds og stærri
atburða? Hið smágerða starf minni
hópa verði fyrir borð borið og sama
langtíma sjónarmið verði uppi án
undantekninga eins og gerst hefur
með Listasafn Reykjavíkur?Verði
það úr má búast við aðTónlistar-
húsið skapi fleiri deiluefni en þörf
erá.
m'
i B
Á UNDANFÖRNUM misserum hafa
stjórnvöld gert sitt til að auka fag-
lega umfjöllun í starfsstyrkjum til
listamanna. Árlegar úthlutanir fjár-
muna standa nú í vegi fyrir að lista-
menn geti skipulagt sig til enn
lengri tfma en árs. Ef taka á upp fast
skipulag til langs tíma í öllum söl-
um Tónlistarhúss og hafa þar
hvergi afdrep fyrir smærri uppá-
komur með litla tekjuvon sem
starfa ekki á föstum fjárveitingum,
er stórum og mikilvægum þætti úr
íslensku tónlistarlífi vfsað úr húsinu.
Og það var ekki hinn upphaflegi til-
gangur - eða var það?
íslenskir myndlistarmenn ætla sér pláss í Berlínarpressunni næstu daga en fimm
sýningar opna í hinum forna höfuðstað Brandenburgar í vikunni. Hópur tuttugu
og tveggja listamanna frá Klink og Bank setur upp samsýninguna Innrás en að
auki opna Gabríela, Egill Sæbjörns og Erla Haraldsdóttir einkasýningar, en Egill
sýnir líka með Magnúsi Árnasyni og Heklu Dögg.
Flugeldar fyrir LA
eftir Heklu Dögg, 2005,
Meö leyfi Klink og Bank
Það er CIA, kynningarmiðstöð ís-
lenskra myndlistarmanna, sem stýrir
kynningunni, en sýningarhaldið er
styrkt af ýmsum aðilum: sendiráði ís-
lands, Landsbankanum og TBA2.
Sýningamar em skreyttar allskyns
uppákomum sem munu kaila á sam-
fellda umfjöliun í þýskum fjölmiðlum
og má því ætla að okkar fólki takist að
kalla á sig nokkra athygli í stórborg-
inni. En samkeppnin verður gríðar-
hörð: nú standa yfir tvær risastórar
sýningar í Berlin: Artforum er nú
haldin í tíunda sinn og Berliner-
kunstsalon er haldinn öðm sinni. Það
verða því margir um hituna og erfitt
fyrir okkar fólk að ná í gegn, hvað þá
slá í gegn.
Egill opnar
Það er Egiii sem opnar á laugardag
og verður þá fluttur gemingur, en Eg-
ill hefur búið í Berh'n um nokkurt
skeið og er þar heimavanur.
Samsýning félaga úr Klink og Bank
verður síðan opnuð þann 28. septem-
ber í Berliner Liste sem hýsti áður
Vitra-safnið. Verðu mikið um dýrðir
opnunardaginn: sýndar tvær heim-
ildamyndir, önnur um Sheep Plug -
verkefni þeirra McCarthys og Rhodes
sem hlaut menningarverðlaun DV í
myndlist í fyrra, hin hluti af heimilda-
mynd Þorfinns Guðnasonar um Ani-
matograph Schhngensiefs. Þá verða
performansar fluttir nokkrir og að
lokum lagt í hátíðarhald við hljóð-
færaslátt.
Friðriksdóttir Freestyle
Sama dag, þann 28. opnar Gabrí-
ela sýningu sína á Art Fomm. Þar
sýna 129 gallerí frá 25 löndum. Hún
sýnir í Freestyle-höUinni skúlptúra á
svæði síns erlenda galleríista Spiel-
haus Morrison. Þar heldur hún áfram
að vinna með frumstæðar manns-
myndir, töfravemr úr öðrum heim-
um, nú Ijósar og bjartar. Daginn eftir
opnar Erla Haraldsdóttir vinnustofu
sína á Kunstlerhaus Betahnien.
Þrímenningarnir, Egill, Hekla og
Magnús opna sína sýningu þann 30.
og er hún hluti af Berlinerkunstsa-
lon sem em laustengd samtök sýn-
ingarsala og haldara sem hafa sett
upp sýningar til mótvægis við Art-
fomm. Þar verður talsvert um uppá-
komur en hústeiti verður hjá íslend-
ingum á Chaussesstrasse 106 ef þú
átt leið um Berlín: þar er Ríó-klúbb-
urinn. Gus Gus þeyta.Singapore
Sling og fleiri troða upp. Það verður
því sláttur á okkar fólM. Gangi þeim
vel á þessari hámessu myndlistar í
Berlín.
:
Verk Gabrielu Friðriksdóttur
Operazione Dramatica, 2002,45
x20 X 30 cm Með leyfi Spiel-
hause Morisson Gaieri. Berlin
Danir draga til sín erlendar kvikmyndir í framleiðslu. Hér heima hafa menn
helst selt erlendum kvikmyndaframleiðendum land og mat. Menntamálaráð-
herra hefur boðað að samningur ríkisins við kvikmyndageirann verði brátt
tekinn til endurskoðunar.
Gangsteramynd klippt í Valby
Danir hafa um áratugaskeið
staðið fyrir þróttmikilli kvikmynda-
framleiðslu fyrir heimamarkað.
Ýmsar kvikmyndir þeirra á seinni
árum hafa vakið alþjóðaathygli og
sumar náð nokkurri dreifingu. Iðn-
aður þeirra byggir á fornum grunni.
Þar í landi eru kvikmyndaver, fram-
leiðslufyrirtæki á í vinnslu frumein-
taka og sýningareintaka, auk fjölda
framleiðslufyrirtækja sem sækja
fjármagn tii erlendra samstarfsaðila.
Þá er í landinu virtur kvikmynda-
skóli sem hefur lagt iðnaðinum til
þjálfaða starfskrafta, Danski kvik-
myndaskólinn. Danska kvikmynda-
stofnunin er styrkt myndarlega til
reksturs cinemateks í höfuðborg-
inni og stundar kraftmikla þjónustu
fyrir skóla og félagasamtök. Allt eru
þetta stoðir fyrir iðnað sem stendur
undir nafni og skilar afúrðum fyrir
heimamarkað og nær æ stærri sneið
af heildarsölu, miðum, spólum og
diskum.
Það hefur aftur skort á að iðnað-
urinn danski hafi náð til sín verkefh-
um til vinnslu í landinu sem hér hef-
ur gerst, bæði vegna landslags og
vegna endurgreiðslu á sköttum.
Nordisk Film sendi frá sér fréttatil-
kynningu í vikunni og greindi ffá
áfangasigri í markaðssókn dansks
kvikmyndaiðnaðar. Samframleiðsla
á vegum enskra og írskra aðila mun
á næstu vikum fullvinna kvikmynd í
Valby. Myndin heitir Johnny Was og
státar af nöfnum á borð við Roger
Daltrey og Lennox Lewis í aðalhlut-
verkum. Nordisk er samffamleið-
andi en myndin var filmuð í Belfast
og London. Framleiðslukostnaður
er fjórar miljónir dala eða um tæpar
þijúhundruð miljónir íslenskra. Er
frumsýning áætluð 2006. Myndin er
spennumynd um gangstera og er
handriti líkt við þekktar engilsax-
neskar myndir í þeirri grein eins og
Long Good Friday og Sexy Beast.
Arangur Dana er athyglisverður
fyrir tvennt: aðstaða þeirra til
vinnslu er skiptimynt í samffam-
leiðslu og þar í landi þykir aðkoma
Nordisk sæta miklum tíðindum. Hér
á landi hafa erlend kvikmyndafyrir-
tæki komið með verkefni í tökur og
hefur endurgreiðsla skatta greitt fyr-
ir götu þeirra. íslensku kvikmynda-
iðnaður hefur verið óvenju undan-
látssamur um skilyrði, ólíkt því sem
tíðkast í öðrum löndum. Mætti ætía
að að það væri eitt þeirra atriða sem
samningsaðilar, Félag Kvikmynda-
gerðarmanna, Samband íslenskra
kvikmyndaframleiðaenda og Leik-
stjórafélagið þyrfti að taka upp í nýj-
um viðræðum við menntamála-
ráðuneyti sem ráðherra boðaði ný-
lega að hefja þyrfti að nýju eftir að
hún fór ásamt stöllu sinni, Valgerði
Sverrisdóttur, til Toronto á alþjóð-
lega kvikmyndahátíð.