Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Side 11
Fréttir FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005 11 Átakafundur hjá Heimdalli í gær breyttist í sigur fyrir Bolla Thoroddsen, formann Heimdallar. Hópur innan félagsins hafði hótað að sniðganga fundinn vegna óánægju með fundarboð. Það skipti þó ekki sköpum því hátt á þriðja hundrað manns mættu til að styðja formanninn. „Þessi ótrúlega mæting staðfestir þann kraft sem er í hreyfingunni." „í gær barst stjórn Heimdallar bréf með kröfu um félagsfund. Þetta er félagsfundur," sagði Bolli Thoroddsen, formaður Heimdallar, í gær á fundi félagsins í Valhöll. Fundi sem í fyrstu var búist við að yrði átakafundur en breyttist í sigur fyrir Bolla og stuðningsmenn hans. Hátt á þriðja hundrað manns mættu til að styðja Bolla. Hart var barist meðal ungra Sjálf- stæðismanna í gær. Hópur innan Heimdallar hafði daginn áður mót- mælt opinberlega skipun stjórnar Heimdailar á fulltrúum félagsins á Landsþing Sambands ungra Sjálf- stæðismanna. Óánægjuhópurinn sakaði Bolla og hans stjórn um að sniðganga gamla og gilda félags- menn og skipa í staðinn vini og kunningja sem fulltrúa. Þess var krafist að félagsfundur yrði haldið hið fyrsta. Bolli varð við því. Bolli gagnrýndur En þó Bolli hefði boðað fundinn var baráttunni ekki lokið. Stuttu eft- ir hádegi í gær barst aftur yfirlýsing frá óánægjuhópnum þar sem boðun fundarins var gagnrýnd, sagt að fyr- irvari væri of skammur og fundurinn á almennum vinnutíma. Hópurinn sagðist ætla að sniðganga fundinn og halda eigin félagsfund. Davíð Þorláksson, lögfræðinemi Davíð Þorláksson Forsvarsmaður óá- nægjuhópsins sem sniðgekk fund Bolla. og forsvarsmaður óánægjuhópsins, sagði í samtali við DV að Bolli nyti ekki mikils álits félagsmanna. „Hann er ekki hugmyndafræð- ingur, ekki hægrimaður, ekki sann- gjam og afar ólýðræðslegur,11 sagði hann. Fullt út úr dyrum Bolli Thoroddsen lét gagnrýni óánægjuhópsins sem vind um eyru þjóta. Ákvað að halda fundinn sem hann segir að sé fullkomlega lögleg- ur. Og þau rök að fyrirvarinn væri of stuttur tæklaði hann í ræðu sinni með upphafsorðunum þar sem hann fagnaði því hve margir væru mættir. Stemningin á fundinum sjálfum var spennublandin. Eftir stutta tölu vom greidd atkvæði um tillögu stjómar Bolla. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum nema sjö og fundinum slitið. „Mér fmnst þetta sigur í ljósi yfir- lýsinga þess efnis að fundurinn væri illa boðaður og auglýstur," sagði Bolli vígreifur eftir fundinn. „Þessi ótrúlega mæting staðfestir þann Bolli Thoroddsen, formaður Heimdall- ar Túlkar fundinn sem sigur f yrirsig og stjórnina. kraft sem er í hreyfingunni. Við tók- um þá ákvörðun að skipa virka fé- lagsmenn sem fulltrúa og þessi fundur sýnir að við tókum rétta ákvörðun." simon@dv.is Fjölmennur fundur í Valhöll Tillaga Boiia Thoroddsen var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta á fundinum I gær. Össurri Skarphéðinssyni hótað á vefsíðu hans Segist hafa séð það svartara „Ég held að þú ættir að leita þér að annarri vinnu elsku kallinn minn. Þú fékkst á baukinn í kvöld. Arnar Jensson er mun trúverðugri en þú. Skítlegar ásakanir þínar og dylgjur sæma ekki alþingismanni.'' Þetta er dæmi um það sem skrif- að er á kommentakerfi Össurar Skarphéðinssonar. Undir ritar Guð- mundur Jónasson: „Ekki veit ég á hvers vegum þú starfar í raun en að reyna að grafa undan réttarríkinu með þessu óábyrga tali þínu er firra. Er það þinn vilji að draga úr tiltrú al- mennings á lögreglu og ákæru- valdi?" Þessi skrif og önnur, sem varla er hægt að túlka nema sem hótanir undir rós, hafa birst á síðu Össurar eftir að hann ritað grein þar sem segir að embætti ríkislögreglustjóra sé í höndum óhæfra manna. En Öss- ur segist ekki skelkaður. „Ég veit að við búum í réttarrfki og ég nýt skjóls og öryggis lögreglunnar ef á þarf að halda," segir Össur og Uær. „Reynslan sýndir að í kommentakerfi skrifa menn oft nafnlaust með heldur harkalegum hætti. Jafnvel ógnandi. Reynsla mín er hins vegar sú að það ger- i vefinn lifandi og spontant." „Það er algerlega óþolandi að menn eins og þú skuli endalaust komast upp með að skíta útlögregl- una með aIgerlega þekkingarlausum skrifum um vandasöm störfhennar. Farðu ífrí, langt frí. “ Svo ritar maður sem kallar sig Runólf. Aðspurður segist Össur ekki taka þessu sem dulbúinni hótun. Össur segist ekki vita hverjir eru að skrifa né hyggst hann láta rekja það. „Allir hafa málfrelsi, líka á mín- um vef. Þó kysi ég að menn sem brúka harkalegt orðfæri gerðu það undir fullu nafni. Mér kemur hins vegar ekki til hugar að breyta þessu. Við stjórnmálamenn erum ýmsu vanir og lendum oft í því að allskon- ar fólk hringir í mann með hreinar ógnanir. Ég hef séð það svartara en þetta," segir Össur og vekur athygli á því jafnframt að fjölmargir rita á vef- inn sem eru skoðanabræður sínir. jakob@dv.is Nemendur beðnir afsökunar Hafrún Dóra Júlíusdóttir, for- maður fræðslu- ráðs Hafnar- ijarðar, svaraði á miðvikudag bréfi Foreldra- ráðs Hafnafjarðar sem ritaði ffæðsluráðinu vegna slæms ástands í Hvaleyrarskóla nú í skólabyijun. Foreldraráðs segir meðal annars í bréfi sínu að kennslustofur, eldhús, starfs- mannaðstaða og tækjabúnaður hafi ekki verið tilbúinn þegar kennsla hófst. í svarinu til For- eldraráðsins er þetta harmað og foreldrar, nemendur og starfsfólk beðin afsökunar á óþægindun- um. Sudoku-æði tröllríður heimsbyggðinni Best að nota blýant „Þetta er hættulega ávanabind- andi,“ segir Ásmundur Helgason út- gefandi nýrrar bókar sem inniheldur 109 japanskar Sudoku talnagátur. Landsmenn hafa ekki farið var- hluta af Sudoku æðinu sem nú tröll- ríður heimbyggðinni. Fbl, Mogginn og Blaðið eru öll með sudoku dag- lega og fólk virðist ekki fá nóg. í það minnsta telur Ásmundur það fyrir- liggjandi. „Sambærilega bækur hafa verið á metsölulistum um allan heim und- anfarin ár. Þetta kom fyrst fram í Japan, þar sem það sló í gegn árið 1986, og hefur síðan farið sigur- göngu um heiminn," segir Ásmund- ur en hann er framkvæmdastjóri N29 - sem er nýtt fyrirtækis sem helgar sig einu og öðru, meðal ann- ars útgáfumálum. Vitað er að íslensk útgáfufyrirtæki hafa haft það á verk- efnaskrám sínum að gefa út Sudoku-bækur en N29 ríður á vaðið. Ásmundur segir bókina eiga vel við allstaðar: „Á ferðalögum, í sum- arbústaðnum... jájá, líka á klósett- inu. Og best er að nota blýant." Súpa og hollur og ferskur salatbar í hádeginu Afar glæsilegt hádegishlaðborð m.a. fiskur, lambalæri m/bernaise, svínasteik o.m.m.fl. kr. 1080- r. 1490.- Steikarhlaðborð á sunnudögum fyrir alla fjölskylduna frá kl 18.00- Kr. 2.490,- Simi: 553 9700

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.