Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005 Heimilið DV Mummi þjöl leysir Steina sleggju afí bili sem þúsundþjalasmiður DV og reddar málunum fyrir lesendur. Hann tekur á móti ábendingum og svarar spurningum lesenda i gegnum netfangið heimili@dv.is. Haltu kryddjurtunum ferskum Kryddjurtir haldast ferskar við stofuhita í upp undir viku með því að skera sentimetra af stilkunum, stinga þeim í vatnsglas og setja glerkúpu yfir. Þetta sparar bæði ís- skápapláss og er flott sem skraut. Til þess að jurtirnar haldist út vik- una verður að skipta um vatn í glasinu á þriggja daga fresti. Epal heldur upp á 30 ára afmæli sitt um þessar mundir. í tilefni af því var þremur hönnuðum og einum myndlistarmanni boðið að sýna verk sín í Epal. DV kíkti í Epal og tók myndir af nokkrum fallegum hlut- um sem þar eru til sýnis. í þetta sinn er markmiðið ekki að smíða neitt, heldur létt kennslustund í notkun lóðbolta. Fyrst er að byrja á að ákveða hvað á að lóða og finna lóðbolta sem hentar tfi verksins. Þeir lóðboltar sem eru frá 10-25 w (vött) eru mest notaðir í rafmagnstæki og lóðningar á þeim. Þeir sem eru svona 100 w eru oft notaðir í heimaföndur og þeir stærstu sem eru um 250 w eru notaðir í þakklæðningar eða stærra föndur. Lóðboltar Þessirþrlrerufrá 10-100 vött. Bland [ poka Þaöerhægt aö nota lóðbolta á ýmsa málma. Element úr einhverri græjunni Svona smá- hlutireru lóöaðir. Hitað vel Þaö er árlöandi aö sýna þolinmæöi. Hlutirnir eru festir saman Tininuersvo potaðlsáriö. Góð vinnuað- staðafiesferoð hafa sem minnst drasl á borðinu. Galdurinn er að hita nógu vel Lóðun gengur út á að festa saman tvo málma með tini og aðalgaldurinn er að hita efnið sem maður ætl- ar að festa saman vel fyrst þannig að tinið bráðni þegar það kemur við málminn sem á að lóða. Ef tinið snert- ir kaldan málm festist það ekki við hann. Boltinn er lagður þétt upp að efninu og svo er beðið og þolinmæð- in verður að vera til staðar. Þetta þarf að gera við báða hluti, hvort sem það eru vírendar eða stærri stykki og þegar báðir fletir eru orðnir heitir er hægt að leggja þá saman og pota tininu í sárið og þá bráðnar það sam- an. Mummi þjöl ítrekar að nauðsynlegt er að hafa umhverfið sem lóða á í sem hættulausast. Ef notast er við borð er best að hafa sem minnst á því og hafa góðan stað þar sem lóðboltinn er lagður á milli notkunar svo ekki kvikni í kofanum. Vatið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur & FOSFOSER MEMORY Umboðs- og söluaðill sími: 551 9239 Ertu með góða ábendingu? Sendu okkur tölvubréfá heimiH@dv.is efþú ert meö ábendingar um skemmtilegt viöfangsefni á heimilisslöur DV. 1. Pottar og pönnur taka gjarnan mik- ið pláss. Gott ráð er að hengja upp flotta stöng i eldhúsið, setja á hana S- laga króka og hengja upp pottana og pönnurnar. 2. Til að halda blómunum ferskum er sniðugt að bæta töflu afasperíni í vatnið eða sitthvorri teskeiðinni afedik og sykri. 3. Efþú átt von á gestum í heimsókn og þú nennir ekki að hafa sjónvarpið til sýnis, þá er gott ráð að eiga fallegt heimili skilrúm sem hægt er að setja fyrir framan settið. 4. Efsófinn er Ijótur og slitinn og þú hefur ekki efni á bólstrun þá er hægt að kaupa sérstóran ferning afefni sem þér þykir smart og þekja sófann með því og hann er eins og nýr. 5. Efþú ert orðin/n leið/ur á gervi- blómunum í vasanum ístofunni er sniðugt að setja tölur eða hnappa i vas- ann til að fríska upp á útlitið. Einnig er hægt að nota glerkúlur, sand og fleira.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.