Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2005, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005 Síðast en ekki síst W Thomasi Beckett slátrað Hinrik gaf aldrei útskipun um að erkibiskup skyldi drepinn - en honum varþað ekki á móti f.lHt V.V' Slátrað með velþóknun en ekki samkvæmt skipun kóngs ,Ætlar enginn að losa mig við þennan skaðræðis prest?" mun Hinrik II Englandskonungur á 12. öld hafa hrópað þar sem hann var staddur úti í Normandí. Hann var að vísa til erkibiskupsins af Kant- araborg - Thomasar Beckett - sem reynst hafði kóngi afar óþægur ljár í þúfu. Fjórir riddara Hinriks, þeir Hugh de Mor- ville, William de Tracy, Reginald Fitz Urse, and Richard Ie Bret voru viðstaddir og ákváðu að fara til Ha? Englands. Og banka uppá hjá Beckett. Þegar erkibiskupinn neit- aði að fara að tilmælum þeirra, að náða menn sem hann hafði gert út- læga úr kirkjunni, brytjuðu þeir hann niður með sverðum sínum. Hinrik var laus við Beckett en gaf þó aldrei út skipan um að honum skyldi slátrað. Þessi saga hefur leitað á menn undanfarna daga nú þegar rætt er um það hvort Baugsmálið sé af pólitískum toga eða ekki. Hvað veist þú um Hugleik Dagsson 1 Hvað er Hugleikur gam- all? 2 Hvað heitir leikritið sem er verið að setja upp eftir hann? 3 Hver setur það upp? 4 Hvaða bók er að koma út eftir hann? 5 í hvaða hljómsveit syngur Hugleikur? Svör neðst á siðunni Hvað segir mamma? „Ég ætla rétt að vona að þetta fari vel/ segir Agústa Þyrí Andersen, móðir Willums Þórs Þórssonar, þjálfara Vals I knattspyrnu. „Ég er Valsari núna eins og Willum en hann var aiinn upp sem KR-ingur. Það var erfitt isumar þegar KR og Valur spit- uðu en maöur styður sinn mann. Við foreldrarnir höfum alltafstaðið með syni okkar i gegnum allan knattspyrnu- ferilinn og lika eftir að hann byrjaði að þjálfa. Við mætum á alla leiki.“ Agústa Þyrf Andersen er móðir Willums Þórs Þórssonar knatt- spyrnuþjálfara. Hún ætlar á völlinn á morgun en þá mætir lið sonar hennar, Valur, og Fram í bikarúr- slitum. 1. Hann er 27 ára gamall 2. Það heitir Forlist okkur. 3. Það er Nemendaleikhúsið I samvinnu við CommonNon- sense. 4. Hún heitir Bjargil okkur. 5. Hún heitir Útburð- ur. Ólafi Teiti líkl við svín og Cameron sagöur lyga- laupur Heiftarleg ritdeila háleitra blaöantanna „Undir venjulegum kringum- rasisti, að hæstaréttardómari stæðum myndi ég ekki svara slíkum rógburði. Ég lærði ágætis reglu snemma í lífinu, og sú regla er „ekki glíma við svín því þá endar þú í svaðinu, og það er nákvæmlega þar sem svínið vill hafa þig“. En Ólafur viðrar skoðanir sínar á undirstöðum góðrar blaðamennsku, og þar af leiðandi finnst mér ég knúinn til að svara honum," skrifar Bart Camer- on ritstjóri tímaritsins Grapevine. Er hann nú kominn í heiftarlega ritdeilu við Ólaf Teit Guðnason blaðamann Viðskiptablaðsins sem birti í síðasta blaði grein um það sem hann segir hreinar og klárar rangfærslur í Grapevine - uppspuna og áróður. Og veltir því fyrir sér hvort Bart Cameron kunni ekki ís- lensku... eða ensku. Þau mál sem Ólafur telur til marks um rangfærslur Grapevine eru vitanlega eitt og annað sem stend- ur upp á Sjálfstæðis- flokkinn í meðförum Grapevine: Að ríkis- stjórnin sé hip-hop- gengi sem fyrir- skipar ákærur, að Gísli Marteinn sé (Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður) segi alla í íslensku við- skiptalífi seka og að enginn dæmi séu um foreldra sem hafa fengið leyfi hjá vinnuveit- enda sínum til að taka fæðingaror- lof. „Við verðum bara að vona að þetta heyrist ekki mjög víða, þetta píp." Cameron svarar Ólafi Teiti á vefsíðu Grapvine f miklum pistil: „Á heildina litið vil ég gera athugasemd við það að eina gagnrýni Ólafs sem á við rök að styðjast, kemur ekki fram fyrr en í 7. máls- grein hans. Fram að því eru sex málsgreinar af rógburði með upp- hrópunarmerkjum, og eftir það eru tuttugu og níu málsgreinar þar sem ráðist er á Grapevine." Báðir hafa háleitar hugmyndir um blaðamennsku en saka þó hvor annan um að vera á vafasömum for- send- um í skrif- um sínum. Ólafur Teitur bendir á að einn sérfræðinga Camerons sé með honum í hljóm- sveit en Cameron segir Ólaf Teit málpípu Sjálfstæðisflokksins og vin Gísla Marteins - í því ljósi ber að skoða skrif hans. jakob&dv.is Dagur gleði og bjartsýni „Það má segja að þetta hafi verið stærsta faglega stund í llfi mínu til þessa. Ég er þama að taka við verðlaunum úr hendi Sverris Hermannssonar þáverandi mentamálaráðherra fyrir bestu tillöguna í norrænni samkeppni um byggingu tón- listarhúss á íslandi," segir Guðmundur Jónsson arkitekt um gömlu myndina sem var tekin á degi mikillar gleði og bjartsýni í júní árið 1986. „Myndin er í hróplegri mótsögn við það sem er að gerast í dag því það er á hreinu að vissir aðilar hafa snúið dæminu algerlega við. Það er horfið ffá til- lögum sem fagfólk í samtökum um bygg- ingu tónlistarhúss var búið að velja og far- ið í allt aðrar tilllögur á allt öðrum for- sendum. Samtökin voru búin að setja heilmikið fjármagn í þetta og borgin var búin að lofa landi undir húsið inni í Laug- ardal. Svo var riki og borg ekki tilbúið að leggja í þetta þegar á hólminn var komið og málið var sett í salt," segir Guðmundur. Guðmundur hefur verið búsettur í Noregi síðustu þrjátíu ár en er mikið heima á íslandi. „Ég er búinn að vera í allskyns verkefnum hér úti og í dag leyfir tölvutæknin manni að vinna hvar sem er í heiminum. Teikningamar eru enga stund að fara með símalínu heimshoma á milli." Guðmundur tekur við verðlaunum Besta tilllag- an að tónlistarhúsi Krossgátan Lárétt: 1 prestshempu, 4 milt, 7 agar, 8 fen, 10 nöldur, 12 sekt, 13 kjök- ur, 14 hagnaðs, 15 eykta- mark, 16 kjáni, 17 hjara, 21 bjálki, 22 blundi,23 hljóp. Lóðrétt: 1 hrúga, 2 reykja,3 hjálpaði, 4 galli, 5 trylla, 6 kaðall, 9 aðgætin, 11 vænn, 16 liðug, 17 beiðni, 19 gruna,20 beita. Lausná krossgátu u6e 07 'Bjp 6 L '>|S9 L l 'ujg g l 'jnQo6 l l jn>|OA 6 '6919 'ejæ s 'jmue>|ueA y jiuisQn £ 'ejp z 'sp>| 1 :U3JQ9~| •uubj iz Ijpw zz 'Jnejs \z 'bjeíq 81 '099 9 L 'U9U s 1 'SQje y 1 j>|>ia £ 1 ^os z l 'Bðeu 0 L 'Qbas 8 'JBQjs l TBbba y '|9Í>| l Talstöðin FM 90,9 Hafliði Helgason ritstjóri Markaðarins fjallar um ýmsa þætti viðskiptalífsins. _ Alla virka daga kl. 17:30 MARKAÐURINN <

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.