Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2005, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2005, Page 14
14 MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER2005 Fréttir DV Weah meðfor- ystu í Líberíu Knattspyrnuhetjan Ge- orge Weah hefur forystu í forsetakosningunum í Lí- beríu þegar búið er að telja um 80% atkvæða. Weah, sem var á sínum tíma einn besti knattspyrnumaður heims og lék með Mónakó, AC Miian og Chelsea, hefur fengið tæpan þriðjung atr kvæða en hann sækir fylgi sitt að mestu leyti til ungu kynslóðarinnar. Weah mun væntanlega ekki ná helm- ingi atkvæða og því er lík- legt að kjósa þurfi aftur á milli hans og hans helsta keppinautar, Ellen John- son-Sirleaf. Hungursneyð í Malaví Bingu wa Mutharika, forseti Malaví, hefur lýst yfir neyðarástandi í landinu vegna yfirvofandi hung- ursneyðar sem gæti leitt hálfa þjóðina til dauða. Uppskeran í Malaví hefur ekki verið í lélegri í áratug og hafa Sameinuðu þjóð- imar áætlað að allt að fimm milljónir manna muni þurfa hjálp. Mut- harika hefur hingað til ver- ið gagnrýndur iyrir að stinga höfðinu í sandinn vegna vandamála Malaví en nú virðist hann hafa opnað augun. Kafað eftir Palme-morð- vopninu Kafarar leita nú að vopninu sem notað var til að myrða Olof Palme, þáverandi fm,-, sætisráðherfa Svíþjóðar, árið 1986. Á laugar- daginn fóm fjórir kafarar ofan í Gavle-ána rétt utan Gavle eftir að ábendingar bámst um að morðvopnið væri þar. Vitni segist hafa séð mann kasta einhverjum hlut ofan í ána viku eftir morðið og hafa furðað sig á því að hann skyldi stoppa á brúnni því það sé ekki venjan. Hjálparþyrla brotlenti Pakistönsk herþyrla brotlenti vegna vonskuveð- urs í gær. Þyrlan var að koma úr leiðangri með hjáipargögn og hjálpar- starfsmenn til fórnarlamba jarðskjálftanna í Kasmír- héraði þegar óhappið átti sér stað. Sex manns, þar af fjórir pakistanskir her- menn, létust í slysinu og hafa pakistönsk yfirvöld þegar hafið rannsókn á málinu. ff Doktor dauði" be Nasistaveiðarar hafa að öllum líkindum fundið Aribert Heirrt. nasistalækninn sem þekktur var fyrir tilraunir sínar á föngum nasista í útrýmingarbúðum gyðinga í seinni heimsstyrjöldinni. Heim er talinn halda til á Spáni. tefe;: m . ■ .. Aribert Heim er 92 ára gamall. Fyrir flestum er hann aðeins há- vaxinn, gamall maður með stóra fætur og ör á hægri kinn frá eyra að munnvikinu sem hefur tekið sér bólfestu, líkt og svo margir aldnir Evrópumenn, í spænska bænum Palafrugell á Costa Brava á norðvesturströnd Spánar. Heim á sér þó fortíð sem fæstir vildu kannast við. Hann var læknir nasista í síðari heimsstyrjöldinni ogfékkviðurnefnið „Doktor dauði" fyrirvið- bjóðslegar tilraunir sínar á föngum. Hann var kærður fyrir stríðsglæpi árið 1962 og hans hefur verið leitað síðan. að hann er enn á lífi," sagði Klemm við breska blaðið The Times í gær. Heim var yfirlæknir nasista í útrýmingarbúðunum í Buch- enwald og Mauthausen í Austur- ríki og fékk, eins og áður sagði, viðurnefnið „Doktor dauði" fyrir óhuggulegar tilraunir sínar á föng- um. Hann framkvæmdi aðgerðir á föngum án deyfingar til að sjá hversu mikinn sársauka þeir þoldu áður en þeir dóu. Hann sprautaði fanga með bensíni, eitri og banvænum lyfjum til að reyna á líkama þeirra „í þágu vísind- anna" eins og það var orðað þá. Hann notaði skeiðklukku við hveija rannsókn og skráði hjá sér hversu lengi fangarnir héldu út. Hundruð manna létu lífið í hönd- um Heims, í ólýsanlegum sárs- auka og hefur verið sagt að hann hafi verið mesti sadisti iæknavís- indanna, að Josef Mengele, „Engli dauðans" frá Auschwitz, frátöldum. listamenn í bænum við Heim og og svo virðist sem rúmlega fjöru- tíu ára flótti dauðalæknisins sé á enda. Á þeim flótta hefur Heim samkvæmt heimildum búið í Þýskalandi, Rúmeníu, Argentínu, Danmörku og nú síðast á Spáni. Lögreglan telur þó að líklegt sé að hann hafi flúið Palafrugell en sú staðreynd að hann er gamall, á ferðinni og þarfnast peninga gerir það að verkum að auðveldara verður að finna hann. Handan við hornið Spænska lög-J reglan telur sig hafa fundið Heim í spænska bænum j Palafrugell á Costa Brava á norðvest- urströnd Spánar. Lögreglan hefur að undanförnu skoðað grunsamlegar banka- færslur og telur sig hafa traustar heimildir fyrir því að Heim haldi til í þessum bæ. Hún telur sig hafa náð að tengja tvo Kapphlaup við tímann Eina hættan er að Heim, sem er orðinn 92 ára gamall, verði kom- inn yfir móðuna miklu áður en hann finnst en Stefan Klemm, starfsmaður Simon Wiesenthal- stofnunarinnar, sem hefur sérhæft sig í því að leita að stríðs- glæpamönnum nas- ista, segist hafa sannanir fyrir Góð fundarlaun Spænska lögreglan hefur heitið hverjum þeim sem finnur hann 100 þúsund pundum, um 12 millj- ónum íslenskra króna, í fundar- laun og hafa gefið út tölvugerða mynd af honum eins og hann gæti litið út í dag. Það sem kemur kannski mest á óvart er það að Heim skuli hafa tekist að fela sig allan þennan tíma miðað við það að hann er frekar óvenjulegur í út- liti. Hann er um 180 sm á hæð, mjög hávaxinn miðað við aldur, notar skó númer 47 og er með ör sem nær frá eyra að munnviki hægra megin í andlitinu. Sumir velta því fýrir sér hvort það sé rétt að heimurinn sé að eltast við illan, gamlan mann ffam í andlát hans og hvort hann muni nokkurn tíma fara fyrir rétt ef hann næst vegna elli. ifjjl j I # Aribert Heim Svona Hturhann útfdagef mark er takandi á ‘Pænsku lögreglunni. því að Heim sé enn í fullu fjöri. „Hann á sjóð upp á eina milljón evra í banka í Berlín og s''4 erfingjar fhans munu fá þann sjóð þegar hann deyr. Sú stað- reynd að eng- inn ættingi hefur sóst eft- ir peningun- um er sönn- þess Yrði táknrænt Það yrði táknrænt fyrir Simon Wiesenthal-stofninuna og aðra nasistaveiðara ef Heim næðist. Simon Wiesenthal, frægasti nasistaveiðari sögunn- ar, vann að máli Heims þegar hann lést 20. september og rétt eins og Wiesenthal féll á tíma þá þurfa riasista- veiðararnir líka að vinna hratt. Heim er efstur á lista yfir þá sem eru eftirlýstir í verkefn- inu „Síðasti möguleik- inn". „Sannleikurinn er sá að við höfum kannski fimm eða sex ár til að ná þessum nasistum áður en þeir eru allir dauðir," sagði Efraim Zuroff, arf- taki Wiesenthals. Heimildir: The Times, Guardian, Reuters, The Scotsman. -T Rústir einar Ferðamenn sjásthér ganga í rústum Mauthausen- útrýmingarbúðanna. r i» Tariq Aziz, fyrrverandi varaforsætisráðherra íraks Ætlar hann að vitna gegn Saddam? Deilur hafa sprottið upp um hvort Tariq Aziz, sem var lengi næst- ráðandi undir Saddam Hussein í írak, ætli að vitna gegn gamla ein- valdi sínum í réttarhöldunum yfir Saddam. The Sunday Telegraph heldur því fram að Aziz ætli að vitna og það sé árangur rúmlega tveggja ára langra samninga-1 viðræðna við íröksk stjórnvöld. Blaðið segir að honum verðií launað með því að alvarleg- ustu ákærurnar á hendur hon- um verði dregnar til baka. Aziz fær að fara í út- legð og skrifa ævi- sögu sína fyrir það að vitna Hussein í réttarhöldunum sem hefj- ast að öllum líkindum á miðviku- daginn og þá verður Saddam ákærð- ur fyrir glæpi sína gegn mannkyn- inu. Aziz gegnir lykil- hlutverki í því að sanna að Saddam hafi fýr- irskipað aftölatr og hefur Aziz ver- ið yfirheyrður rúmlega 300 sinn- um af bandarísk- gegn leyniþjónustu- mönnum. Tariq Aziz Ættarhann að vitna gegn Saddam Hussein? Lögfræðingur Aziz bar þessar fréttir til baka í gær og sagði að Aziz myndi aldrei vitna gegn Hussein. „Hver sá sem heldur þvf fram segir ekki sannleikann," sagði lögfræðingurinn. I Saddam Hussein *■ hyggst lýsa yfir sakleysi sínu og vísar til þess að hann hafi notið friðhelgi sem forseti íraks þegar hann framkvæmdi glæpina. I steininn fyrir að neita að berjast Saddam Hussein Mun lýsa þviyfir að hann hafi haft friðhelgi þegar hann framkvæmdi glæpi sina. ________ Malcolm Kendall-Smith, 37 ára gamall læknir í breska flughernum, á yfir höfði sér fangelsisvist fýrir að neita að berjast í Íraksstríðinu af þeirri ástæðu að hann er mótfallinn stríðinu. Kendall-Smith mun væntanlega verða leiddur fyrir her- rétt á næstunni fýrir að óhlýðnast skipunum og samkvæmt félögum hans er hann tilbúinn til að fara í fangelsi frekar en að berjast í stríði sem hann segir vera ólöglegt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.