Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.11.1933, Síða 25

Símablaðið - 01.11.1933, Síða 25
41 SÍMABLAÐIÐ Kjör línumanna. Frá því að landssíminn fyrst tók til starfa, og alt fram á vora daga, hafa orðið gífurlegar breytingar. Nýjar línur, nýjar stöðvar og fleiri verkamenn hafa bæst í hópinn, og hver endurbótin á fætur annari hefir verið gerð á vélum og kerfi. Auk þessara endurbóta fjölgaði eins °g áður er gelið starfsfólki á hinum J'nrsu sviðum, og þar á meðal línu- niönnum. Línumennirnir mynda einn hóp meðal starfsfólks L. í. Hóp, sem er að mörgu leyti sérstæð- nr livað viðvíkur vinnu og aðbúð, og er a® niestu fráskorinn starfsmannalieild- 'nni. Verk línumanna er eins og flestir starfsnienn L. I. vita, fólgið í því að leggja nýjar símalínur víðsvegar um land og einnig að endurbæta það sem stórviðri og tönn tímans hafa eytt. í þessu slarfi sínu eru þeir dreifðir öt um land alt í smærri og stærri flokk- llln, sem liafa lítið saman að sælda. ^f þessu má sjá hve erfið er aðstaða alls félagsskapar með þessum mönnum, °g því ekki undarlegt að litið liefir ver- tækifæri til að ræða kjör innbyrðis, °g gagnvart L. í. Verkamenn í hverjum ílokki mætast að vorinu til, liverfa út a land, starfa sumartímann, til þess svo aÓ skilja aflur þegar liauslar, og hverfa 's'nn i hvora áttina. Fn það myndi of langt mál, að lýsa l}cssu tímabili frá vori lil liausts, sem tehir í sér sögu lieillar stéttar, og mun cg l>vi lauslega drepa á kjör þessara nianna, eins og eg hefi sjálfur séð þau °g reynt. Það fyrsta, sem flýgur mér i liug, eru húsakynnin, sem eru tjöld. í hverju tjaldi búa 3, stundum 4 menn, og reynir þá oft á liðlegheit ná- nngans, því að ekki er hægt að segja, að rúmið leyfi mikla snúninga. Hugsið ykkur, þó að ekki séu nema þrír menn í tjaldi. Rúmstæði, kistur, matarkassar og annað hafurtask, levfa varla svo miklu rúini, að komist verði hindranalaust frá dyrum innað gafli. Þetta er allerfitt, þó veður sé gott og vinna hreinleg, en hvað þá þegar menn eru búnir að standa 10 tíma við vinnu í slagveðursrigningu og koma heim i vosklæðum, skitugir upp fyrir haus. Þetta er eitt meðal annars, sem æski- legt væri, að yrði bætt, en skiftir þó minna máli en margt annað. Eins og eg mintist á í upphafi grein- arinnar, er vinnutíminn venjulega að eins yfir blásumarið, ca. 3—5 mánuðir ár hvert, og að eins örfáir þeirra, er starfa sem línumenn, liafa vinnu hjá L. í. eða B. R. að vetrinum til. Sem sagt, er hér um mjög stopula vinnu að ræða, sem ekki virðist aðlað- andi til lengdar. En sorglegt dæmi um afskiftaleysi ráðamannanna er það, að þótt svo sé ástatt, að hér í bænum þurfi að vinna algenga vinnu, sem ekki mun ofvaxin getu línu- manna, eru þráfaldlega teknir fram yf- ir þá menn, er aldrei hafa unnið nokk- urt starf í þágu símans. Þessu þarf að breyta í það horf, að framvegis verði tekið meira tillit til þeirra manna, er hera erfiðustu kjörin af starfsmönnum L. 1., þ. e. línumannanna. Sem beint framhald af þessu afskifta- leysi má minnast á launakjörin. Fyrir nokkrum árum voru launin með

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.