Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.11.1933, Page 26

Símablaðið - 01.11.1933, Page 26
42 S í M A B L A Ð I Ð lélegra móti eða níu krónur á dag, al- menl, en liafa síðan smáhækkað, og eru nú viðunandi. En það, sein einna helst verður fyr- ir manni, ef litið er á launin, er ósam- ræmið. I hverjum flokki eru mismun- andi Iaunagreiðslur, og er það að miklu leyti lagt í hendur hvers verkstjóra, að ákveða um launin, og vitanlega bregð- ur þar misjafnlega við, Hér á undan hefi eg leitast við að lýsa i stuttu máli kjörum línumanna, og hinum helstu skakkaföllum á þeim. í samræmi við það vildi eg bera fram eftirfarandi tillögur, sem mættu verða til nokkurra bóta. 1. L. í. tryggi þeim línumönnum, er um nokkurra ára skeið hafa starfað fyr- ir hann, einhverja vinnu að vetrinum til. — 2. Að komið verði á launastiga fyrir línumenn og séu lágmarkslaun hvers fullgilds manns tólf krónur á dag fyr- ir tíu stunda vinnu, en þar af veiti L. í. tvo kaffitíma (15—30 mínútur hvorn). 3. Að tjald sé ætlað hverjum tveim- ur mönnum. Auk þess haldi línumenn þeim hlunn- indum, sem fyrir hendi eru. J. Þ. A. Alveg er það ný uppgötvun, sem þegar er orðin vinsæl, að hægt er fyrir bifreiðar- stjóra að opna bifreiðarskýli sitt án þess að stiga út úr bifreið sinni. Þetta má verða fyrir tilstilli þar til gerðra senditækja er bif- reiðarstjóri hefir í vagni sínum. Þegar hann svo sendir ákveðið merki, stjórna móttöku- tæki í bifreiðarskýlinu öðrum rafknúðum útbúnaði er síðan opnar hurðina og sam- tímis varpar fram ljósrákum er stýrt verður eftir inn í skýlið. Símalilaíií og fleira. Það lýsti vanþakklæti ef sag't væri um F. 1. S. eða stjórn þess, að þau væru aðgerðalaus eða gerðu ekkert fyrir símamannastétlina. Nægir þar til að nefna hina stór- merku stofnun lánasjóðinn, styrktar- sjóðinn, hressingarhælið, svo og hlunn- indi þau er felast í starfsmannareglum, ásamt mörgu öðru. Um þessi mál og ýmisleg önnur hlunnindi simafólki til handa, fá svo félagsmenn að vita á hin- um árlega aðalfundi félagsins. Margur mundi þó kunna betur við og koma bet- ur, að fá fréttir jafnóðum af ýmsum þýðingarmiklum málum, sem stjórnin hefir fengið framgengt, og sem þar að auki er oft áríðandi fyrir hvern félags- mann að vita hvernig hefir reitt af. Eg býst við að það séu margir sem t. d. hafa ekki hugmynd um að starfs- mannareglurnar séu gengnar í gildi og því síður um innihald þeirra. Um þetta og svo margt annað, já öll þau mál sem stjórnin liefir á prjónunum er engin iskýrsla gefin nema einu sinni á ári, og ekkert tækifæri til að leggja þar orð í belg fyr en alt er klappað og klárt. Má það merkilegt kallast í jafn fjöl- mennu félagi og F. I. S. er, skuli þessari aðferð vera tekið með þögn og þolin- mæði ár eftir ár. Og því merkilegra þar sem félagið gefur út blað, sem að sjálf' sögðu ætti að fjalla um hin ýmsu mál sem eru á dagskrá. En þar kemur niein' semdin. Og af hverju stafar, við skulm11 segja þessi eina yfirsjón stjórnarinnar • Vegna þess, að blað félagsins „Síma- hlaðið“ kemur ekki út, en eg kalla þa^ ekki neina útkomu á blaði sem tíðkast hefir hjá Símablaðinu síðustu árin, sem

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.