Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.11.1933, Side 31

Símablaðið - 01.11.1933, Side 31
47 SÍMABLAÐIÐ Ísledílegl m/ff ár/ Þegar vísindamenn grófu í pýramídarúst- um í Egyptalandi, fanst koparvírshönk. Þótti það benda til þess, að Egyptar hafi þekt sím- ann. En þegar grafið var í rústum Babýloniu, fanst enginn vírspotti. Þykir það benda til þess, að Babýloníumenn hafi þekt hið þráðlausa samband. Eitt sinn langaði Maríu að heimsækja jörðina, og bað Pétur um leyfi til þess. Varð hann við beiðni hennar og gaf henni Þriggja daga dvalarleyfi þar, með því skil- yrði, að hún hringdi hann upp daglega, til þess að skýra frá högum sínum og hegðun. Að kvöldi hins fyrsta dags hringir María til Péturs. Maria: Halló! er það Pétur? Það er j ó m- f r ú María. í dag reykti eg sígarettu.“ Pétur: „Það má ekki koma fyrir aftur, þá kalla eg þig heim.“ Að kvöldi annars dags hringir Maria aftur. María: „Halló! er það Pétur? Það er jómfrú María. í dag drakk eg „cock-tail“. Pétur: „Slíkt má aldrei henda oftar, þá færð þú aldrei framar fararleyfi til jarðar- innar.“ Að m o r g n i þriðja dags hringir hún og segir: „Halló! er það Pétur? Það er María.“ Settur í „steininn“ fyrir að hlusta á útlönd. í Tékkóslóvakíu hefir verið komið á banni við því, að hlusta á einstakar útlenskar stöðvar (pólitískar æsingaræður o. þ. 1.). Með banni þessu er haft strangt eftirlit af lögregluvaldinu, sem sjá má af eftirfarandi sögu: Bæheimskur útvarpsnotandi var að hlusta á þýska stöð, en gætti þess ekki að dempa hátalarann. Einhver, sem fram hjá gekk og heyrði hvað um var að vera, gerði lögregl- unni strax aðvart, og hún kom á vettvang og stóð þrjótinn að verki og fór með hann. Siðasti þátturinn i þessum stutta, kátbros- leg leik, endaði í réttinum i Pisek, þar sem aumingja maðurinn var dæmdur í 8 daga fangelsi, áréttað með einum degi til föstu, fyrir brot sitt.

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.