Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.11.1933, Page 33

Símablaðið - 01.11.1933, Page 33
SÍMABLAÐIÐ 49 Þetta er einungis miðað við það, að út- geislun sólarinnar hafi ekki minkað. En svo er nú ekki. Á biljón árum mink- ar útgeislunin. Á þessum óratíma hefir sólin tapað af þunga sínum, vegna út- geislunarinnar um 6 pro cent. Eftir öðrum stjörnum að dæma má ætla, að sólin liafi þá tapað um 20 pro cent af útgeislunarmagni sínu og er það sama °g 15 stiga tap fyrir jörðina. Að biljón árum liðnum mun því með- alhiti jarðarinnar iiafa lækkað um 30 slig. En það væri óvitaskapur að spá nokk- *u um það, hvaða áhrif slik hitalækkun hefði á líf mannanna á jörðinni. Lifið iiefir í ríkum mæli hæfileika lil að semja sig eftir ytri skilyrðum. Hér er um svo liægfara breytingar að ræða að engin fjarstæða væri að ímynda scr, að eftir biljón ár gæti líf þrifist á jörð- Unni, þó meðalhiti væri 30 stigum lægri en hann er nú. En þó mætti ætla, uð lífsþægindin yrðu þá minni. Fjöll, fögur vötn og hlómgarðar er öeilla og gleðja nútímamanninn, verða ekki til eftir hiljón ár. Alt horfið og á uð eins heima i sögnum frá órafjarlæg- Uni tímum. Tönn tímanna mun i veðra- örigðum miljóna alda hafa jafnað fjöll- ni við jörðu og fjötrað vötn og ár klaka- böndum. Þótt við sleppum öllum heilabrotum um lífið á jörðunni eftir þúsund mil- Jónir ára, getum við ekki varist þeirri kugsun, að verur jarðarinnar standi þá a takmörkum lífs og dauða, vegua si- pverrandi hitamagns frá sólunni. Meðalhiti á Venus er 60 stigum hærri °n nieðalhiti jarðarinnar. Sá liiti er sennilega of mikill lil þess að ætla megi að nokkurt lif geti þrifist þar. Venus fer kólnandi eins og jörðin og einhverntíma eftir biljón ár verða þau aldahvörf, að líf sem krefst sömu skil- yrða og lííið á jörðunni, færi að geta dafnað á Venus. Hvort lif festir þar rætur nokkurntíma, vitum við ekki. En þá möguleika mætti liugsa sér, að Venus tæki við af jörðunni að fóstra líf, þegar liún væri orðin ofkæld til þess. Til þessa höfum við að eins virt fyrir okkur j>að sem orðið gæti ef alt liefði eðlilega framrás. En fjölmörg óhappa- atvik geta að liöndum horið og eylt öllu lífi á jörðunni, löngu áður en biljón ár eru liðin. Við skulum liugsa okkur þá tilvilj- un, að sólin rækist á aðra stjörnu og sveiflaði lienni af hraut sinni til jarðar- innar, eða að stjarna úr öðru sólkerfi svifi inn í okkar sólkcrfi og ylli þeim glundroða þar, er eyðilegði öll lífsskil- yrði á jörðunni. Maður getur þó tæpast gert sér ljósa grein íyi'ir því, að þetta geti átt sér stað, og líkurnar til þess eru svo afar litlar, að með öllu er óþarft að taka þær með í reikninginn. En það er önnur hætta sem frekar mætti taka til álita. Stöðu sólarinnar í stjörnukerfinu er þannig háttað, að í nálægð við hana er stjarnlaust svæði, er hún hefir, samkvæmt útreikningi og áliti stjörnufræðinga, hneigð til að leita inn á, þó ekki fyr en hún hefir tapað um 3 pro cent af ljósmagni sinu. Mundi þetta hafa þær afleiðingar, að liiti henn- ar nægði ekki jörðunni og alt líf mundi slokna þar. Þetta kunna nú að virðast frekar hrollkendar framtíðarhorfur fyrir okk- ur jarðarbúa. Af ýmsum ástæðum þarf þó ótti okkar ekki að vera djúprættur. Ef hfssaga sólarinnar tekur ekki öfuga stefnu fyrir einhver óhappaatvik, má

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.