Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2005, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005
Fréttir DV
Barnaperrinn
kærður á ný
Móðir nítján ára mis-
þroska stúlku fór í gær og
lagði fram kæru á hendur
Anthony Lee Bellere fyrir
kynferðislegt áreiti gegn
dóttur hennar. Stúlkan hef-
ur andlegan þroska 12 ára
barns, en meint brot eiga
að hafa átt sér stað kvöld
eitt þegar Anthony var gest-
ur á heimili mæðgnanna.
Mörg mál tengd Anthony
eru nú til skoðunar lög-
reglu en DV hefur meðal
annars greint frá sjúklegum
klámskilaboðum sem hann
sendi táningsstúlkum sem
voru allt niður í 12 ára.
Enqinjólakort
fráVR
Verslunarmannafélag
Reykjavíkur hefur ákveðið
að senda ekki út nein jóla-
kort þetta árið. í stað þess að
senda kort ætlar fé-
lagið að láta andvirði
kortasendinganna
renna til FAAS, Fé-
lags aðstandenda
Alzheimersjúkra og
annarra minnis-
sjúkra. Markmið fé-
lagsins er meðal annars að
gæta hagsmuna skjólstæð-
inga sinna, efla samvinnu og
samheldni aðstandenda og
auka skilning stjórnvalda,
heilbrigðisstétta og almenn-
ings á þeim vandamálum
sem þessir einstaklingar og
aðstandendur þeirra eiga
við að etja.
Skreytt til
sigurs
Á vef Dalvíkurbyggðar
segir frá því að í ár, sem
síðustu ár,
verðistaðið
fyrir jóla-
skreytinga-
samkeppni á
meðal fbúa
sveitarfélags-
ins. Nefnd, með sérstök
augu fyrir skemmtilegheit-
um, mun fara um byggðar-
lagið í kringum tíunda des-
ember og velja athyglis-
verðar jólaskreytingar. Veitt
verða verðlaun fyrir þrjú
efstu sætin, en þar að auki
ýmsar viðurkenningar. Á
vefnum er jafnframt bent á
að þegar kemur að jóla-
skreytingum gilda gæðin en
ekki magnið.
„Það liggur á að senda plöt-
una mlna út tilJapans svo að
hægt verði að byrja að fram-
leiða hana," segir Benedikt H.
Hermannsson, aðalsprauta
hljómsveitarinnar Benni
Hemm Hemm.„Platan verður
framleidd úti og öll kynningar-
vinna fer þar fram. Stefnt er að
því að platan komi út íjanúar.
Þetta ersama plata og kom út
hér heima í september. Svo er
ég að reyna að koma okkur út
að spila en það er ekkert
voðalega auðveltað flytja
fimmtán manns tilJapans."
Aðalmeðferð í máli Jónínu Benediktsdóttur gegn Fréttablaðinu og Kára
Jónassyni ritstjóra þess fór fram í gær. Réttarhaldið var dramatískt og
Jónína var buguð og þreytuleg þegar hún mætti. Réttarhaldsins hafði ver-
ið beðið með mikilli eftirvæntingu eftir að Jónína fékk lögbannskröfu á
birtingu tölvupósta hennar í september.
Jónína m\ í dómsal
„Þeir eru allir á móti mér,“ sagði Jónína Benediktsdóttir í
Héraðsdómi Reykjavíkur þegar mál hennar gegn Frétta-
blaðinu var tekið fyrir. Um leið brast hún í grát. Málið var
höfðað vegna umdeildrar birtingar blaðsins á tölvupósts-
samskiptum Jónínu við þekkta aðila í samfélaginu. Hún
krefst þess að lögbann verði sett á frekari birtingar.
„Nei, ég veit ekki hvernig þeir
komust yflr póstinn," svaraði Jón-
ína þegar verjandi hennar, Hró-
bjartur Jónatansson, spurði hana
hvemig á því stæði að Fréttablaðið
komst yfir tölvupóst hennar.
Andrúmsloftið í dómsalnum
var þrúgandi er hún settist í vitna-
stólinn og hóf framburð sinn. Hún
rakti í framburði sínum málið í
heild sinni frá sínum sjónarhóli og
dró hvergi undan.
Aðalmeðferð fór ffam í málinu í
gær. Hennar hefur verið beðið með
mikilli eftirvæntingu enda skóku
fréttir Fréttablaðsins af tölvupósts-
samskiptum hennar við Styrmi
Gunnarsson samfélagið þegar þær
birtust fyrst.
Bað um gögnin en fékk ekki
Aðspurð hvenær hún komst að
því að tölvupóstar hennar væm í
höndum ritstjórnar Fréttablaðsins
svaraði Jónína að henni hefði verið
tilkynnt það af Sigríði Dögg Auð-
unsdóttur blaðamanni degi áður
en fyrsta fréttin birtist. Hún segist
samstundis hafa beðið um gögnin
sem blaðið hafði undir höndum en
Sigríður hafl neitað. í kjölfarið
hringdi hún í ritstjóra blaðsins,
Kára Jónasson, og freistaði þess að
fá hann af fyrirhugaðri birtingu á
„Hún tárfelldi en
herti sig síðan upp.
Húnvar greinilega
buguð kona."
„Þeir hafa kallað
mig morðkvendi og
dregið upp villandi
mynd afmér og Jóni
Geraldi.
//
tölvupóstum hennar. Þegar lög-
fræðingur hennar spurði hvað á
milli þeirra hefði farið brast rödd
Jóm'nu örlítið og hún sagði: „Ég
sagðist vera gáttuð."
Fundu engin dæmi
í ffamburði sínum lagði Jónína
mikla áherslu á að fréttaflutningur
um tölvupóstssamskipti hennar
hefði verið ósanngjam og tölvu-
póstamir teknir úr samhengi. Jón
Magnússon, verjandi Kára Jónas-
sonar, fór þá hart gegn henni og
margspurði hana hvar þessi dæmi
væri að finna. Jónína gat ekki bent
á þau. Lögfræðingur Jónínu kom
þá með málsskjölin til hennar og
saman skoðuðu þau skjölin í
nokkum tíma. Hróbjartur bað svo
dómara um stutt fílé til þess að
finna rökstuðning fyrir máli sínu
en það var ekki veitt.
Borguðu ekki
Kári Jónasson, ristjóri Frétta-
blaðsins, steig einnig í vitnastúk-
una. Hróbjartur Jónatansson, lög-
maður Jónínu, spurði Kára hvort
Fréttablaðið hefði borgað fyrir
tölvupóstinn sem blaðið fékk en
Kári svaraði því neitandi. Hann
sagðist jafnframt hafa fengið sím-
tal frá Jóm'nu þremur eða fjómrn
dögum eftir að fyrsti tölvupóstur-
inn birtist í blaðinu. Hún hefði
spurt hvort blaðið ætlaði að
halda áfram að birta tölu-
vpóstana. Kári sagð-
ist hafa
játað því og þá hefði
Jónína sagt að hún
þyrfti að fara að tala við
bömin sín. í kjölfarið
hefði hún síðan lagt á.
Kölluðu hana morð-
kvendi
Hápunktur réttar-
haldanna var þegar lög-
fræðingur Jóm'nu spurði
hana að lokum hvers ,
konar áhrif málið hefði
haft á hana. „Þetta hefur '
valdið mér miklum skaða,"
svaraði Jónína og rödd hennar
brast í annað sinn og gerði hún hlé
á máli sínu í nokkrar sekúndur.
Þegar Jónína hóf mál sitt að
nýju sagði hún: „Þeir hafa kallað
mig morðkvendi og dregið upp
villandi mynd af mér og Jóni Ger-
aldi," áður en rödd hennar brast
endanlega. Hún grét og sagði með
ekkasogum: „Þeir em allir á móti
' mér."
26. september
Buguð kona
Kári Jónasson, rit-
stjóri Fréttablaðsins,
sagði í samtali við DV
í gær að það hefði
verið átakanlegt að
horfa upp á sinn
gamla samstarfsfé-
laga, Jónfnu Bene-
diktsdóttur, í vitna-
stúkunni. „Hún tár-
felldi en herti sig
síðan upp. Hún
var greinilega
buguð kona," sagði Kári. Að-
spurður sagðist hann hafa heilsað
henni áður en málsmeðferð hófst
og sagði hána hafa tekið vel í
kveðju sína. „Við þekkjumst frá
gamalli tíð.“
Um málið sagði Kári að það
væri aldrei að vita hvaða pól dóm-
arinn tæki í þessu máli. „Það takast
á tvö atriði stjómarskrárinnar,
annars vegar tjáningarfrelsið og
hins vegar friðhelgi einkalífsins,
og það er spuming hvað
verður ofan á.“
valurg@dv.is
Jónína Bene-
diktsdóttir
Grétihéraðs-
dómi í gær.
í„ - , „
Kári Jónasson Ritstjóri
Fréttablaðsins vildi ekki
afhenda Jónínu tölvu-
póstana aftur.
I Jón Sullenberger
1 Samverkamaður Jóninu
I og fyrrverandi viðskipta-
I félagi Baugsfeðga.