Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2005, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005
Sport DV
Kristleifur
tekurvið Hetti
Nýliðar Hattar í Iceland-
Express-deild karla í körfu-
bolta hafa tapað
sex fýrstu leikjum
sínum í úrvals-
deild karla í
körfubolta og í
kjölfarið af sjötta
tapi liðsins þá
hætti Kirk Baker
þjálfun liðsins.
Hattarmenn hafa
nú fundið eftir-
mann hans.
Kristleifur Andrésson hefur
tekið við þjálfun liðsins en
hann var liðstjóri Eugene
Christopher í fyrra þegar
Hattarmenn tryggðu sér
sæti í úrvalsdeildinni í fyrsta
sinn í sögu félagsins. Frá því
Kristleifur kom aftur til
Austurlands 2003 hefur
hann verið viðloðandi
körfuknattleikslið Hattar.
Hann þjálfaði meistaraflokk
2003-2004, var liðsstjóri
seinasta vetur og hefur í
haust þjálfað yngri flokka
félagsins.
Ætlarað breyta
hugarfarinu
„Þetta er verkefrii sem
þarf aö bera og það verður
bara að vaða í það. Við get-
ijm allt eins hætt og skráð
okkur úr deildinni ef við
ætlum að falla. Þá þyrfti
ekki að ráða nýjan þjálfara.
Fyrst og fremst þarf að
breyta hugarfari leikmanna.
Það gerist ekkert á örfáum
æfingum en breytingamar
verða sýnilegar á lengri tíma
ef menn eru tilbúnir að
snúa við blaðinu og beijast
upp á líf og dauða þá getur
ýmislegt gerst," segir Krist-
leifúr Andrésson, nýrþjálf-
ari Hattarmanna.
Fyrsta tap
Grindavíkur-
stúlkna
ÍS varð fyrsta liðið til
þess að vinna Grindavík í
Iceland Express-deild
kvenna í körfubolta þegar ÍS
vann framlengdan leik lið-
anna 80-70 í Kennarahá-
skólanum. Corrie Mizusawa
var með 17 stig og 8
stoðsendingar í sínum
fyrsta leik og fékk góða hjálp
frá þeim Helgu Jónasdóttur
(12 stig, 8 fráköst, 22 mínút-
ur) og Þórunni Bjamadóttur
(12 stig, 9 fráköst) sem skor-
aði margar stórar körfur þar
á meðal körfuna sem
tryggði framlengingu
þremur sekúndum fyrir
leikslok. Hjá Grindavík voru
þær Jerica Watson (29 stig
og 15 fráköst) og Hildur Sig-
urðardóttir (16 stig og 11
fráköst) í sérflokki.
Víðir Sigurðsson, íþróttablaðamaður á Morgunblaðinu, er einn fárra sem tekur
þátt í kjöri France Football á knattspyrnumanni ársins í Evrópu. Hann er einnig
höfundur íslenskrar knattspyrnu sem kemur í verslanir á næstu dögum.
I Bestur í Evrópu
Brasillumaöurinn
Ronaldinho átti
I frábært ár og fékk
yfírburðakosningu I
kjöri France Foot-
ball á knattspyrnu-
manni ársins 2005.
Franska knattspyrnutímaritið France Football útnefndi í gær
Ronaldinho knattspyrnumann Evrópu árið 2005
Ronaldinhovann stærsta
sigurinn í kjörinu í sjö ár
Hinn frábæri Ronaldinho var á
mánudagskvöldið útneftidur besti
knattspymumaður Evrópu af franska
tímaritinu France Football. Ronald-
inho hlaut yfirburðakosningu, fékk
77 stigum meira en næsti maður á
lista og þetta var stærsti sigurinn í sjö
ár eða allt síðan að Zinedine Zidane
hlaut 176 fleiri atkvæði árið 1998.
Ronaldinho er nú handhafi þriggja
stærstu verðlaunanna sem knatt-
spymumaður getur öðlast; besti
knattspymumaður Evrópu, besti
knattspymurmaður heims og besti
leikmaðurinn að mati leikmannanna
sjálfra. Ronaldinho skoraði 33 mörk í
79 leikjum með Barcelona á árinu þar
af 13 í 19 leikjum í meistaradeildinni
en að auki lagði hann upp ótal mörk
fyrir félaga sína í einu allra skemmti-
legasta sóknarliði heims.
Ronaldinho er þriðji Brasilíu-
maðurinn tii þess að hljóta þessi
verðlaun síðan þeim var breytt 1994
en fyrir þann tíma vom aðeins leik-
menn af evrópsku þjóðerni gjald-
gengir. Auk Ronaldinho hafa þeir
Rivaldo (1999) og Ronaldo (1997,
2002) verið útnefndir knattspyrnu-
menn Evrópu.
„Draumur minn er að rætast.
Þegar ég sé öll þessi nöfn á listanum
yfir þá sem hafa unnið þá sést vel
hversu mikill heiður þetta er, ekki
síst því þar em ídolin mín Ronaldo
og Rivaldo," sagði Ronaldinho. „Guð
gefur öll gjöf. Sumir geta skrifað,
sumir geta dansað. Guð gaf mér
hæfileikann til þess að spila fótbolta
og ég reyni að nýta þá gjöf sem
best," bætti Ronaldiniio við. Ron-
aldinho er aðeins 25 ára gamall og
ætti því enn að eiga mörg frábær ár
eftir. Hann hefur þegar skrifað undir
samning við Barcelona til 2010 og
verður í aðalhlutverki með Brasilíu á
HM næsta sumar.
Topp tíu í kjörinu:
1. Ronaldinho (Barcelona), 225 stig
2. Frank Lampard (Chelsea), 148
3. Steven Gerrard (Liverpool), 142
4. Thierry Henry (Arsenal), 41
5. Andrei'Shevchenko (AC Milan), 33
6. Paolo Maldini (AC Milan), 23
7. Adriano (Internazionale), 22
8. Zlatan Ibrahimovic (Juventus), 21
9. Kaká (AC Milan), 19 pts.
10. Samuel Eto’o (FC Barcelona) 18
10. John Terry (Chelsea), 18
Lið ársins 2005 hjá France Foot-
ball: Petr Cech (Tékkland, Chelsea) -
Jamie Carragher (England, Liver-
pool), John Terry (England, Chel-
sea), Paolo Maldini (Ítalía, AC Mil-
an) - Frank Lampard (England,
Chelsea), Claude Makelele (Frakk-
land, Chelsea), Steven Gerrard (Eng-
land, Liverpool), Juniho (Brasilía,
Lyon), Ronaldinho (Brasilía,
Barcelone) - Andrei' Shevchenko
(Úkraína, Milan AC), Thierry Henry
(Frakkland, Arsenal).
Kaus fiora af fi
f fyrrakvöld var val France Football á knattspyrnumanni ársins í
Evrópu kunngjört og gullboltinn svokallaði afhentur. Það kom
afar fáum á óvart að Brasilíumaðurinn Ronaldinho hafi verið
valinn enda klárlega besti leikmaður heims um þessar mundir.
Það er helst að Frank Lampard og Steven Gerrard geti gert tilkall
til þessa titils enda voru þeir í næstu tveimur sætum í kjörinu.
Dómnefndin á bak við kjörið er lítil en íslendingar eiga þó einn
fulltrúa í henni.
Víðir Sigurðsson er fulltrúi ís-
lenskra íþróttafréttamanna í kjörinu
en hvert land í Evrópu á sinn mann í
dómnefndinni. Víðir starfar nú á
Morgunblaðinu en áður var hann
starfsmaður íþróttadeildar DV til
fjöldamargra ára. Þetta var í íjórða
sinn sem hann tekur þátt í kjörinu.
Skapti Hallgrímsson sem áður starf-
aði á íþróttadeild Morgunblaðsins
tók þátt í kjörinu fýrir íslands hönd
þar áður.
„Kjörið fer einfaldlega þannig
fram að við fáum sendan lista yfir
þessa 50 knattspyrnumenn sem eru
tilnefndir og megum við gefa fimm
mönnum stig, þeim besta fimm stig,
næstbesta fjögur og svo koll af kolli,"
sagði Víðir í samtali við DV Sport í
gær. „Við tökum ekki þátt í að til-
nefna þá 50 knattspyrnumenn sem
koma til greina en það er í höndum
ristjómar France Football."
Enginn Eiður
Mörgum stuðningsmönnum
Eiðs Smára Guðjohnsen fannst ein-
kennilegt að sjá nafn hans ekki á
þeim lista enda átti hann ríkan þátt í
velgengni Chelsea á síðustu leiktíð.
Víðir bendir hins vegar á að hópur-
inn hafi verið föngulegur eins og
hann leit út í ár og ef til vill ekki hægt
að gera raunhæfa kröfu um að Eiður
yrði á listanum. „Þegar ég fékk list-
ann í hendumar byrjaði ég á því að
Ieita eftir nafni hans og vissulega
hefði verið gaman að sjá hann á
þessum lista.“
Eiður var þó einn þeirra sem kom
til greina þegar ritstjórn France
Football valdi sinn lista og Víðir
segir að Eiður eigi vissulega heima í
hópi 100 bestu knattspyrnumanna
Evrópu. „Hann er til að mynda í út-
tekt European Book of Football (sem
áður hér European Football Year-
book) um 100 athyglisverðustu leik-
menn Evrópuknattspymunnar."
Leynileg kosning
Víðir er ekki fáanlegur til að gefa
„Vissulega hefði verið
gaman að sjá Eið
Smára á þessum lista."
upp hverja hann kaus í kjöri France
Football. „Þetta er leynileg kosning
og opinbera ég ekki neitt um hana,"
segir hann í léttum dúr. „En án þess
að ég fari neitt nánar út í það þá sýn-
ist mér að ég hafi kosið fjóra af þess-
um fimm efstu mönnum."
Svo virðist sem leikmenn í ensku
úrvalsdeildinni eigi stður upp á pall-
borðið í kjöri France Football en
leikmenn úr ensku deildinni hafa
alls fimm sinnum í 50 ára sögu
kjörsins hlotið verðlaun France
Football. Aðeins Michael Owen
hefur hlotið nafnbótina (2001)
síðan George Best var kjörinn
árið 1968. Kevin Keegan varð
reyndar efstur í kjörinu árin
1978 og 1979 en þá var hann
leikmaður Hamburger SV í
þýsku úrvalsdeildinni.
Enska deildin er best
„Þessi þróun er kannski
eðlileg ef maður lítur yfir far-
inn veg," segir Víðir. „Það er
ekki fyrr en fyrir fimm eða
sex ámm síðan að enska
deildin hefur fyllst af stór-
stjömum og hafa leik- ,
menn í deildinni ekki gert
mikið tilkall til verðlaun-
anna fyrr en þá. Aðeins
einn og einn leikmaður
sem staðið hefur upp úr
skaranum, rétt eins og George Best á
sínum tíma. En enska deildin er
vissulega sterkasta deild Evrópu í
dag, á því leikur enginn vafi.“
Víðir er höfundur íslenskrar
knattspyrnu sem hefur komið út ár-
lega í aldarfjórðung. Útgáfa ársins
var væntanleg til landsins í gær og
ætti því að vera komin í hillur bóka-
verslana á allra næstu dögum.
eirikurst@dv.is
Víðir Sigurðsson
Fulltrúi íslands íkjöri
France Football á
knattspyrnumanni
ársins ÍEvrópu.
J0K
?
DV-mynd Nordic Photos/AFP