Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2005, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2005, Blaðsíða 27
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 27 Lesendur eru liðm 40 ar sxðan xs lenskir bankar keyptu Skarðsbók á uppboði í London. Þetta var eina forníslenska handritið sem var í einkaeign. Það var síðar afhent Handritastofnun til varðveislu. Loftsteinn slasar konu Þennan dag árið 1954 lenti loft- steinn á konu í Alabama í Bandaríkj- unum. Elizabeth Hodges svaf á sófa í stofu sinni þegar loftsteinninn þaut í gegnum þak húss hennar og lenti á mjöðminni á henni. Hún slasaðist ekki alvarlega við óhappið en ferðin í gegnum þakið hefur áreiðanlega tek- ið mesta fallið af steininum sem vó um 4,3 kílógrömm. Þetta var fyrsta til- vik nútímasögu um að loftsteinn hafi lent á manneskju, en kínverskar þjóðsögur segja af fólki sem hafi orðið fyrir loftsteinum. Loftsteinar eru alls ekki óalgengir í lofthjúp jarðar þótt þeir lendi ekki á fólki. Til dæmis drapst hundur þegar loftsteinn lenti á honum árið 1911. Loftsteinn getur verið á um 30-40.000 km/klst hraða þegar hann kemur inn í lofthjúp jarðar, en langflestir þeirra brenna upp til agna vegna núnings andrúmsloftsins sem verður þéttara eftir því sem neðar dregur. Niðri við jörðu er hraðinn vart meiri en hann væri ef steininum væri sleppt úr hárri byggingu. Barringer-gígurinn í Arizona Þarna lenti loftsteinn fyrir um 49.000 árum síðan og myndaði þennan gig. Úr bloggheimum Massa byssa maður „Fórum á miðvikudag- inn að skjóta úr skammbyssum. Það var algjör snilld! Ég og Óli ieigðum 9 mm. Glock 17 skambyssu. Geggjað að skjóta úr henni! A meðan við vorum að bíða eftir því að fá að komast að vor- um við að skoða alskonar byssur, héldum m.a. á Desert Eagle sem er alveg riiiiisa stór skammbyssa! Eiginlega bara fall- byssa! Svo báðum við um að fá að skoða _eina Glock skammbyssuna ogaf- greiðslu- maðurinn opnaði skápinn,) sem byssan var.skiidi hana svo eftir á borðinu hjá okkur ásam lyklunum að öllum * skápunumi! Við hefðum sem sagt auöveldlega geta náð i nokkrar byssur i viðbót, hlaðið þær og gengið út án þess að einhver hefði spáð f þvllAöeins f Amerfku...,, Sibbi - sibbi.flugnet.com/ Smekklegir tónleikar „Gleymdi alveg að segja ykkur frá Bloodhound Gang-tónleikun- um...Þeir eru náttlega bara geðveikir sko. Söngvarinn var alltaf adsyngja eitthvad svona dót eins og Linkin Park og Green Day inná milli og gítarleikarinn var búinn að segja hon- um að hætta því og eitthvað. Svo byrjaði hann I fjórða skiptið ad syngja eitthvað svona bull og þá fór gítarleikarinn bara upp á einhvern kassa fyriraftan hann og meig á hausinn á honum og hann allan.... og söngvarinn bara stóð og hélt áfram að syngja allan tímann Inga Dóra Þórarinsdóttir - ingarokk.blogspot.com/ Muhahahaha „Ég veit ekki hvort það er bara ég eða en mérfinnst það bara fyndið að William Hung sé búinn aö selja fleiri geisladiska en ofmetna dekurdúkkan hann Bubbi Mortens." Daníel Tryggvi Daníelsson - biog.centrai.is/tigurinn Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar. Erum við óalandi og oferjandi? Jóhanna Regjnbalduisdóttii hríngdi: Undanfarna mánuði hefur verið hávær umræða ráðamanna um að skerða tekjur öryrkja. Við erum talin vera plága í þjóðfélaginu og að því er ráða má af skerðingartali ráðamanna ekkert annað en lög- giltir aumingjar og afætur sem erum óalandi og óferjandi. Því sé best að gera okkur endanlega ókleift að tóra. Það er ekki ónýtt að vera í þessum þjóðfélagshópi. Ef þessir félagslegu ómagar vilja reyna að bjarga sér og hafa eitthvað umfram það sem ríkið skammtar er þeim umsvifalaust refsað með lækkun bóta svo þeir eru verr settir fyrir vikið. Við öryrkjar erum ekki annars eða þriðja flokks þegnar, við erum hratið ef ekki eitthvað annað þaðan af verra. Við erum ekki nema einhver atkvæði sem kannski væru betur komin í kirkjugörðum, því eftir greftrun þarf ekki einu sinni að hafa fyrir því að smala atkvæðum né að sjá fyrir okkur. Hvenær fara ráðamenn landsins að koma upp útrýmingarbúðum fyrir okkur? Sumir þeirra sem sjá ekki fram úr því að framfleyta sér hafna í þvílíku svartholi að þeir stytta sér aldur. Hver er raunveru- legur munur á því og útrýmingar- búðum? Það eru alltaf til nógir aurar í útlendingahjálp, en aum- ingjarnir hér heima mega bara éta það sem úti frýs. Það hlýtur að vera hægt að gera eitthvað sem getur hjálpað okkur, eitthvað annað en skerðingar sífellt. Einhverjir gáfu- menn í stjóminni hljóta að geta gert eitthvað í þessari vitleysu. Þetta má ekki enda svona. Það mætti hlusta meira á fólk í öryrkja- bandalaginu sem hafa úrræði til lausnar. Lélegt að reka áfengisþjófana María skrífár: Nú er ég hneyksluð. Þið nafn- greinið fólk í blaðinu í dag sem á að hafa tekið einhverjar kippur af áfengi sem átti að henda til eigin nota. Þar er ekki bara talað um nöfn, nei, líka myndir af fólkinu og Lesendur það sagt hafa verið rekið vegna þjófnaðar! í fyrsta lagi finnst mér mjög lélegt að fólk sem er búið að vinna í fjölda ára hjá fyrirtæki og unnið vel fýrir það skuli vera rekið fýrir svo litlar sakir. Þarna hefði bara átt að koma fram með áminn- ingu - ef það hefur alls ekki mátt Fjórinniiw rekni lyrii1 að slela áfeimi nota það sem átti að henda og búið mál. Ég þekki til konunnar sem þarna var birt mynd af og veit það fyrir víst að þetta er afskap- lega góð kona. Hún hefur hugsað svo vel um foreldra sína sem eru öldruð og hafa verið veik að maður dáist að því. ssses FréttiDV,29. nóvember 2005 Fjórir reknir fró 5umskipum fyrirod stela ófengi. Bréfrit- Ég vil gagnrýna svona fréttaumfjöllun, að birta nöfn og myndir, alveg sama hversu smávægilegt fólk hefur brotið af sér. Og nú er ég bara komin á þá skoðun að það ætti að dæma það fólk sem ber ábyrgð á svona fréttaumfjöllun. í raun ætti ekki að birta myndir af fólki og nafngreina það nema fólkið sem væri verið að fjalla um væri hættulegt öðru fólki eða það þyrfti á ein- hvern hátt að vara sig á því. ión Einarsson skrifar um mál- flutning Hannesar Hóimsteins. Framsóknarmaðurinn segir Um aðilaskýrslu Hannesar Síðasta laugardag birtist í Morg- unblaðinu skrifleg aðilaskýrsla Hannesar Hólmsteins Gissurarson- ar. Skýrslan er að nokkru leyti skrif- legur málflutningur enda hefur hann tvinnað inn í hana ýmislegt sem ekki getur talist frásögn hans af atburðum sem hann hefur sjálf- ur upplifað. Athygli vekur að hann blandar Kanada og Bandaríkjunum inn í málið. Regluramminn um lagaskil milli Bretlands og íslands byggir á alþjóðlegum samningum kenndir við borgimar Lugano og Brussel. Hvorki Kanada né Banda- ríkin em aðilar að þeim. Dómstólar í aðildarríkjum samninganna em skyldugir tÚ að leysa ágreining um lagaskil í samræmi við viður- kennda túlkun þeirra. Því verður ekld annað séð en að dómstólar séu bundnir af dómi Evrópudónti- stólsins frá 7. mars 1995 í máli Fionu Shevill gegn Presse Alliance SA. Þar höfðaði kona mál fyrir breskum dómstólum gegn útgef- endum blaðsins France Soir vegna ærumeiðinga og fékk lögsögu þeirra viðurkennda þar sem tjón hennar, álitsmissirinn, hefði átt sér stað á Bretlandi. Einnig vil ég benda á mál Gudmund Skogvik e.a. / Sveriges Television AB og Per Lapins. Norskur maður varð fyrir meiðyrðum í sænskri sjónvarpsút- sendingu sem sást í k hluta Noregs og höfð- aði mál fyrir dóm- stólum. Það var nið- urstaða Hæstaréttar * Noregs að ofangreindur dómur Evrópudómstóls- Linsfrál995 i væri fordæmi. Aðeins einn af hópnum í gærkvöldi voru haldnir tón- leikar í Grafarvogskirkju til styrktar starfi Bama - og unglingageðdeild- ar Landspítalans, öðm nafni BUGL. Mildar umræður hafa verið undanfarið í þjóðfélaginu vegna bágrar stöðu og aðstöðuleysis BUGL. Ólafur Helgi Ólafsson er framkvæmdastjóri Lýsingar. Blaðamaður þurfti að beita hann nokkmm fortölum til að koma í dálkinn maður dagsins, því hann þvertók fyrir það að vera einn að baki hugmyndinni - hún sé upp- mnnin frá starfsmönnum Lýs- ingar. „Eins og flestar góðar ákvarð- anir verður þessi til í hóp," segir Ólafur og bendir á að eins og í langflestum fyrirtækjum landsins séu þar áreiðanlega starfsmenn sem starfssemi BUGL snertir á einn eða annan veg. „Við erum alltaf að leita leiða til að koma góðu til leiðar í þjóðfélag- inu og þessi leið held ég að sé einna heillavænlegust. Þarna hjálpum við æsku landsins til að komast áfram í lífinu. Hvar er betra að byrja?" spyr Ólafur. „En björn- inn er ekki unninn þótt BUGL fái góða aðstöðu. Það þarf líka að sjá til þess að rekstur stofnunarinnar haldi áffarn með góðum hætti." Ólafur segist þó oft heyra spurningar um af hveiju fyrirtæki og einstaklingar þurfi að koma svona að ríkisrekstri. „Kannski er þetta það sem þarf til að vekja at- hygli á málefnunum. Frá því við fómm af stað með undirbúning tónleikanna fyrir um fimm vikum síðan er greinilegt að þjóðfélagið hefur tekið við sér og málið ratað „Eins og flestar góðar ákvarðanir verður þessi til í hóp." inn á þing og í fjölmiðla. Þannig vinnast litlir sigrar smám saman." Auk þess að vera hugsjóna- maður hefur Ólafur Helgi yndi af því að ganga einn um náttúm landsins. „Þegar maður gengur einn á fjöli er hægt að finna þenna hugarfrið sem ekki finnst í margmenni. Það er mín hreinsun á sál og líkama. Það fær mann líka til að sjá hlutina og vandamálin í réttu samhengi og spyrja sjálfan sig af hveiju mannsskepnan sé alltaf að rífast og kljást." ur Helqi er fæddur og uppalinn á Flókagötunni. Hann útskrifaöist sem viö- tafræðinqur árið 1971 frá Hf. Hann spilaði fótbolta með F™m “9 varö gfaldur Islandsmeistari f borðtennis á yngri árum. Hann tók við fram-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.