Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2005, Page 33
Menning DV
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 33
Ðjöílatertan er ný skáldsaga eftir tvær ungar reykvískar konur sem feta
forna slóö í samstarfi sínu. Sagan gerist hér og nú og lýsir hefnd svikinna
kvenna á körlunum sem hafa leikið þær grátt.
Barbídúkka á bömmer
Hefndir kvenna á fláráðum
körium er klassískt stöff. Marta
María Jónasdóttir (Nylon) og Þóra
Sigurðardóttir (Stundin okkar) hafa
sett saman skemmtisögu sem
byggir á þessu forna þema heims-
bókmenntanna.
Þær þræða ekki síður slóðina
sem rudd var fyrir langa löngu í
sögunni af Becky Sharp og síðan
endurnýjuð í Sloane Ranger - skrif-
um Peter York, þráð sem Bridget
-•'r' '^4
pH'
kú5
m
I Marta María og Þóra
I Er einlægu brosi þessara
I ungu kvenna treystandi
I eða eru þaer nornir?
Jones var spunnin úr: velsett en
hálfmunaðarlaus stúlka í samfélagi
sem þrífst á ytri gildum, móð og
stæl.
Sara (28) kemst að því að Berti
(35) heldur framhjá henni og him-
ininn hrynur á ungann litla. Þegar
hún er búin að gráta sig gegnum fá-
ein ilmölíuböð og nokkur tissjúbox
hyggur sú stutta á hefndir.
Vinkvennabókmenntir
Eftir að Bridget varð
fræg á bók og tjaldi
% spruttu upp systir henn-
ar og klónar víða um
lönd. Misjafnt var
hversu skarpar og
snarpar stúlkurnar voru
sem settust niður og
gerðu sér mat úr þess-
um faraldri (Dís) sem
gjarnan vár stflaður í
trúnaðartóni með
slettu og slangurssafni
sem hér í bók þeirra
stallsystra er til mikillar
prýði og töluverðrar
skemmtunar. Það er
feikilega erfitt að skrifa
langa texta í samfelld-
um málfarsstfl og það
verður að hrósa þeim
fyrir að tekst vel. Fyrir
það fyrsta.
Hlátur í hug
í annan stað er dagljóst
að þær hafa húmorískan
sans, einkum fyrir smá-
atriðum. Lýsingar á
stærri atburðum líða
nokkuð fyrir lausbeisl-
að hugmyndaflug sem
dregur úr heildaráhrif-
um uppsettrar senu.
Þetta er einkum í köflum
Marta María Jónasdóttir og
Þóra Jónsdóttir
Djöflatertan
Vaka-Helgafell
Verð 4.490 kr.
★★★☆☆-
Bókmenntir
sem lýsa hraðri atburðarás með
mörgum persónum.
Þjóðfélagssýn litlu stúlkunnar
með tissjúboxin er býsna þröng, en
samt er svo hratt hlaupið í hefndar-
hugleiðingum að margt glittir í og
mest held ég ómeðvitað, svona í i
leiðinni. Það gefur til kynna að þær
stöllur hafl innbyggðan skanner á
margt sem sést og er falið í samfé-
laginu.
Aldarspegill
Sögunni feilar einkum í lengri
hugleiðingum aðalpersónunnar
sem verða grautarlegar og lang-
dregnar - ekki alltof skýrar í hugs-
un, án þess að hetjunni sé gerður
upp kjánaskapur - sem væri opið
stflbragð með unga stúlku eins og
Söru. En það er ekki. Ekki beint.
Djöflatertan verður þannig svo-
lítill aldarspegill, svona eins og er í
varalitahylkjum, tekur þröngt inn
og mikið á hreyfmgu. Sagan er ||
skemmtileg viðbót við þessa hefð
og þótt hún hefði óneitanlega mátt
njóta harðari editeringar, bæði frá
höfundum og forlagi, er akkur í
henni, svo margt sem hún geymir
um líf nútímakonunnar, tæki
hennar og meðul tfl að lifa af.
Okkur veitir ekki af slíkum sög-
um, skemmtisögum sem byggja á
lipurð höfunda að greina samtíðina
og málfarið, lífsstflinn og tómið.
Pdll Baldvin Baldvinsson,
Hætta-hópurinn að störfum: Upplestur, umræður og kaffi af brúsa með Frónkexi
Náttúran milli Hvergi og Disneylands
Á fullveldisdaginn - þann 1. des-
ember mun HÆTTA-hópurinn
standa fyrir dagskrá í Dómsalnum í
gamla Hæstarétti við Lindargötu
undir yfirskriftinni: „Náttúran mflli
Hvergi og Disneylands".
Skáld, listamenn og fræðimenn
lesa eftirlætis nátttúrulýsingu sína
úr bókmenntum eða texta úr eigin
smiðju. Pétur Gunnarsson, Þórunn
Valdimarsdóttir, Edward H.
Huijbens, Bragi Ólafsson, Kristín
Ómarsdóttir, Jón Atli Jónasson,
Andri Snær Magnasson og Einar
Garibaldi Eiríksson lesa upp. Sig-
ríður Þorgeirsdóttir heimspekingur
heldur inngangserindi og stýrir um-
ræðum að loknum upplestri.
Ómstríð óreiða - tigin kyrrð
Um tflefni kvöldvökunnar sem
hefst ld. 20 segir í fréttatUkynningu
hópsins. „Náttúran er skáldum,
listamönnum og heimspekingum
óþrjótandi umhugsunar- og við-
fangsefni. Hún hefur birst þeim
með margs konar hætti, aUt frá því
að vera samlfljóma, rökrétt heUdar-
samhengi til ómstríðrar óreiðu.
Náttúran hefur löngurn verið
Þórunn Valdi-
marsdóttir
Skáld og sagn-
fræðingur.
mannmum
óút-
reiknanlegt, ógnandi afl, en á tím-
um tækni og umhverflsspjaUa verð-
ur hún að einhverju sem maðurinn
þarf að vernda."
Hin fagra sýn
„Lengst af var maðurinn í sam-
bandi við náttúruna sem einkennd-
ist framar öðru af notagUdi hennar,
en eftir því sem maðurinn náði
betri tökum á náttúrunni og varð
síður háður duttlungum hennar
hefur hann fjarlægst hana. Fyrir
vikið hefur hann í auknum mæU
farið að njóta hennar á nýjan hátt,
dásamað fegurð hennar og fylllst
Sigríður Þor-
geirsdóttir
Heimspekingur.
óttablandinni lotningu
andspænis framandleika hennar.
Sem staður endurnæringar og af-
þreyingar hefur náttúran ekki farið
varhluta af markaðsvæðingu. AJlir
vUja hverfa á vit náttúrunnar, en
fæstir nenna þangað gangandi. Við
brjótum hana undir okkur með
jeppum, vélsleðum og spíttbátum,
eignum okkur hana með tækjum og
tólum og gerum hana að leikvelli.
Veggspjöld og auglýsingar
Söluímynd íslands er hin
„hreina og óspillta náttúra" én að
fjaUabaki atast tæknimenn í henni,
stífla ár, sökJcva landi, reisa möstur
Andri Snaer
Magnason Rit-
I höfundur.
og byggja vegi. Elfriede Jelinek hef-
ur lýst markaðssetningu Alpanna j
sem Disney-landsvæðingu náttúr-
unnar. Er náttúran sem náttúra töp-
uð og horfin? Hvað er náttúra og j
hvar er hana að finna? Er hún j
hvergi? Eða er hún kannski helst þar
sem Hvergi er, eins og Roni Horn
hefur fullyrt?"
Dagskráin er í samvinnu við
Þjóðleikhúsið sem mun síðar í vetur
bjóða upp á Réttarhöld á sama stað
í tengslum við sýningar á „Virkjun-
inni" eftir Elfriede Jelinek. Allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Boðið upp á hitabrúsakaffi og Frón-
kex að lokinni dagskrá.
Felix Bergsson og Kol-
brún Halldórsdóttir
leikstjóri með brúður
úr sýnirigunni
Augasteinn fyrir
norðan og
sunnan
Leikhópurinn Á senunni sýnir hina
margrómuðu jólaleiksýningu Ævin-
týrið um Augastein eftir Felix Bergs-
son i Samkomuhúsinu á Akureyri
og i Tjarnarbíói í Reykjavík nú fyrir
jólin. Sýning-
arverðaá
Akureyri
dagana 10.-
12.desember
og í Reykja-
víkdagana
14.-18. des-
ember. Sýn-
ingar á Akur-
eyri eru í
samstarfi við
Leikfélag Ak-
ureyrar.
Barnabókin
Ævintýrið um Augastein fékk glimr-
andi viðtökur fyrir jólin 2003 og
seldist i þúsundum eintaka. Útgef-
andi var Mál og menning.
Ævintýrið um Augastein var frum-
sýnt i London árið 2002 og í Reykja-
vik2003. Verkið erleikið afhöfundi
og það byggir á hinni sígildu sögu
um Grýlu og jólasveinana en ævin-
týrið er tekið lengra og sagan um
litla drenginn, sem nefndur er
Augasteinn, verður miðpunktur
leikritsins. Augasteinn lendir fyrir
tilviljun I höndum hinna hrekkjóttu
jólasveina. Sveinarnir skrýtnu eru
skíthræddir við lítil börn en þeir
læra smám saman að elska litla
drenginn og annast hann. Skyndi-
lega kemst Grýla á snoðir um til-
veru barnsins og við tekur
æsispennandi flétta. Ná jólasvein-
arnir að bjarga Augasteini úr klóm
Grýlu og Jólakattarins áður en jólin
gangaigarð?
Nánari upplýsingar um sýningar-
tíma auk miðasölu máfinna á
heimasiðu Leikhópsins A senunni
www.senan.is eða á vefLA,
www.leikfelag.is
I Bjarni og P
I ur Eggerz Völ-
I undur tekst á við
I jólasvein.
Smiðurjólasvein-
______— -rietptjti wvt plotn
anna
Möguleikhúsið hefurnú hafíð sýn-
ingar á barnaleikritinu Smiður jóla-
sveinanna eftir Pétur Eggerz með
tónlist eftir Ingva Þór Kormáksson.
Smiður jólasveinanna var fyrst
sýndur fyrir jólin 1992 og naut þá
þegarmikilla vinsælda. Urðu sýn-
ingar á verkinu þá alls 52 talsins á
einum mánuði.
Leikritið var
síðan gefið
útá
geisla-
diski fyrir
jólin
1993.
Smiður
jólasvein-
anna var tekið
upp að nýju á veg-
um Möguleikhúss-
ins fyrir síðustu jól og var þá sýnt
rúmlega þrjátiu sinnum í leik- og
grunnskólum. Nú þegar eru sýning-
ar á verkinu nánast fullbókaðar til
jóla, en að vanda verður ferðast
með sýninguna milli leik- og grunn-
skóla tiljóla.
I leikritinu segir frá Völundi gamla
sem situr einn í litla kofanum sinum
hátt upp til fjalla. Völundur er smið-
urinn sem sér um að smiða allar
gjafírnar sem jólasveinarnir færa
börnunum á jólunum. Eftir að sið-
ustu sveinarnir eru farnir til byggða
er einmanalegt í kotinu. Þá birtast
óvæntir gestir, tröllabörnin Þusa og
Þrasi sem aldrei hafa heyrt talað
um jólin og sjálfur jólakötturinn,
sem er hættur aðfara til byggða.
Völundur tekur vel á móti þeim og
saman rifja þau upp söguna affæð-
ingu Jesú. Þeim þykir sagan svo
skemmtileg að þau ákveða að leika
hana saman.
Leikstjóri sýningarinnar er Pétur
Eggerz og vann hann leikmynd
með Bjarna Ingvarssyni. Tónlist er
eftir Ingva Þór Kormáksson en leik-
endur eru þau Ásta Sighvats Ólafs-
dóttir, Alda Arnardóttir, Bjarni Ingv-
arsson og Pétur Eggerz.