Símablaðið - 01.12.1977, Side 2
Forsíban
Forsíðumyndin, sem tekin er af Jóni
Tómassyni fyrrverandi stöðvarstjóra í
Keflavík, er frá ferð Eftirlaunadeildar
F.Í.S., sem farin var í sumar. Myndin er
tekin við Sögualdarbæinn í Þjórsárdal. Það
er mál allra, sem tóku þátt í þessari ferð,
að hún hafi verið hin skemmtilegasta og
hafi verið þeim, sem að stóðu og stjórnuðu,
til mikils sóma.
Eftirla.unadeild F.Í.S. er fyrsta eftir-
launadeildin, sem stofnuð er innan sam-
taka BSRB. Það er ánægjulegt til þess að
vita, að F.Í.S., sem svo oft áður hefur verið
í fararbroddi varðandi ýmis framfaramál
innan samtaka opinberra starfsmanna,
skuli hafa riðið á vaðið með stofnun slíkrar
deildar.
Leiðir flestra símamanna munu liggja í
þessa deild og það hlýtur að auka á örygg-
iskennd eftirlaunafólks, að eiga slíkan
bakhjarl, sem þessi deild kemur til með
að verða.
Mál aldraðra er eitt af stórmálum þjóð-
arinnar sem hefur verið alltof lítill gaum-
ur gefinn, þó sjá megi þess merki hin síð-
ari ár, að stefni í rétta átt. Þess má geta, að
hjá ýmsum símastofnunum á Norðurlönd-
um, er lögð töluverð áhersla á, að undir-
búa starfsfólk þessara stofnana undir eftir-
launaárin. Það eru hafðir fundir reglulega
með þeim, sem eru að nálgast eftirlauna-
aldurinn. Á þessum fundum eru mál aldr-
aðra rædd og margvísleg fræðsla höfð í
frammi. M.a. er fólki leiðbeint með að
koma sér upp „hobby“ fyrir elliárin.
Hvort sem Eftirlaunadeild F.Í.S. kemur
til með að fara eitthvað inn á þessar braut-
ir eða ekki, þá er stofnun þessarar dcildar
stórmerkur viðburður og má búast við að
fleiri félög innan samtaka opinberra starfs-
manna fylgi í kjölfarið og stofni slíkar
deildir.
H. H.