Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 10

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 10
Þorsteinn Öskarsson og Jóhann Örn GuÓmunds- son í framkvœmdanefnd kosninga og verkfalls hjá F.I.S. og samninganefnd B.S.R.B. Jóhann var einnig í verkfallsnefnd B.S.R.B. Karl Guömundsson fulltrúi 5. deildar í Félags- ráSi, Sœvar Guðjónsson og Leifur Vilhelmsson að vinna í kosningum um sáttatillögu. Daginn eftir ákvað verkfallsnefnd B.S.- R.B. að setja aftur á verkfallsvörslu þar sem það hafði komið fram að af um það bil 250 telexnúmerum eru 233 hjá við- skiptaaðilum en 17 númer 'hjá sendiráðum og stjórnstofnunum ríkisins. Af hálfu B.S.R.B. var það boðið að þessir 17 aðilar væru opnir (gataspjöld sett í þeirra vegna). Þessu tilboði var ekki tekið og verkfalls- vörður var því um telexstöðina dag og nótt þar til verkfalli lauk og stöðin gekk án þess að gjaldskrárspjöld væru sett í af símvirkja sem til þess var úrskurðaður af k j ar adeilunefnd. ÍRAFOSS-MÁL. Það kom í ljós 14. okt. að talstöðin í írafossi var notuð sem strandastöð Iþar sem 'hann lá í Reykjavík- urhöfn. Þetta er brot á fjarskiptalögum og verkfallsbrot. Var stöðin innsigluð af síma- manni að fyrirmælum stofnunarinnar. BREIÐHOLTS-MÁL kom upp vegna þess að hluti af sjálfvirka sambandinu frá norð-austurlandi rofnaði. Handvirkt sam- band ásamt þeim hluta sjálfvirka sam- bandsins sem var í lagi var talið nægjan- legt af verkfallsnefnd B.S.R.B.. Verkfalls- varsla var sett á en aflétt að beiðni ráð- herra áður en lokasamningalotan hófst. Félagar í F.Í.S. voru mjög virkir í starfi fyrir samtök sín F.f.S. og B.S.R.B. alla verkfallsdagana. í Reykjavík hvíldi starfið aðallega á framkvæmdanefnd kosninga og verkfalls F.Í.S., félagsráðsmönnum, trúnaðarmönn- um deilda og þeim sem til starfa voru til- nefndir bæði á vegum F.f.S. og B.S.R.B. Stjórnin F.Í.S. deilda víðsvegar um land störfuðu að verkfallsmálum ásamt einstak- lingum og voru í stöðugu sambandi við skrifstofu F.Í.S. sem vár opin allan sólar- hringinn meðan á verkfalli stóð. BORGAÐI SIG AÐ BERJAST? Þegar horft er yfir það tímabil er samn- ingsgerð tók ‘hljóta margar spurningar að vakna. Borgaði sig fyrir okkur að berjast fyrir verkfallsrétti um aðalkjarasamning? Jú-tvímælalaust. Við hefðum aldrei feng- ið státtatillögu í þá veru er við fengum 36 SIMABLAÐIO

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.