Símablaðið - 01.12.1977, Síða 11
(16,14% í júlí í 13. lfl. í stað TV2% tilboðs)
nema yfir hefði staðið verkfallsboðun.
En borgaði sig að fara í verkfall?
Þessu er hægt að svara með annarri
spurningu.
Hvar stæði launafólk á íslandi í dag eí
aldrei hefði verið farið í verkfall og aðeins
tekið tilboði atvinnurekenda?
Ekki er hægt að reikna verkfallsdaga í
peningum af nokkru viti. í verkfalli er
samið um margt sem ekki er hægt að
reikna til fjár.
Að loknu verkfalli voru laun í 13. lfl.
21,04% hærri en júlí laun fyrri samnings
(sáttatillaga gerði ráð fyrir 16,14%) auk
kr. 40 þús. persónuuppbótar 1. des, 15 mín.
kaffitími, daglegur heimflutningur innan
60 km fjarlægðar frá Reykjavík, bókun um
samvistartíma um vaktaskipti, bókun um
óhreinindaálag, skýrari reglur um greiðsl-
ur ef ekki fæst tilskilin hvíld, skilgrein-
ingar eða starfsmat við röðun í launa-
flokka og endurskoðunarrétt á samnings-
tímabilinu á kaupliðum samnings. Því mið-
ur náðist ekki fram verkfallsréttur um
þetta atriði. Reynslan sker úr til 1. júlí
1979 á hvern hátt ber að taka á þessu máli
þá.
ENN MISRÆMI
Því er ekki að leyna að fyrsti kjarasamn-
ingur okkar með verkfallsrétti er ekki
eins og vonir stóðu til.
Það tókst að 'hæfcka laun hinna lægst
launuðu. Um miðju launastigans þar sem
mestur fjöldi starfsmanna er tókst ekki að
ná sömu launum og almennt eru greidd
hér á landi.
Þó nokkuð hafi áunnist er það vitað að
enn vantar verulega á að sömu laun hafi
náðst í samningum B.S.R.B. og t.d. sam-
bærilegir hópar hafa samkv. samningum
A.S.Í. Má í því sambandi nefna línumenn
og símvirkja og yfirmenn þeirra með hlið-
sjón af rífcisverksmiðjusamningum og
samningum útvarpsvirkja innan Rafiðnað-
arsambands íslands.
Þegar desemberlaunatöflur framanrit-
aðra starfshópa liggja fyrir getur hver og
einn reiknað þetta út.
Jóhann Örn, Alexander GuÖmundsson og
Bjarni Ölafsson. Bjarni í samninganefnd
B.S.R.B. og framkvœmdanefnd kosninga og
verkfalls hjá F.f.S. Alexander starfaði mikiö i
verkfallsnefnd B.S.R.B.
Fulltrúar skrifstofufólks í FélagsráÖi: Berg-
þóra Gísladóttir og Steinþór Ólafsson. Berg-
þóra var einnig varafulltrúi í samninganefnd
B.S.R.B.
SÍMABLAÐIÐ