Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 14

Símablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 14
Úr fundargerðarbók Félagsráðs Þann 22/10 sl. hélt Félagsráð fund til þess að ræða stöðuna í kjarasamningunum, en þá stóðu samningaviðræður sem hæst og verkfall hafði staðið í 12 daga. Vegna þess, að villandi og rangar upplýs- ingar af fundinum hafa verið sendar út, á einstaka vinnustaði, í nafnlausu skeyti, þykir rétt að birta hér í heild fundargerð fundarins. Fundur í Félagsráði F.Í.S. haldinn 22/10 1977. Ágúst Geirsson setti fundinn kl. 10.10, og stjórnaði fundi með samþykki fundar- manna. Ágúst tók til máls og skýrði frá gangi samninga og hver staðan væri nú í þeim málum. Búið væri að afgreiða sérkröfur og upp- sagnarákvæðið lægi fyrir án verkfallsréttar og væri nánast ekki nema orðalagsbreyt- ingar eftir. Launastigi væri óafgreiddur, en tilboð ríkisins á þessari stundu væri nánast sá samningur sem Starfsmannafélag Reykja- víkurborgar hefði samið um. Hinsvegar væri krafa B.S.R.B. komin niður í það að ekki bæri á milli nema um tæpar 800 kr. þar sem minnst væri, en rúmar 2000 kr. þar sem mest væri. Virtist samninganefnd ríkisins halda fast í þá stöðu sem nú væri uppi. Ágúst taldi að stór hópur innan samn- inganefndar B.S.R.B. væri tilbúinn að knýja samninga nú. Kvaðst hann vilja fá fram sjónarmið Félagsráðsmanna um framhald samninga- viðræðna og 'hvort þeir teldu að fólkið væri tilbúið að berjast 'áfram í verkfalli, jafnvel eina viku í viðbót. Steinþór Ólafsson tók næstur til máls. 40 Hann kvaðst hafa fylgst með samningamál- um svo sem hann hefði getað, taldi að ýms- ir væru orðnir þreyttir, kvaðst samþykkur þeim drögum sem nú lægju fyrir, og kvaðst viss um að skrifstofufólkið væri sér sam- mála. Jóhann L. Sigurðsson skýrði frá þeixn sérkröfum er snúa að vaktavinnumönnum og hefðu nú verið afgreiddar. Júhann taldi það sína skoðun að nú yrði gengið til samninga, þar sem búast mætti við að ef slitnaði upp úr samningum, kæmi fram miðlunartillaga og mundi þá verkfall- ið dragast í viku til 10 daga í viðbót. Hermann Guðmundsson þakkaði þær upplýsingar, er fram hefðu komið. Taldi hann að verkfallið hefði þegar borið árang- ur, og sagði það sína skoðun að komið væri að því að semja. Karl Guðmundsson kvaðst ekki vera ánægður með þá stöðu sem nú væri uppi, og kvað einsýnt að hann og hans félagar lentu í dalnum. Garðar Hannesson þakkaði fulltrúum í samningamefnd, taldi þá hafa haldið vel á málum. Garðar kvað opinbera starfsmenn vera að heyja sína frumraun í verkfalli, og kvað það sína skoðun að halda bæri áfram baráttunni og herða tökin, reyna að þrauka áfram. Taldi að ekki væri náð þeim árangri sem þyrfti. Kvatti fólk til að berjast áfram, sagði að á þeim punkti sem við yrðum nú stoppaðir, yrðum við alltaf stoppaðir. Þorsteinn Óskarsson kvað hafa komið fram miskilning um að starfsmenn ríkis- ins væru að ná jafnaði við aðra launþega. Benti á samanburð úr könnun sem gerð hafði verið um kjör símvirkja annars vegar og útvarpsvirkja ihinsvegar. Sagði að sam- kvæmt upplýsingum Hagstofu íslands, BÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.