Símablaðið - 01.12.1977, Page 15
væri skrifstofufólk á almennum markaði
yfirborgað. Þorsteinn kvaðst ekki vera á-
nægður með stöðuna eins og hún væri nú,
og vildi að áfram væri haldið, og kannað
hvort eitthvað yrði hægt að þoka málum.
Ágúst benti á að nú væri ek-ki verið að
ræða upphaflegu kröfuna heldur stöðuna
eins og hún væri nú.
Bjarni ÓJafsson sagði að þeir hópar sem
hefðu sitt starfsfólk að mestu í vinnu, væru
hvað harðastir í að berjast áfram i verk-
falli. Bjarni benti á þann mun sem nú lægi
fyrir milli viðsemjenda, sagði síðan frá
hvernig samningaviðræður hefðu gengið
fyrir sig og skýrði frá nokkrum atriðum
úr sérkröfum, sem búið var að afgreiða.
Ágúst bað fólk að meta stöðuna ihlutlaust
og lagði fram til skoðanakönnunar þessa
fyrirspurn:
Þeir sem telja að semja beri á þeim nót-
um sem núverandi tilþoð samningsaðila
eru á.
13 fulltrúar varu á þeirri skoðun, en 6
fulltrúar á móti.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 12.20.
Þennan fund sátu eftirtaldir:
Ágúst Geirsson
Jóhann L. Sigurðsson
Steinþór Ólafssan
Sigríður Helgadóttir
Garðar Hannesson
Hermann Guðmundsson
Ragnhildur Guðmundsdóttir
Þorvaldur Jónsson
Arnór Þorláksson
Bergþóra Gísladóttir
Bjarni Ólafsson
Hólmfríður Gísladóttir
Alexander Guðmundsson
Óli Gunnarsson
Karl Guðmundsson
Þorsteinn Óskarsson
Elín Sæmundsdóttir
Jóhann Örn Guðmundsson
Þórunn Andrésdóttir
Jóhamn Orn Guðmundsson,
ritari.
Fréttir:
FUNDUR I FÉLAGSRÁÐI
Fundur var haldinn í Félagsráði F.Í.S.
miðvikudaginn 30. nóv. og fjallað um stöð-
una í samningamálum. Formaður félagsins
gaf skýrslu um ferð sína til Danmerkur
þar sem forystumenn símamanna funduðu.
Margt athyglisvert kom fram hjá formanni
og mun hann fjalla um það á öðrum stað í
blaðinu.
Sbl. 1.12. ’77
RÖÐUN í LAUNAFLOKKA
Fyrsti fundur samninganefndar F.Í.S. og
samninganefndar ríkisins var í Arnarhváli
þriðjudaginn 29. nóvember. Fjallað var um
röðun einstaklinga og starfshópa í launa-
flokka eins og lög gera ráð fyrir. Fátt nýtt
kom fram á fundinum og ekki hefur enn
verið ákveðinn annar fundur.
Sbl. 1.12. ’77